Fréttablaðið - 16.11.2013, Qupperneq 50
FÓLK|HELGIN
Þetta var virki-lega skemmtileg áskorun og við
erum ánægð með út-
komuna,“ segir Elísa-
bet Ólafsdóttir, bók-
menntafræðingur og
vefstýra, sem skapaði
hinn bráðskemmti-
lega og lærdómsríka
leik Stafina okkar
ásamt fjölskyldu sinni
og ljær honum meðal
annars rödd sína.
Leikurinn er fyrir
spjaldtölvur og snjall-
síma og hefur slegið
í gegn hjá íslensku
smáfólki á síðustu
mánuðum. Því vilja
aðstandendur hans
sýna þakklæti sitt í verki með gefins uppfærslu á leiknum í dag, á
degi íslenskrar tungu.
„Fyrsta myndasafnið sýndi börnum ýmiss konar orð en nú
hefur bæst við stórt myndasafn með alls konar dýrum. Erfiðast
var að finna dýr sem byrjar á stafnum „i“ en Vísindavefurinn kom
til bjargar með dýrin iglur, iktur og ildýr. Ildýrin urðu fyrir valinu
enda skemmtilega myndræn bifdýr alsett litlum hárum,“ útskýrir
Elísabet.
Stafurinn „x“ olli einnig smávegis höfuðverk en niðurstaðan var
að nota orðið uxi.
„Þá ekki eins og í útihátíðinni Uxa, heldur sem annað orð yfir
tudda eða tarf,“ segir Elísabet og hlær. „Íslenskan er rík af fal-
legum og fróðlegum orðum og óþarfi að börnin okkar hafi bara úr
erlendum spjaldtölvuleikjum að
velja. Leikurinn Stafirnir okkar
er nú orðinn tvöfalt skemmti-
legri og okkur fannst kjörið að
kynna þessa skemmtilegu og
ókeypis viðbót við leikinn á degi
íslenskrar tungu,“ segir Elísabet
og tekur fram að leikurinn sé
þegar kominn út fyrir Android en
þegar þetta er skrifað er Apple
að leggja lokahönd á rýnina. „Við
krossum bara putta og vonum að
Apple haldi sig við settan dag.
Það er ekkert smá spennandi!“
Fyrir jólin er væntanlegur nýr leikur frá hópnum sem ber nafnið
Tölurnar okkar.
„Í honum tökumst við á við
tölustafina með skemmtilegum
myndskreytingum,“ segir Elísa-
bet um fróðlegan leik sinn og
skemmtilega barnaskemmtun.
Stafirnir okkar fást í Appstore
og á Google Play. Þeir sem eiga
leikinn nú þegar fá í dag dýrapakk-
ann gefins og þeir sem kaupa leik-
inn eftir uppfærslu fá tvo stafa-
pakka í stað eins.
■ thordis@365.is
STAFRÓF
AF DÝRUM
DAGUR ÍSLENSKRAR TUNGU Í dag er kynnt
ókeypis viðbót við leikinn Stafina okkar sem kom
út í sumar. Bæst hefur við myndasafn sem sýnir dýr
af öllum stærðum og gerðum en erfitt reyndist að
finna dýr fyrir alla stafina.
LEIKGLEÐI Arnaldur Kjárr Arnþórsson er tveggja ára
sonur Elísabetar og Arnþórs. Hann hefur verið hjálplegur
við prófanir á leiknum. MYND/DANÍEL
STAFAFÓLK Þetta fólk er tengt fjölskylduböndum og eru aðstandendur leiksins. Frá
vinstri: Bergrún Íris Sævarsdóttir, myndlistar- og blaðakona, Andri Ómarsson tóm-
stundafræðingur, Arnþór Snær Sævarsson tölvunarfræðingur og Elísabet Ólafsdóttir,
bókmenntafræðingur og vefstýra. MYND/ÚR EINKASAFNI
1. Ávarp
Illugi Gunnarsson, mennta- og menningarmálaráðherra
2. „Ef ég er pirraður þá fer ég kannski í aðeins blóðugri leiki“
– Netnotkun íslenskra ungmenna í 9. og 10. bekk grunnskóla
Hjördís Sigursteinsdóttir, aðjúnkt á hug- og félagsvísindasviði
Háskólans á Akureyri
3. Löggjöf um vernd barna gagnvart skaðlegu efni á Íslandi
og reynsla annarra ríkja
Elfa Ýr Gylfadóttir, fjölmiðlanefnd
4. Ábyrgð foreldra, skóla og samfélagsins gagnvart börnum
og skaðlegu efni
Hrefna Sigurjónsdóttir, Heimili og skóli
5. Tilgangur og gagnsemi vatnaskilareglna og auglýsingabanns.
Sjónarmið frá fjölmiðli
Ari Edwald, forstjóri 365 miðla
ER BARÁTTAN
TÖPUÐ? Er hægt að vernda börn gegn skaðlegu efni í fjölmiðlum og tölvuleikjum?
