Fréttablaðið - 26.10.2013, Side 94

Fréttablaðið - 26.10.2013, Side 94
26. október 2013 LAUGARDAGUR| SPORT | 66 Ég er ekki farinn að horfa alveg á EM. Eftir öll þessi meiðsli horfi ég ekki lengra en fram í næstu viku. Arnór Atlason LAUGARDAGUR 8:20 F1 á Indlandi-tímataka S2 Sport 11:45 C. Palace - Arsenal S2 Sport 2 13:35 Laugardagsmörkin S2 Sport 2 14:00 Man. Utd - Stoke S2 Sport 2 14:00 Liverpool - WBA S2 Sport 3 14:00 Norwich - Cardiff S2 Sport 4 14:00 Aston Villa - Everton S2 Sport 5 16.00 Barca - Real Madrid S2 Sport 16:00 Laugardagsmörkin S2 Sport 2 16:40 Southampt. - Fulham S2 Sport 2 SUNNUDAGUR 9:00 F1 Indlandskappakstur S2 Sport 13:30 Sunderl. - Newcastle S2 Sport 2 14:00 Göppingen - Kiel S2 Sport 16:00 Chelsea - Man. City S2 Sport 2 16:00 Tottenham - Hull S2 Sport 3 16:00 Swansea - West Ham S2 Sport 4 HANDBOLTI „Lífið er stórkostlegt. Okkur líður mjög vel hérna og við erum smám saman að komast inn í hlutina,“ segir Arnór Atlason hress og kátur. Hann söðlaði um í sumar og samdi til þriggja ára við franska félagið St. Raphael. Það er um 30 þúsund manna bær á frönsku rívíer- unni. Arnór segir bæinn afar nota- legan og veðrið sé að sjálfsögðu mikill bónus. „Þetta er bara eins og Akureyri. Það er líka alltaf frábært veður hérna eins og á Akur- eyri.“ Það hefur mikið geng- ið á undanfarið ár hjá landsliðsmanninum. Skömmu eftir að hann samdi við franska félagið sleit hann hásin. Það hélt honum frá æfingum og keppni svo mánuðum skipti. Er hann kom síðan út til Frakklands dundi annað áfall yfir. „Ég puttabrotnaði nánast um leið og ég kom út. Ég missti því alveg af undirbúningstímabilinu hjá okkur. Ég kom inn í hóp er deildin byrjaði og spilaði mjög lítið í upphafi enda nýbyrjaður að spila. Ég er sífellt að fá meiri spiltíma og í dag spila ég kannski 30 mínútur í leik,“ segir Arnór. Hann er fjölhæfur leikmað- ur og getur leyst bæði skyttustöð- una og miðjuna. Hann spilar þó eingöngu á miðj- unni hjá St. Raphael líkt og hann hefur gert með sínum félagsliðum. Hann spilar nær eingöngu skyttu með landsliðinu. Leikmaðurinn er orðinn algjör- lega heill heilsu og kennir sér ekki lengur meins. „Þetta var erfitt í byrjun, ég get alveg viðurkennt það. Vonandi er komið nóg af meiðslum í bili. Ég finn ekkert til í puttanum og hásinin truflar mig ekki að neinu leyti. Ég get alveg spilað af fullum krafti.“ Arnór segir franska handboltann nokkuð góðan. „Þetta er hörkudeild og við höfum farið þokkalega af stað. Erum í fjórða sæti. Við töpuðum tveimur leikjum sem við áttum að vinna. Það vantar smástöðugleika hjá okkur. Sjö bestu liðin hér eru mjög góð. Svo eru líka slakari lið eins og alls staðar. Þetta er jöfn deild fyrir utan París sem er með frábært lið. Liðin í deildinni hér hafa styrkt sig mikið síðustu ár,“ segir Arnór og bætir við að ágæt- lega sé mætt á völlinn. Akureyringurinn kunni ekkert í frönsku er hann fór út en segir að það gangi ágætlega að læra frönsk- una. Hann er farinn að geta tjáð sig lítillega. „Ég er aðeins farinn að láta heyra í mér. Ég og tveir Danir sem komu líka í sumar erum saman í frönsku- tímum. Það er alltaf gaman að læra nýtt tungumál. Ég er að verða búinn að læra þau nokkur núna,“ segir Arnór en hann talar einnig reip- rennandi dönsku og þýsku. Það styttist í Evrópumótið í Dan- mörku og landsliðið kemur saman á næstu dögum í æfingabúðum. Arnór bíður spenntur eftir því. „Ég er ekki farinn að horfa alveg á EM. Eftir öll þessi meiðsli þá horfi ég ekki lengra en fram í næstu viku. Ég hlakka mikið til að hitta strákana í landsliðinu. Ég hef ekki verið mikið með vegna meiðsl- anna fyrir utan síðasta sumar. Þá var ég ekki í neinu formi til að spila landsleiki. Nú er ég á leiðinni upp aftur og það verður gaman að láta til sín taka á nýjan leik.