Fréttablaðið - 16.11.2013, Síða 49
JÓLAKORT | FÓLK | 3
Sif hefur búið til eigin jólakort frá árinu 1984 og breytir um þema hver jól.
„Ég er föndrari af lífi og sál og
handavinnukona,“ sagði Sif þegar
við slógum á þráðinn til hennar.
„Þegar ég byrjaði að föndra
jólakort bjó ég á Mallorca. Ég var
fararstjóri yfir sumartímann en
oft var lítið að gera eftir að ferða-
tímabilinu lauk. Ég var barn-
laus á þessum tíma en bauð oft
vinkonum mínum sem áttu börn
að koma og jólaföndra með mér.
Það var góð afsökun til að föndra
með trölladeig,“ útskýrir Sif sem
bjó á Mallorca í ellefu ár.
„Ég hef alltaf haldið í þennan
sið og kortin hafa þróast með
tímanum. Ég bý núna í Stokk-
hólmi og starfa sem útstillinga-
hönnuður. Haustin eru annatími
hjá mér, sérstaklega fyrir jólin
þegar setja þarf upp jólaskreyt-
ingar. Tíminn til að gera kortin
er því ekki eins mikill og áður
var. Ég ætla alltaf að gera kortin
einföld en það tekst aldrei. Það
fer töluverður tími í að hanna og
föndra jólakort,“ segir Sif sem
býr til sextíu kort fyrir hver jól.
HANDGERÐ KVEÐJA
„Ég hef kynnst fólki víða um
heim og hef gaman af að senda
handgerð kort fyrir jólin. Ég nota
sama þema á öll kortin en þau
eru samt ólík þótt notaður sé
sami pappír. Sumir safna kortun-
um. Ein vinkona mín stillir þeim
öllum upp ofan á eldhúsinnrétt-
ingunni fyrir jólin. Sjálf safna ég
pappír og tek eftir honum hvar
sem ég er á ferðinni. Ég heim-
sæki allar föndurbúðir sem ég sé
og sanka að mér öllu því sem ég
get notað í föndur.“
Eftir ellefu ár á Spáni flutti Sif
til Íslands og bjó hér í tvö ár áður
en hún flutti með eiginmanni sín-
um, Leó Jóhannssyni innanhúss-
arkitekt, húsgagnahönnuði og
kennara, til Svíþjóðar. Hún hefur
starfað sem útstillingahönnuður í
þrettán ár. Hjónin vinna því bæði
með hönnun, form og liti. Það
gerir einnig dóttir Leós, Kolbrún,
sem er hönnuður og innanhúss-
arkitekt í New York. Dóttir Sifjar
og Leós, Sunna Björk, er 15 ára.
TÍMAFREKT FÖNDUR
Vegna anna hefur Sif ekki enn
komist í jólakortagerðina. „Það
er mjög slæmt því það tekur mig
heilan mánuð að föndra þau,“
segir hún. „Ég er að falla á tíma,“
bætir hún við. „Jólakortagerðin
fer fram á kvöldin eftir vinnu. Ég
er stundum að spá í hvort ég eigi
að hætta þessu en ætli ég geri
þetta ekki í tvö ár í viðbót,“ segir
hún. Ættingjar og vinir fá því fal-
lega jólakveðju þessi jólin. „Ég er
með tvær hugmyndir að kortum
núna, önnur er einföld en ég býst
við að sú flóknari verði fyrir val-
inu,“ segir Sif.
Þegar hún er spurð um jóla-
skreytingar í Stokkhólmi þetta
árið svarar hún að þar séu þrír
heimar. „Það er þjóðlegt þema
með sænskum jólasveinum og
jólageit, síðan er það glitter og
glamúr og svo nýmóðins skand-
in avískur hönnunarstíll. Í fyrra
var kopar vinsæll en núna eru
frekar fölir litir,“ segir Sif sem
ætlar að eyða jólunum í New
York en áramótunum á Íslandi.
Sif er með fallega bloggsíðu
– sif-littlesomethings.blogspot.
com.
■ elin@365.is
SNILLINGUR Í
JÓLAKORTAFÖNDRI
FÖNDRARI Sif Úlfarsdóttir er útstillingahönnuður í Stokkhólmi. Hún er afar
listræn en því hafa vinir hennar og ættingjar fengið að kynnast þegar þeir fá
jólakort ár hvert.
ÚTSTILLINGAHÖNNUÐUR
Sif Úlfarsdóttir er afar listræn.
Vinir hennar og ættingjar fá fallega
jólakveðju frá henni fyrir hver jól.
Póstdreifing | Vatnagörðum 22 | 104 Reykjavík | Sími 585 8300 | postdreifing.is
Við sjáum um örugga dreifingu á fjölpósti
Við náum til fjöldans
B
ra
n
de
n
bu
rg
Póstdreifing dreifir fjölpósti sex daga vikunnar til heimila
á stærsta markaðssvæði landsins. Mælingar sýna að 60%
landsmanna skoða fjölpóst og er hann því áhrifarík leið
til að koma skilaboðum um vöru eða þjónustu beint inn
á heimilin. Örugglega til þín.
Nánari upplýsingar veitir söludeild í síma 585 8300.