Fréttablaðið - 26.10.2013, Side 38

Fréttablaðið - 26.10.2013, Side 38
26. október 2013 LAUGARDAGUR| HELGIN | 38 Mér fannst rosaleg-ur heiður að Gísli skyldi hringja í mig og spyrja hvort ég ætlaði ekki að koma að æfa. Hann skildi ekkert í því hvar ég var. Ég hafði einhvern veginn misst kjarkinn og þróttinn,“ segir Hafdís Sigurðardóttir um afdrifa- ríkt símtal haustið 2004. Frjálsíþróttaþjálfarinn Gísli Sigurðsson var þá byrjaður að þjálfa frjálsíþróttafólk á Akur- eyri. Gísli, sem gert hafði garð- inn frægan sem þjálfari tug- þrautarkappans Jóns Arnars Magnússonar og hlaupadrottn- ingarinnar Guðrúnar Arnardótt- ur, vissi af efnilegri íþróttakonu og heyrði í henni hljóðið. Óhætt er að segja að eitt símtal getur gert kraftaverk. Hafdís, sem í dag er Íslandsmet- hafi í langstökki, var þá tiltölulega nýflutt til Akureyrar frá Tjarnar- landi í Ljósavatnsskarði í Suður- Þingeyjarsýslu þar sem hún er alin upp. Nám í Verkmenntaskól- anum var á dagskrá auk þess sem æfa skyldi frjálsar af kappi. „Ég var svolítið til baka og átti erfitt með að komast inn í hópinn,“ segir Hafdís sem fékk auk þess beinhimnubólgu sem olli henni miklum sársauka. „Við æfðum tvisvar í viku í sveitinni auk skólaleikfimi,“ segir Hafdís sem var ekki tilbúin í miklu meira og öðruvísi æfinga- álag í höfuðstað Norðurlands. Með leiðsögn Gísla og miklum aga tókst henni á tveimur árum að vinna bug á beinhimnubólgunni – halda henni niðri að minnsta kosti. „Ég lyfti mikið og hljóp í vatni til að minnka álagið á fæturna,“ segir Hafdís sem verður sjaldnast vör við hana í dag. Beri svo undir veit hún hvernig bregðast á við. Sunna eins og Usain Bolt Tvær æfingar í viku þykir ekki mikið hjá efnilegu íþróttafólki sama til hvaða íþróttagreinar er litið. Hafdís lýsir því þannig að hún hafi verið ung en aldrei sú efnilegasta. „Ég var alltaf í fremstu röð en aldrei súperstjarna. Nú er ég gömul og sæmileg,“ segir hin 26 ára Hafdís og hlær. Ekki er hægt að taka undir orðavalið enda Haf- dís ein af okkar fremstu íþrótta- konum. En hún hefur þurft að hafa fyrir hlutunum. „Ég er ekki endilega fædd í frjálsar heldur hef ég unnið gríð- arlega fyrir þessum árangri,“ segir Hafdís. Bætingin hefur verið nokkuð stöðug á milli ára og toppn- um náð síðastliðið sumar, hingað til, þegar Íslandsmetið í langstökki var staðreynd. „Ég hef horft löngunaraugum á þetta met frá því ég var lítil stelpa,“ segir Hafdís. Metið var í eigu Skagfirðingsins Sunnu Gests- dóttur sem Hafdís leit mikið upp til. „Þegar ég keppti við hana fannst mér hún á pari við Usain Bolt. Hún var svo rosalega fljót og sterk,“ segir Hafdís, sem að mörgu leyti hefur fetað í fótspor Sunnu. Fjöl- hæfni er þeirra styrkleiki enda er Íslandsmetið í 100 metra hlaupi enn í eigu Sunnu. Hafdís viður- kennir að hún renni hýru auga til metsins. Fyrst ætli hún sér þó að bæta Íslandsmet Sunnu í lang- stökki innanhúss. En af hverju ekki að setja allan tímann og orkuna í eina grein? „Það er svo rosalega gaman að geta gert þetta allt saman. Svo hjálpar auðvitað að hlaupa hratt í atrennunni í langstökki,“ segir Hafdís, sem hleypur einnig 200 metra og 400 metra. Íslandsmet Guðrúnar Arnardóttur í fyrri greininni er innan seilingar og engin hljóp 400 metrana hraðar en Hafdís í sumar. Vildi borða nammi uppi í sófa Versti óvinur íþróttamannsins eru meiðsli. Þau gera sjaldnast boð á undan sér. Áður var vikið af bein- himnubólgu Hafdísar