Pallborð
Páll Magnússon (RÚV)
Snæbjörn Steingrímsson (SMÁÍS)
Fulltrúi frá Ungmennaráði SAFT
Fundarstjóri
Margrét María Sigurðardóttir,
umboðsmaður barna
MÁLÞING FJÖLMIÐLANEFNDAR
OG HEIMILIS OG SKÓLA
Í SAL ÞJÓÐMINJASAFNS ÍSLANDS
20. NÓVEMBER KL.16–18
Ateronon er fyrsta og eina fæðubótarefnið sem inniheldur líffræðilega virkt lycopene. Eitt hylki af Ateronon á dag getur hamlað oxun LDL-
kólesteróls í blóði, um allt að 90% á átta vikum. Virka
efnið í Ateronon er lycopene, öflugt andoxunarefni sem
Miðjarðarhafsmataræði er ríkt af og hefur löngum verið
tengt við gott ástand æðakerfis hjartans. Lycopene
er náttúrulegt andoxunarefni sem finnst í tómötum
og öðrum rauðum ávöxtum. Ateronon var þróað með
það að markmiði að gera náttúrulega vöru sem hefur
skýran, vísindalegan ávinning og jákvæð langtímaáhrif
á líf fólks.
Vísindamenn í Cambridge hafa í samstarfi við mat-
vælafyrirtækið Nestlé uppgötvað nýja leið til að gera
lycopene líffræðilega virkt svo líkaminn geti nýtt það
betur en áður hefur þekkst. Ateronon er einstakt efni
og er einkaleyfisskráð uppgötvun á náttúrulegu efni.
Hömlun oxunar á LDL-kólesteróli er lykillinn að því
að hindra að fyrirstaða myndist í slagæðum. Ateronon
bætir að auki blóðflæði um allan líkamann. Fyrirstaða
í æðum gerir það að verkum að blóð hefur ekki eins
greiða leið út í líkamann og getur valdið heilsutjóni.
Ateronon er auk þess eina fæðubótarefnið sem með
góðum árangri hamlar oxun LDL-kólesteróls og er
staðfest með
rannsóknum.
Ateronon má
taka með lyf-
seðilsskyldum
lyfjum. Það er
unnið á nátt-
úrulegan hátt
og hefur engar
þekktar auka-
verkanir.
Fólk sem þolir
ekki soja, tómata eða mysuprótein getur ekki notað vör-
una. Hylkin innihalda ekki erfðabreytt efni (GMO free).
UMSAGNIR SÉRFRÆÐINGA
„Algjörlega ný leið í meðferð á háu kólesteróli í
blóði.“
Prófessor Anthony Leeds,
stjórnarmaður í HEART UK
„Ateronon virðist hafa áhrif á efnaskipti og
LDL-kólesteról á allt annan hátt en hefðbundin
andoxunarefni. Það er vegna þessarar virkni sem
Ateronon lofar góðu í baráttunni við að minnka
hættuna á hjarta- og æðasjúkdómum til langs
tíma.“
Dr. Howard Sesso,
aðstoðarprófessor í læknisfræði við
Harvard-háskóla í Boston
„Æðakölkun, þrengingar af völdum kólesteróls í
slagæðum, er stór áhættuþáttur þegar til heilablóð-
falls kemur. Við vitum að andoxunaraefnaríkt mat-
aræði er ákjósanlegt til að minnka þrengingarnar
og við fögnum niðurstöðum þessara rannsókna.“
Dr. Peter Coleman,
rannsóknarforstjóri samtaka um
heilablóðfall á Bretlandi
NÁTTÚRULEG LÆKK-
UN KÓLESTERÓLS
ICECARE KYNNIR Fæðubótarefnið Ateronon markar tímamót þegar kemur að
því að viðhalda góðri heilsu hjarta og æðakerfis.
NÝJUNG
Birna Gísladóttir, sölustjóri hjá Icecare, segir
að Ateronon hafi vakið mikla athygli í Bret-
landi. Útsölustaðir Ateronon eru: Apótek,
heilsuverslanir og heilsuhillur stórmarkað-
anna.