Fréttablaðið - 16.11.2013, Blaðsíða 63
Barnaverndarstofa
Tvær stöður sérfræðinga
við Barnahús
Barnaverndarstofa auglýsir lausar til umsóknar tvær stöður
sérfræðinga við Barnahús. Meginverksvið sérfræðinganna
er á sviði meðferðarviðtala við börn sem eru þolendur
kynferðisofbeldis og ráðgjafar við barnaverndarnefndir vegna
meintra kynferðisbrota.
Jafnframt er gert ráð fyrir að þeir annist rannsóknarviðtöl við
börn sem grunur leikur á að séu þolendur ofbeldis. Leitað
er eftir sálfræðingum, einstaklingum með meistaragráðu í
félagsráðgjöf eða uppeldisfræðum. Reynsla á sviði meðferðar
barna og af barnaverndarstarfi æskileg. Megináhersla
í meðferðarstarfi Barnahúss er áfallamiðuð hugræn
atferlismeðferð en ennfremur er reiknað með að viðkomandi
fái þjálfun í rannsóknarviðtölum.
Um er að ræða fullt starf og æskilegt er að viðkomandi
geti hafið störf fljótlega. Við ráðningu verður stefna
Barnaverndarstofu um jafna stöðu karla og kvenna höfð til
hliðsjónar. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun
um ráðningu hefur verið tekin.
Frekari upplýsingar veitir forstöðumaður Barnahúss í síma
530 2500 eða forstjóri Barnaverndarstofu í síma 530 2600.
Laun skv. kjarasamningum opinberra starfsmanna.
Umsóknir skulu berast til Barnaverndarstofu, Borgartúni 21,
105 Reykjavík eða á netfangið bvs@bvs.is.
Umsóknarfrestur er til og með 8. desember nk.
Auglýsingin gildir í 6 mánuði frá birtingu
Starf safnstjóra Listasafns
Einars Jónssonar
Mennta- og menningarmálaráðuneytið auglýsir laust til
umsóknar starf safnstjóra Listasafns Einars Jónssonar.
Um er að ræða 50% starf. Gert er ráð fyrir að ráðið verði í
starfið til fimm ára frá 1. janúar 2014, með möguleika á
framlengingu ráðningar.
Hlutverk Listasafns Einars Jónssonar er að varðveita, sýna
og rannsaka verk Einars Jónssonar, halda skrá um verk
hans, heimildir um æviferil og fleira er tengist lífi og list
listamannsins.
Krafist er háskólamenntunar sem nýtist í starfi og
staðgóðrar þekkingu á starfssviði safnsins.
Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf 1. janúar n.k.
Laun greiðast samkvæmt gildandi kjarasamningum BHM.
Nánari upplýsingar veitir Eiríkur Þorláksson, sérfræðingur á
skrifstofu menningarmála.
• Umsóknir með ítarlegum upplýsingum um menntun og
starfsferil sendist mennta- og menningarmálaráðuneyti,
Sölvhólsgötu 4, 101 Reykjavík, eða á netfangið:
postur@mrn.is.
• Umsóknarfrestur er til 2. desember 2013.
• Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um
ráðningu hefur verið tekin.
Suðurlandsbraut 18, 108 Reykjavík
Vegna aukinna umsvifa þurfa Momentum og
Gjaldheimtan að bæta við sig öflugum einstaklingum
Momentum og Gjaldheimtan bjóða upp á lífleg en um leið krefjandi störf í ört
vaxandi umhverfi. Starfsfólk okkar er jákvætt, öflugt og reynslumikið og leitum
við eftir nýju fólki sem getur bætt enn frekar við þennan hóp.
Umsækjendur sendi ferilskrá á starfsumsokn@momentum.is
eigi síðar en þriðjudaginn 26. nóvember 2013.
Bent er á upplýsingar um félögin á www.momentum.is og www.gjaldheimtan.is
ar
gu
s
INNHEIMTU-
FULLTRÚAR
Innheimtufulltrúar þurfa að vera jákvæðir og ákveðnir en
um leið þjónustulundaðir. Mikilvægt er að þeir hafi ríkan
vilja til að aðstoða viðskiptavini okkar við að leysa úr
málum sem sum hver geta verið erfið úrlausnar. Gerð er
krafa um góða almenna menntun en einkum verður horft
til starfsreynslu umsækjanda.
Bókari
Framleiðslufyrirtæki á höfuðborgarsvæðinu
óskar eftir bókara í 50% starf.
Um er að ræða afleysingar í eitt ár vegna fæðingarorlofs.
Viðkomandi þarf að hafa reynslu af færslu bókhalds í
Navision, skil á vsk, vörugjöldum og afstemmingum.
Umsóknir skulu sendar á pb@vrg.is
Til hvers að auglýsa ?
Ef þú auglýsir sjálf-/ur eftir starfsmanni eyðir þú verulegum tíma
í úrvinnslu innsendra umsókna.
Okkar styrkur er öflugur gagnabanki og yfir tveggja áratuga reynsla við að
þjónusta fyrirtæki við leit að starfsmanni.
Sparaðu þér tíma, kostnað og fyrirhöfn - leitaðu aðstoðar
fagmanna með langvarandi reynslu af ráðningarmálum.
STRÁ Starfsráðningar ehf. - Suðurlandsbraut 30 - sími 588-3031
stra@stra.is - gudny@stra.is - www.stra.is.
Með starf
fyrir þig
Starfsemi STRÁ ehf. býr að
aldarfjórðungs reynslu og
þekkingu á sviði starfs-
manna- og ráðningarmála
en stofan hefur unnið fyrir
mörg helstu og leiðandi
fyrirtæki landsins um
árabil.
Rík áhersla er lögð á trúnað
varðandi vörslu gagna og
upplýsinga bæði gagnvart
umsækjendum, sem og
vinnuveitendum.
Ánægðir viðskiptavinir til
margra ára hafa notið
þjónustu STRÁ, en stofan
hefur jafnframt umsjón
með ráðningum í sérfræði-
og stjórnunarstöður.
www.stra.is