þegar hún var 17 ára. Þá tognaði hún aftan í læri í langstökki í upphafi sumars árið 2007. „Það var mikið áfall og ég var frá allt sumarið,“ segir Hafdís, sem gerði þó örvæntingarfulla til- raun til að keppa á Meistaramótinu í lok sumarsins. Tognunin endur- tók sig og fram undan var endur- hæfing og sjúkraþjálfun. Aftur varð Hafdís fyrir áfalli í nóvember í fyrra þegar liðþófi í hné gaf sig. Það var gríðarlegt áfall enda hafði hún lagt afar hart að sér og Evr- ópumótið innanhúss á næsta leiti. „Ég var á ógeðslega erfiðum æfingum hjá Gísla en ég fann að þetta var að gerast. Allt var létt- ara en áður og ég gat gert meira en nokkru sini fyrr,“ segir Hafdís. Áfallið var mikið og segist Hafdís hafa verið rosalega langt niðri. „Ég gat ekki farið á æfingu. Hvað átti ég að gera? Liggja uppi í sófa og borða nammi? Mig langaði það kannski en ég gerði það ekki,“ segir frjálsíþróttakonan. Löng- unin og ástríðan hafi verið ofar öllu. Og viti menn. Hafdís mætti á sitt fyrsta mót í janúar, hunds- vekkt yfir að hafa misst úr mánuð við æfingar en bætti sig engu að síður. Svo fór að hún bætti sig í öllum greinum innanhúss síðast- liðinn vetur. „Ég hafði byggt upp rosalega vel. Svo kom mjög löng hvíld með engu álagi. Svo byrjaði ég aftur rólega og náði að uppskera. Samt ekki alveg nógu mikið því ég náði ekki lágmarkinu á EM.“ Gæti ekki flutt suður Hafdís hóf nám í iðjuþjálfun við Háskólann á Akureyri nú í haust. Flestir hefja háskólanám upp úr tvítugu en í tilfelli Hafdísar er hún nær þrítugu. „Ég hef frestað því að fara í skóla þar til núna því ég vildi taka íþróttirnar á annað stig,“ segir Hafdís. Hún viðurkennir að hún velti mjög oft fyrir sér hvort þær séu þess virði. „Þegar maður kemst varla upp stigann þegar undirbúningstíma- bilið er gjörsamlega að drepa mann. Þegar mann langar ekki á æfingu vegna þreytu. Þegar fjárhagsstaðan er svo slæm að þú ræður ekki við hana.“ Hún er þó fljót til svars hvers vegna hún haldi, þrátt fyrir þetta, áfram. „Þegar maður nær að upp- skera eins og ég gerði í sumar þá er þetta margfalt erfiðisins virði,“ segir Hafdís. Nú finnst henni hún að vissu leyti vera að fórna árangri í frjálsum með því að setjast á skólabekk. Auk þess vinnur hún lítillega með þessu öllu saman. Hver króna skiptir máli. „Ég hef aldrei fengið neina afreksstyrki frá Íþrótta- eða Frjálsíþróttasambandinu,“ segir Hafdís. Hennar styrkir komi að norðan og úr sveitinni. Ekki hjálpi landsbyggðarfólkinu sá kostnaður sem til fellur við ferðalög til höf- uðborgarinnar að keppa. „Maður verður stundum móðg- aður þegar fólkið að sunnan kemur norður á eitt mót. Svo höld- um við annað og spyrjum hvort þau ætli ekki að mæta. Þá er svar- ið að þau séu búin að koma norður í sumar,“ segir Hafdís. Á meðan fara félagarnir úr UFA kannski sex ferðir yfir veturinn og sama gildi um sumarið. Við bætast utanlandsferðir sem hefjist með ferð til Reykjavíkur. En gæti hún hugsað sér að flytja suður? „Ekki séns. Ég kem því ekki í orð hve fegin ég er og hamingju- söm að vera hér. Það eru forrétt- indi að fá að vera hérna í friði. Ég er í vernduðu og flottu umhverfi og aðstaðan er fín.“ Kolbeinn Tumi Daðason kolbeinntumi@frettabladid.is Eitt símtal og úr varð stjarna Frjálsíþróttakonan Hafdís Sigurðardóttir hefur þurft að hafa mikið fyrir afrekum sínum. Henni leist ekki á blikuna og var svo gott sem hætt þegar síminn hringdi hjá sveitastelpunni á sautjánda aldursári. Hungrið hefur fleytt henni í gegnum erfiðar æfingar, óvænt meiðsli og baráttuna við greiðslukortareikninginn. Allt saman vel þess virði þegar maður uppsker á frjálsíþróttavellinum. FÓR AÐ HÁSKÆLA Hafdís stökk 6,31 metra á móti norðan heiða snemma síðasta sumar. Íslandsmet í langstökki var staðreynd en met Sunnu Gestsdóttur var 6,30 metrar. „Þegar ég heyrði töluna og að vindurinn hefði verið löglegur fór ég að háskæla,“ segir Hafdís. Einn sentimetri er einn senti- metri. Gísli þjálfari sagði henni að taka sig saman í andlitinu og klára keppnina með stæl. „Ég var búin að setja Íslands- met og langaði bara að fagna. Sem betur fer missti ég mig ekki því ég bætti metið frekar í seinasta stökkinu,“ segir Hafdís og enn streymdu tárin. „Ég hringdi svo í mömmu og grét enn meira. Það ætlaði eng- inn að trúa þessu.“ EKKI FYRIR HÁSTÖKK OG GRINDAHLAUP Hafdís æfði fjölmargar greinar á yngri árum en ákvað snemma að hástökk væri ekki fyrir sig. „Ég lenti einu sinni svo illa á ránni og fór að grenja. Þá ákvað ég að ég skyldi aldrei æfa hástökk. Það var eitthvað sem ég beit í mig. Aldrei aftur,“ segir Hafdís sem gaf grindahlaupi líka tækifæri. Í eitt skiptið varð hún Íslandsmeistari í greininni þrátt fyrir að finnast grindahlaupið ekki skemmtilegt. Hún gekk því til þjálfarans, Jóns Friðriks Ben- ónýssonar, og tilkynnti að hún væri hætt keppni í greininni við mikla undrun þjálfarans. „VIÐ HÖFUM TRÚ Á ÞÉR“ Hinn 10. júní síðastliðið sumar barst Hafdísi góður glaðningur. Heiðrún systir hennar hafði staðið fyrir söfnun henni til stuðnings og lögðu á sjöunda tug manna sitt af mörkum. Ávís- unin hljóðaði upp á 330 þúsund krónur og skilaboðin þau að fólkið styddi við bakið á Hafdísi á leið hennar á toppinn. „Þú ert einstök persóna sem og íþróttamaður og vitum að framtíð þín er björt. Hafðu trú á þér og þínum markmiðum. VIÐ höfum trú á þér!“ LÖMBIN KALLA Hafdís er alin upp á bóndabæ þótt foreldrarnir séu ekki bændur. Það er hins vegar föður- systir hennar og afi sem býr í nágrenninu. Þangað fer Hafdís ár hvert í maí. „Ég flyt þangað, vaki á nótt- unni og tek á móti lömbunum,“ segir hún. Gísli þjálfari hefur skilning á þörf hennar auk þess sem tímasetningin er ágæt. Keppnistímabilið handan við hornið og tími til að fækka æfingum og hvíla. „Sauðburðurinn er svo sem ekki mikil hvíld þannig séð. En maður fær góða orku út úr því.“ FLUGA Í AUGAÐ Illa hafði gengið hjá íþróttakon- unni á móti í Gautaborg á síðasta ári. Fyrir lokagreinina, 400 metra hlaup, var hún að spá í að sleppa greininni. Hún var þjálfaralaus en Gísli taldi hana á það símleiðis að keppa. Allir bestu hlaupararnir hlupu í sama riðli en á því áttaði Hafdís sig ekki. Hún náði for- ystu og hafði hana enn í seinni beygjunni þegar hún fékk flugu í augað. „Ég klára hlaupið og öskra strax upp í stúku að ég hafi fengið flugu í augað,“ segir Hafdís og uppskar mikinn hlátur nærstaddra. Hún hafði miklar áhyggjur af því að hafa stigið á línuna í beygjunni þegar hún átti erfitt með sjón en svo reyndist ekki vera. „Ég bætti mig um tæplega sekúndu,“ segir Hafdís, sem bætti tímann aftur síðastliðið sumar– flugulaus. ➜ Skemmtilegar sögur frá viðburðaríkum ferli Hafdísar Á HLAUPUM OG Í HÁLOFTUM Hafdís átti frábært síðasta keppnistímabil og stefnir ótrauð á bætingu á komandi tímabili. MYNDIR/GUNNLAUGUR JÚLÍUSSON OG BJÖRN INGVARSSON
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.