Fréttablaðið - 16.11.2013, Page 59
ERUM V
IÐ AÐ
LEITA A
Ð ÞÉR
?
Áhugasamir vinsamlega sæki um á www.byko.is
Umsóknarfrestur er til 24. nóvember n.k.
SÖLUMAÐUR
SPENNANDI
TÆKIFÆRI!
Mikil fjölbreytni ríkir í starfsemi BYKO og við
erum ávallt að leita að góðu fólki. Það fólk sem
við ráðum til starfa þarf að búa yfir hæfileikum
til að starfa sjálfstætt, vera jákvætt og eiga
mjög gott með að vinna með öðrum.
Sölumaður í Lagnaverslun BYKO. Starfið felst í ráðgjöf og
sölu til viðskiptavina. Reynsla af sölumennsku er góður
kostur auk þess sem æskilegt er að viðkomandi hafi
þekkingu á hreinlætistækjum og lagnavörum. Kostur er
að viðkomandi hafi iðnmenntun sem nýtist í starfi.
LAGNAVERSLUN
Í BREIDD LAGNAVERSLUN
Rennismiður
KM stál, snyrtilegur vinnustaður þar sem aðalega er unnið að
hönnun og smíði á vélum, óskar að ráða rennismið eða mann
vanan renni og fræsivinnu.
Upplýsingar gefur Karl Jóhann í síma 692 2680
eða kalli@kmstal.is
Laus er til umsóknar staða þroskaþjálfa við Varmárskóla.
Um tímabundna ráðningu er að ræða, frá áramótum og
fram í júní.
Varmárskóli er 50 ára gamall skóli staðsettur í fallegu
umhverfi við Skólabraut í Mosfellsbæ.
Skólinn er í tveimur byggingum og er með um 700 nem-
endur og 100 starfsmenn. Varmárskóli leggur upp með gildi
Mosfellsbæjar sem eru virðing, jákvæðni, framsækni og
umhyggja. Skólinn er staðsettur í náttúruparadís og lögð er
áhersla á nýtingu umhverfis í námi nemenda.
Skólinn er með glæsilega útikennslustofu og í vor flaggaði
skólinn Grænfánanum í fyrsta skipti.
Helstu verkefni
Starfið felst í hegðunarmótandi vinnu og þjálfun, meðal
annars með einhverfum nemendum í námsveri og bekkjum.
Mikið er unnið í teymisvinnu.
Menntunar- og hæfnikröfur:
• BA gráða í þroskaþjálfafræðum
• Góð samskiptafærni
• Sjálfstæði í vinnubrögðum
• Góð tölvukunnátta
• Áhugi á að vinna með börnum og unglingum
Upplýsingar gefur Hrund Arnardóttur yfirþroskaþjálfi
(hrund@varmarskoli.is) eða Þórhildur Elfarsdóttir
skólastjóri (thorhildur@varmarskoli.is) eða sömu aðilar í
síma 525 0700.
Ráðið verður í starfið frá og með 1. janúar 2014 til og með
6. júní 2014. Í framhaldi verður skoðað hvort þörf verður á
áframhaldandi ráðningu.
Umsóknarfrestur er til mánudagsins 2. desember 2013.
Umsóknir sem greina frá menntun, reynslu og fyrri störfum
skulu sendast á netfangið thorhildur@varmarskoli.is
Laun samkvæmt kjarasamningi ÞÍ og Sambands íslenskra
sveitarfélaga.
Fólk af báðum kynjum er hvatt til að sækja um starfið.
Þroskaþjálfi við Varmárskóla
- tímabundin ráðning
VERKFRÆÐINGUR
Laust er starf verkfræðings í umferðardeild Vegagerðarinnar Í Reykjavík. Um 100% starf er
að ræða. Með tilliti til aldurssamsetningar starfsmanna Vegagerðarinnar er gjarnan tekið
við umsóknum frá yngra fólki með nýleg próf.
UMFERÐARDEILD REYKJAVÍK
Starfssvið
• Greining slysastaða á þjóðvegum og mat á æskilegri forgangsröðun umferðaröryggisaðgerða
• Þátttaka í rannsóknarverkefnum á sviði umferðar- og umferðaröryggismála
• Aðstoð við svörun fyrirspurna sem berast til umferðardeildar
• Þátttaka í öðrum verkefnum deildarinnar eftir því sem þörf er á
Menntunar- og hæfniskröfur
• Háskólapróf í verkfræði. Meistaragráða æskileg.
• Áhugi á umferðar- og umferðaröryggismálum
• Góð íslenskukunnátta
• Kunnátta í ensku
• Kunnátta í a.m.k. einu Norðurlandamáli er æskileg
• Kunnátta í tölfræði
• Nákvæmni og öguð vinnubrögð
• Frumkvæði og hæfni til að vinna sjálfstætt
• Hæfni í mannlegum samskiptum
Vegagerðin er eftirsóknarverður vinnustaður sem hentar jafnt báðum kynjum og í samræmi við starfsmannastefnu
Vegagerðarinnar eru konur með tilskildar hæfniskröfur sérstaklega hvattar til að sækja um starfið.
Laun eru greidd samkvæmt kjarasamningi ríkisins og viðkomandi stéttarfélags.
Umsóknarfrestur er til 2. desember 2013. Umsóknir berist mannauðsstjóra, netfang oth@vegagerdin.is
Í umsókninni komi fram persónulegar upplýsingar ásamt upplýsingum um þá menntun og hæfni sem óskað er eftir, þar með
talin menntunar- og starfsferilsskrá.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Auður Þóra Árnadóttir, forstöðumaður umferðardeildar, í síma 522-1023.
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.
Elskar þú tækni?
tækni
Hefur þú þekkingu á netum og umhverfi þess?
Vegna aukinna verkefna leitar Svar tækni að hæfleika-
ríkum aðila með frábært þjónustuviðhorf og þekkingu
á netkerfum og umhverfi þess.
Starfið felur í sér
- Uppsetningu og rekstur símkerfa og netkerfa
- Uppsetningu og rekstri myndavélakerfa á IP lagi
- Frágangi á lögnum og umhverfi viðskiptavina
- Önnur dagleg þjónustuverkni sem falla til
Hæfnis og menntunarkröfur
- Framúrskarandi viðhorf til þjónustu og mannlegra samskipta
- Þekking og reynsla á Microsoft lausnum
- Snyrtimennska, lagnaþekking og þekking á nethögun
- Áhugi á að tileinka sér nýja tækni og þekkingu
- Símvirki, rafvirki, rafeindavirki eða sambærileg menntun með
áhuga á þekkingu og á netum
Umsóknarfrestur er til og með 25. nóvember 2013.
Umsóknir, með góðri ferilskrá, skal senda á
netfangið umsokn@svar.is