Fréttablaðið - 31.10.2013, Page 47
KYNNING − AUGLÝSING Úlpur & yfirhafnir31. OKTÓBER 2013 FIMMTUDAGUR 7
Útivistarvöruverslunin Fjallakof-inn er með vörur í háum gæða-flokki og þar fæst m.a. gott úrval
af yfirhöfnum fyrir ýmis tilefni. Brand-
ur Jón Guðjónsson, verslunarstjóri Fjalla-
kofans í Húsi verslunarinnar í Kringlunni
7, segir verslunina fyrst og fremst þjón-
usta útivistar- og göngufólk auk þeirra
sem almennt hreyfa sig mikið. „Fyrir
þann sem stundar fjallgöngur allan árs-
ins hring er afskaplega mikilvægt að vera
í skjólgóðum flíkum sem verja vel, hvern-
ig sem viðrar, og því skiptir máli að vanda
valið. Í fatnaði erum við mest með vörur
frá amerískum framleiðanda sem heit-
ir Marmot. Þeir bjóða upp á mikla breidd
í vörulínu sinni og við erum með flík-
ur frá þeim sem henta bæði borgarbúum,
skíðafólki og göngugörpum svo dæmi séu
tekin. Við bjóðum einnig upp á fatnað frá
austurríska merkinu Löffler fyrir hjóla-
fólk og hlaupara að ógleymdum útivist-
arflíkum frá kanadíska háklassamerkinu
Arc‘teryx.“
Litríkar yfirhafnir
Í Fjallakofanum er m.a. boðið upp á lit-
ríkar yfirhafnir. Brandur segir að mun
auðveldara sé nú að bjóða íslensku úti-
vistarfólki fatnað í öðrum litum en
svörtum heldur en var fyrir nokkrum
árum. „Við höfum meðvitað gert sem
minnst af því í gegnum árin að kaupa
flíkur í dökkum litum fyrir útivistarfólk.
Við viljum að fólk skeri sig úr í lands-
laginu þannig að það sjáist vel á mynd-
um og eins að það finnist f ljótt ef eitt-
hvað bjátar á. Við finnum mjög vel fyrir
því að viðskiptavinir eru orðnir opnari
fyrir bjartari litum í dag. Fólk er meira
til í glaða liti.“
Fjallakofinn býður líka upp á gott úrval
af hefðbundnum götuúlpum og regnjökk-
um fyrir daglega notkun, til dæmis fyrir
fólk á leið úr og í vinnu eða í bæjarrölt-
ið. Þar má finna kápur og jakka sem eru
allt frá því að vera þunnar yfirhafnir og
upp í að vera hlýjar dúnfóðraðar og vatns-
heldar skjólflíkur.
Úrval annarra vara
Fjallakofinn selur einnig gott úrval af
skóm, húfum og vettlingum, hlýjum sokk-
um og góðum nærfötum. „Við sjáum til
þess að viðskiptavinir okkar séu vel varðir
og þeim líði sem best, innst sem yst,“ segir
Brandur að lokum.
Utan verslunarinnar í Kringlunni 7
rekur Fjallakofinn tvær aðrar verslanir á
höfuðborgarsvæðinu, eina á Laugavegi 11
og aðra á Reykjavíkurvegi í Hafnarfirði.
Allar nánari upplýsingar má finna á
www.fjallakofinn.is og á Facebook og
Twitter.
Úlpur og jakkar í glöðum litum
Í verslunum Fjallakofans fæst mikið úrval af vönduðum og fallegum yfirhöfnum frá þekktum framleiðendum gæðavöru. Auk þess
býður Fjallakofinn upp á ýmsar vörur aðrar fyrir göngufólk og aðra útivistarunnendur.
„Fyrir þann sem stundar fjallgöngur allan ársins hring er afskaplega mikilvægt að vera í skjólgóðum flíkum sem verja vel,“ segir Brandur Jón Guðjónsson verslunarstjóri.
MYND/STEFÁN
Úlpurnar og
jakkarnir frá
Marmot henta vel
fyrir skrifstofuna,
í skólann, á skíðin
eða til að skreppa
á fjöll.