Fréttablaðið - 26.10.2013, Page 78
26. október 2013 LAUGARDAGUR| TÍMAMÓT | 50TÍMAMÓT
Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli
og útfarir má senda á netfangið
timamot@365.is.
Auglýsingar á að senda á auglysingar@frettabladid.is
eða hringja í síma 512 5000.
Elskulegur eiginmaður minn,
faðir, tengdafaðir og afi,
KRISTJÁN BENJAMÍNSSON
Holtsgötu 12,
lést á Landspítalanum við Hringbraut
miðvikudaginn 23. október.
Útförin fer fram frá Dómkirkjunni
fimmtudaginn 31. október kl. 13.00.
Hulda Guðmundsdóttir
Kristín Berglind Kristjánsdóttir Páll Kristján Svansson
Broddi Kristjánsson Helga Þóra Þórarinsdóttir
og barnabörn.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð
vegna fráfalls elskulegs eiginmanns míns,
föður okkar, tengdaföður og afa,
ÁRNA PÉTURS BJÖRGVINSSONAR
sjóntækjafræðings,
Kjalarsíðu 14b, 603 Akureyri.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki
Heimahlynningar á Akureyri og lyfjadeildar
Sjúkrahússins á Akureyri.
Laufey Vilhjálmsdóttir
Vilhjálmur Árnason
Þorgerður Helga Árnadóttir Ingi Rafn Ingason
Sævar Már Árnason Gunnhildur Helgadóttir
Helga Laufey Ingadóttir, Jökull Sævarsson, Myrra Ísis
Sævarsdóttir og Valgerður Árný Ingadóttir
Okkar góða móðir, tengdamóðir,
amma og langamma,
SIGRÚN HÖGNADÓTTIR
frá Valhöll í Grindavík,
er lést mánudaginn 21. október
á Sólvangi í Hafnarfirði, verður jarðsungin
frá Grindavíkurkirkju þriðjudaginn 29. október kl. 14.00. Hlýjar
hugsanir og þakkir sendum við þeim er að umönnun stóðu.
Bára Þórarinsdóttir Arngrímur Sæmundsson
Þórarinn Arngrímsson Sigríður Ársælsdóttir
Sæmundur Elías Arngrímsson
Svavar Rúnar Arngrímsson
Sigrún Arngrímsdóttir
og barnabarnabörn.
VirðingReynsla & Þjónusta
Allan sólarhringinn
571 8222 · 82o 3939 svafar · 82o 3938 hermann
www.kvedja.is
Þökkum innilega auðsýnda samúð og
vinarhug við andlát og útfarir foreldra okkar
ALBERTS JENSEN OG
ÞÓRU FILIPPÍU ÁRNADÓTTUR
sem létust 7. júní og 11. júlí síðastliðinn.
Sérstakar þakkir sendum við til
SEM-hússins og Sinnum hjúkrunarþjónustu.
Magnús Valur Albertsson Guðný Guðmundsdóttir
Kristín Albertsdóttir
Sigríður Albertsdóttir
Jörgen Árni Albertsson Karen H. Theodórsdóttir
Ögmundur Guðjón Albertsson Lilja Rós Agnarsdóttir
Guðfinna Albertsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Hjarta var grætt í tólf daga gamla
stúlku þennan dag árið 1984. Aðgerðin
var framkvæmd af Leonard L. Bailey,
skurðlækni við Loma Linda-háskóla-
sjúkrahúsið í Kaliforníu. Þetta var í
fyrsta sinn sem reynt var að græða
hjarta úr bavíana í manneskju.
Stúlkan, sem nefnd var Baby Fae,
fæddist með vanþroskað hjarta.
Nokkrum dögum eftir fæðinguna taldi
Bailey læknir móðurina á að leyfa sér
að skipta hjartanu út fyrir heilbrigt
apahjarta enda væru lífslíkur telpunnar
að öðrum kosti sáralitlar.
Baby Fae lifði aðgerðina af og lífs-
barátta hennar næstu daga dró að
sér heimsathygli. Hún lifði lengur en
nokkur önnur mannvera eftir slíka
aðgerð en þó fór svo að líkaminn
hafnaði hinu nýja hjarta og Fae dó úr
nýrnabilun vegna þeirra ónæmisbæl-
andi lyfja sem henni voru gefin. Fae dó
15. nóvember 1984 eftir tuttugu daga
harða baráttu.