“ henry@frettabladid.is Var erfi tt í byrjun Arnór Atlason er kominn á fulla ferð með sínu nýja félagi, St. Raphael, eft ir mikla meiðslahrinu. Fyrst sleit hann hásin í Þýskalandi og svo puttabrotnaði hann fl jótlega eft ir að hann kom til Frakklands. Hann er heill heilsu í dag. BJÖRT FRAMTÍÐ Arnór er loksins orðinn heill heilsu og sér fram á bjartari tíma á næstu mánuðum. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI BARÁTTAN F ÍT O N / S ÍA Fáðu þér áskrift CHELSEA MAN. CITY ENSKI BOLTINN, NET OG HEIMASÍMI Á 8.990 KR.Gegn 3 mánaða samningi FÓTBOLTI Cristiano Ronaldo er í banastuði og vissara fyrir Spánar- meistara Barcelona að hafa varann á. Portúgalinn og félagar í Real Madrid mæta í heimsókn á Nývang í Katalóníu í dag. Þeir hvítklæddu geta náð Börsungum að stigum í toppsæti deildarinnar en þrjú stig skilja liðin að. Átta mánuðir eru síðan liðin mættust síðast. Eftir gott tak Börs- unga á Real blasir sú ískalda stað- reynd við strákarnir frá Katalóníu hafa ekki unnið sigur í stórslagn- um í fimm síðustu leikjum. Einn maður hefur ráðið mestu og sérstaklega í leikjunum á Ný- vangi. Ronaldo hefur skorað í sex leikjum í röð á vellinum og í tví- gang tvö mörk. Portúgalinn hefur skorað fimmtán mörk í síðustu níu leikjum Real og rétt tæplega helm- ing marka liðsins. Lionel Messi hefur stolið senunni frá Ronaldo oftar en einu sinni í gegnum tíðina. Besti knattspyrnu- maður heims undanfarin fjögur ár hefur skorað átta mörk í deildinni líkt og Ronaldo. Aldrei þessu vant þurfa þeir að sætta sig við annað sætið í keppninni um markakóngs- titilinn á Spáni. Þar hefur forystu Brasilíumaðurinn Diego Costa hjá Atletico Madrid. -ktd Átta mánaða klassískri bið lokið Cristiano Ronaldo og Lionel Messi verða í eldlínunni á Nývangi í dag. Í BEINNI Leikurinn í dag hefst klukkan 16 og er sýndur beint á Stöð 2 Sport. NORDICPHOTOS/GETTY Bæjarlind - skrifstofuhúsnæði Til leigu glæsilegt 232 fm skrifstofuhúsnæði í hjarta höfuðborgarinnar. Húsnæðið er á 2. hæð við Bæjarlind Kópavogi og skiptist í nokkrar skrifstofur, fundarherbergi, opið rými, móttöku, eldhús og tvö salerni. Parketi og náttúrustein á gólfi. 60 fm svalir. Leiga kr.1,600.- pr.fm. Uppl. gefur Ísak í síma 822-5588 eða isak@tingholt.is St. Raphael FÓTBOLTI Stórleikur helgarinnar í ensku úrvalsdeildinni er viður- eign Chelsea og Manchester City á Brúnni á morgun en bæði lið hafa verið á sigurbraut að undan- förnu. Chelsea hefur unnið alla leiki sína á móti „litlu“ liðunum í endur komu Jose Mourinho í ensku úrvalsdeildina en á enn eftir að vinna eitt af þeim stóru. Chelsea gerði jafntefli við Man. United og Tottenham og tapaði fyrir Ever- ton. City vann aftur á móti bæði United og Everton en hefur hins vegar tapað stigum á móti minni spámönnum. Fyrsti leikur helgarinnar er heimsókn toppliðs Arsenal til Crystal Palace og Man. United og Liverpool spila síðan bæði í dag. Alls verða tíu leikir í beinni í enska boltanum í dag og á morg- un. Aron Einar Gunnarsson og félagar í Cardiff spila í dag en Gylfi Þór Sigurðsson og félagar í Tottenham á morgun. Sebastian Vettel getur síðan tryggt sér fjórða heimsmeistara- titilinn í röð í Formúlu 1 þegar Indlandskappaksturinn fer fram og þá verður Íslendingaliðið Kiel í beinni í þýska handboltanum á morgun. Nóg um að vera á Sportstöðvunum
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.