Fréttablaðið - 16.11.2013, Qupperneq 86
16. nóvember 2013 LAUGARDAGUR| HELGIN KRAKKAR | 54
Heilabrot
Brandarar
Kemst fólk í stuð við að lesa
nýju bókina þína? Yfirleitt er
fólk komið í stuð þegar það
byrjar að lesa! En bókin ætti að
hjálpa gífurlega.
Hver er uppáhaldsleikurinn
þinn? Þeir eru reyndar margir
en leikurinn „Hver er maður-
inn?“ er svona eins og kjúkling-
ur! Kannski ekki uppáhalds, en
maður er alltaf til í hann.
Finnst þér krakkar leika sér
of mikið í tölvuleikjum? Bæði
og. Þegar ég var að stækka,
eða vaxa, eða svoleiðis, þá var
ekki mikið um tölvur og tölvu-
leiki. Nú er þetta úti um allt svo
það er gott að hafa varann á og
passa upp á að fá ferskt loft í
búkinn og heilann.
Hvað finnst þér best að gera
þegar þér leiðist? Fara í tölvu-
leik! Djók! Það er smákafli í
bókinni þar sem ég fer yfir það
hvað er hægt að gera ef manni
leiðist alveg ógurlega, eins og
til dæmis að breyta herberg-
inu sínu, eða teikna mynd og
lita, klippa hana svo í sundur og
púsla henni saman! Eða smakka
eitthvað í ísskápnum sem
maður hefur aldrei smakkað.
Hélst þú dagbók þegar þú varst
lítill? Já, og ég skrifaði yfir-
leitt bara um eitthvað sem mér
fannst fyndið, sniðugt eða asna-
legt. Eins og þegar við vorum að
skutla ömmu upp á flugvöll og
ég var alveg að pissa í mig og
pabbi varð að stoppa og ég fór
út að pissa og það var svo mikið
rok og það var sama hvernig ég
sneri: pissið fauk allt á mig og ég
settist inn í bíl rennblautur.
Ertu hrekkjusvín? Ja, jájá.
Kannski ekki svín, en svona
hrekkjuhvolpur.
Hvað finnst þér skemmti-
legast að elda eða baka? Mér
finnst eiginlega skemmtileg-
ast að poppa, en ég veit ekki
hvort það er bakstur eða elda-
mennska.
Hvað þarf maður að vera
orðinn gamall til að byrja að
ganga í jakkafötum og drögt-
um? Um leið og maður hættir
að vera skemmtilegur, þá má
maður byrja á því!
Segðu okkur einn brandara?
Þessi er í uppáhaldi hjá mér
núna:
Maður: Jæja, hvað ertu með
margar kindur hérna?
Bóndi: Ég veit það ekki, ég
sofna alltaf þegar ég byrja að
telja.
Hvenær kemur næsta bíó-
mynd um Sveppa? 2015. Von-
andi. Kannski.
Ég er hrekkjuhvolpur
Sveppi er búinn að gefa út Stuðbók þar sem hann segir frá uppáhaldsleikjunum
sínum, kemur með hugmyndir að tómstundum og margt fl eira. Þegar honum
leiðist fi nnst Sveppa best að breyta herberginu sínu og teikna mynd og lita.
STUÐBOLTI Sveppa finnst mikilvægt að krakkar fái ferskt loft í búkinn og heilann. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Bragi Halldórsson
70
„Þar fór í ver,“ sagði Konráð. „Okkur liggur á en þurfum að komast í gegnum
þetta völundarhús fyrst.“ Hann dæsti og bætti við vonsvikinn, „við verðum of sein.“
Getur þú hjálpað félögunum að komast í gegnum þetta völundarhús?
Einu sinni var Óli uppi í herberginu sínu að leika sér. Þá kallaði mamma hans
til hans: „Óli minn. Viltu heita samloku?“ Þá svaraði Óli: „Nei, ég vil bara
heita Óli.“
Einu sinni kom maður og bankaði á hurð. Lítil stúlka fer til dyra. Hún ræðir
við manninn og hleypur svo til mömmu sinnar og segir: „Mamma, mamma!
Það er maður í dyrunum að safna fyrir nýrri sundlaug. Má ég gefa honum
vatnsglas?“
Einu sinni kom skjaldbaka á lögreglustöð og sagði örvæntingarfull: „Hjálp,
hjálp! Það var agalegt sniglagengi sem réðst á mig.“ Lögreglan biður hana
um nánari útskýringar og þá segir skjaldbakan: „Ég veit það ekki, þetta
gerðist allt svo hratt.“
Veistu hvað ljóskan sagði þegar hún sá krókódílinn: „Nei, sko. Lacoste-
svefnpoki.“
Batmanprinsessan grínast
Saga Garðarsdóttir leikkona fékkst til þess að deila nokkrum af upp-
á haldsbröndurum sínum með yngstu lesendum Fréttablaðsins.
Fátt er skemmtilegra fyrir káta krakka en að fara út í leik með
öðrum krökkum úr götunni. Slíkir leikir þurfa hvorki að vera flóknir
eða dýrir. Nóg er að hafa einn brennibolta eða jafnvel bara gamla spýtu
sem maður finnur á förnum vegi. Einn skemmtilegur útileikur heitir ein-
mitt Fallin spýta. Svona fer hann fram:
Einn úr hópnum er valinn til að bíða hjá spýtu sem er stillt upp
við vegg. Hann byrjar á því að telja upp að tuttugu. Allir aðrir þátttak-
endur hlaupa í burtu og fela sig. Markmiðið er að finna alla sem földu sig.
Ef hann sér einhvern, hleypur hann að spýtunni og kallar hátt og snjallt:
„Fallin spýta fyrir Jóni/Gunnu, einn, tveir, þrír“ og er þá viðkomandi úr
leik. Þeir sem földu sig reyna aftur á móti að komast að spýtunni á undan
þeim sem leitar og ef einhverjum tekst það kastar hann spýtunni upp í
loftið og kallar: „Fallin spýta fyrir öllum!“ og með því frelsar hann alla.