ÞETTA GERÐIST: 26. OKTÓBER 1984
Hjarta úr apa grætt í barn
„Mér þykir ekki gaman að tala um
stam en lít þannig á að ég geti kannski
gert einhverjum gagn með því,“ segir
Ólafur Páll Gunnarsson útvarpsmaður
sem heldur erindi á stamhátíð í Hinu
húsinu við Pósthússtræti í dag. Þar er
opið hús frá kl. 13 til 16 og allir eru
velkomnir. Þar ætlar Guðbjörg Ása
Jóns- og Huldudóttir að kenna áhuga-
sömum hvernig eigi að nýta sér stam
til framdráttar og Óli Palli byrjar
sinn fyrirlestur klukkan 14.15. Hann
segir stam þó ekkert sem hann vilji
flagga. „Við sem höfum þennan djöf-
ul að draga reynum yfirleitt að fela
þetta,“ útskýrir hann og segir stamið
einkum hafa verið honum erfitt þegar
hann var yngri. Hann sé heppinn að
hafa náð að draga úr því en þó svo það
heyrist ekki alltaf þá sé stamið með
honum alla daga eins og spennuhnútur
í maganum.
„Ég var kominn yfir tvítugt þegar
þetta fór að verða betra. Ég varð
miklu betri eftir að ég fór að vinna í
útvarpinu og veit ekki nákvæmlega
hvers vegna,“ segir Óli Palli en telur
það hugsanlega hafa með aukið sjálfs-
traust að gera. „Þú „læknast“ ekki af
stami, þetta fylgir fólki ævilangt, er
sálrænt og getur verið misáberandi
eftir því hvernig manni líður. Ef það
verður fyrir áfalli eða er undir álagi
getur stamið aukist,“ útskýrir hann.
Nú starfar Óli Palli við að tala og
það í beinni útsendingu. Hvernig tókst
honum að ná svona góðum tökum á
staminu? „Kannski með því að ráð-
ast á garðinn þar sem hann var hæst-
ur og byrja að tala í útvarpið,“ segir
hann og hlær. „En það gerðist rólega
og í mörgum litlum skrefum því ég
byrjaði hér sem tæknimaður og þegar
ég fór í dagskrárgerðina var ég ekki í
beinni útsendingu til að byrja með. Þá
er þetta eins og að prjóna peysu, hægt
er að rekja upp ef eitthvað mistekst.
En svo getur verið erfiðara að standa
fyrir framan lítinn hóp af fólki og tala
en að vera í beinni útsendingu í útvarp-
inu,“ segir Óli Palli og telur hvern og
einn stamara takast á við það á sinn
hátt. „Fólk notar lítil trix. Einn sem ég
þekki bjargar sér með því að tala á inn-
soginu á köflum. Þetta er ofsalega mis-
munandi frá einum til annars, svipað
og göngulag.“
Óli Palli var einn þeirra sem komu
að stofnun Málbjargar, félags um stam,
árið 1991. „Við vorum nokkrir eða
nokkur sem komum saman nokkrum
sinnum í aðdragandanum og lykilmað-
ur var gleðigjafinn André Bachmann
sem hefur heldur betur glatt marga
gegnum tíðina. Ég hef ekki verið mjög
virkur í félaginu, en nú var leitað til
mín og mér er bæði ljúft og skylt að
vera með, að sjálfsögðu,“ segir hann.
gun@frettabladid.is
Réðst á garðinn þar
sem hann er hæstur
Alþjóðlegur stamdagur er í dag og Málbjörg heldur „stamfest“ í Hinu húsinu. Meðal fyrir-
lesara er Ólafur Páll Gunnarsson útvarpsmaður sem talar um stam í lífi og starfi .
ÚTVARPSMAÐURINN
„Ég var kominn yfir tví-
tugt þegar stamið fór að
lagast. Varð miklu betri í
staminu eftir að ég fór að
vinna í útvarpinu og veit
ekki nákvæmlega hvers
vegna,“ segir hann.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN