Fréttablaðið - 16.11.2013, Side 63

Fréttablaðið - 16.11.2013, Side 63
Barnaverndarstofa Tvær stöður sérfræðinga við Barnahús Barnaverndarstofa auglýsir lausar til umsóknar tvær stöður sérfræðinga við Barnahús. Meginverksvið sérfræðinganna er á sviði meðferðarviðtala við börn sem eru þolendur kynferðisofbeldis og ráðgjafar við barnaverndarnefndir vegna meintra kynferðisbrota. Jafnframt er gert ráð fyrir að þeir annist rannsóknarviðtöl við börn sem grunur leikur á að séu þolendur ofbeldis. Leitað er eftir sálfræðingum, einstaklingum með meistaragráðu í félagsráðgjöf eða uppeldisfræðum. Reynsla á sviði meðferðar barna og af barnaverndarstarfi æskileg. Megináhersla í meðferðarstarfi Barnahúss er áfallamiðuð hugræn atferlismeðferð en ennfremur er reiknað með að viðkomandi fái þjálfun í rannsóknarviðtölum. Um er að ræða fullt starf og æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf fljótlega. Við ráðningu verður stefna Barnaverndarstofu um jafna stöðu karla og kvenna höfð til hliðsjónar. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Frekari upplýsingar veitir forstöðumaður Barnahúss í síma 530 2500 eða forstjóri Barnaverndarstofu í síma 530 2600. Laun skv. kjarasamningum opinberra starfsmanna. Umsóknir skulu berast til Barnaverndarstofu, Borgartúni 21, 105 Reykjavík eða á netfangið bvs@bvs.is. Umsóknarfrestur er til og með 8. desember nk. Auglýsingin gildir í 6 mánuði frá birtingu Starf safnstjóra Listasafns Einars Jónssonar Mennta- og menningarmálaráðuneytið auglýsir laust til umsóknar starf safnstjóra Listasafns Einars Jónssonar. Um er að ræða 50% starf. Gert er ráð fyrir að ráðið verði í starfið til fimm ára frá 1. janúar 2014, með möguleika á framlengingu ráðningar. Hlutverk Listasafns Einars Jónssonar er að varðveita, sýna og rannsaka verk Einars Jónssonar, halda skrá um verk hans, heimildir um æviferil og fleira er tengist lífi og list listamannsins. Krafist er háskólamenntunar sem nýtist í starfi og staðgóðrar þekkingu á starfssviði safnsins. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf 1. janúar n.k. Laun greiðast samkvæmt gildandi kjarasamningum BHM. Nánari upplýsingar veitir Eiríkur Þorláksson, sérfræðingur á skrifstofu menningarmála. • Umsóknir með ítarlegum upplýsingum um menntun og starfsferil sendist mennta- og menningarmálaráðuneyti, Sölvhólsgötu 4, 101 Reykjavík, eða á netfangið: postur@mrn.is. • Umsóknarfrestur er til 2. desember 2013. • Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Suðurlandsbraut 18, 108 Reykjavík Vegna aukinna umsvifa þurfa Momentum og Gjaldheimtan að bæta við sig öflugum einstaklingum Momentum og Gjaldheimtan bjóða upp á lífleg en um leið krefjandi störf í ört vaxandi umhverfi. Starfsfólk okkar er jákvætt, öflugt og reynslumikið og leitum við eftir nýju fólki sem getur bætt enn frekar við þennan hóp. Umsækjendur sendi ferilskrá á starfsumsokn@momentum.is eigi síðar en þriðjudaginn 26. nóvember 2013. Bent er á upplýsingar um félögin á www.momentum.is og www.gjaldheimtan.is ar gu s INNHEIMTU- FULLTRÚAR Innheimtufulltrúar þurfa að vera jákvæðir og ákveðnir en um leið þjónustulundaðir. Mikilvægt er að þeir hafi ríkan vilja til að aðstoða viðskiptavini okkar við að leysa úr málum sem sum hver geta verið erfið úrlausnar. Gerð er krafa um góða almenna menntun en einkum verður horft til starfsreynslu umsækjanda. Bókari Framleiðslufyrirtæki á höfuðborgarsvæðinu óskar eftir bókara í 50% starf. Um er að ræða afleysingar í eitt ár vegna fæðingarorlofs. Viðkomandi þarf að hafa reynslu af færslu bókhalds í Navision, skil á vsk, vörugjöldum og afstemmingum. Umsóknir skulu sendar á pb@vrg.is Til hvers að auglýsa ? Ef þú auglýsir sjálf-/ur eftir starfsmanni eyðir þú verulegum tíma í úrvinnslu innsendra umsókna. Okkar styrkur er öflugur gagnabanki og yfir tveggja áratuga reynsla við að þjónusta fyrirtæki við leit að starfsmanni. Sparaðu þér tíma, kostnað og fyrirhöfn - leitaðu aðstoðar fagmanna með langvarandi reynslu af ráðningarmálum. STRÁ Starfsráðningar ehf. - Suðurlandsbraut 30 - sími 588-3031 stra@stra.is - gudny@stra.is - www.stra.is. Með starf fyrir þig Starfsemi STRÁ ehf. býr að aldarfjórðungs reynslu og þekkingu á sviði starfs- manna- og ráðningarmála en stofan hefur unnið fyrir mörg helstu og leiðandi fyrirtæki landsins um árabil. Rík áhersla er lögð á trúnað varðandi vörslu gagna og upplýsinga bæði gagnvart umsækjendum, sem og vinnuveitendum. Ánægðir viðskiptavinir til margra ára hafa notið þjónustu STRÁ, en stofan hefur jafnframt umsjón með ráðningum í sérfræði- og stjórnunarstöður. www.stra.is
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.