Fréttablaðið - 16.11.2013, Page 104
16. nóvember 2013 LAUGARDAGUR| MENNING | 72
„Sveinn Torfi er spes náungi þannig að ég var með
hálfgerðan aulahroll allan tímann sem ég var að leika
í seríunni. En ég kann voðalega vel við hann. Hann
er sætt grey sem meinar vel. Hann bara kemur sér
í vandræði með því að flækja allt,“ segir leikarinn
Rúnar Freyr Gíslason. Hann er búinn að horfa spennt-
ur á seríuna síðustu vikur og ætlar ekki að missa af
lokaþættinum á sunnudag.
„Mér finnst gaman að horfa á þetta og ég veit ekk-
ert hvað gerist nema bara í mínum senum. Ég veit
ekkert hvernig þetta endar en auðvitað veit ég hver
örlög minnar persónu eru. Ég held að fólk eigi eftir að
gaman af því,“ segir Rúnar. Konan hans á hins vegar
erfitt með að horfa á sinn heittelskaða á skjánum.
„Konan mín getur ekki horft á þetta. Hún lætur í
alvöru teppi yfir andlitið á sér og á erfitt með að horfa
á mig nokkrar mínútur eftir þátt. Vinkonur hennar
eru líka búnar að vera að spá hvort ég sé svona í
alvörunni,“ bætir Rúnar við léttur í bragði. Hann er
ánægður með velgengni seríunnar.
„Það eru margir að tala mjög vel um þættina og
margir sem vona að þriðja serían verði búin til. Það er
gaman þegar vel gengur – það er alls ekki sjálfgefið.“
liljakatrin@frettabladid.is
Konan getur ekki
horft á þættina
Síðasti þáttur í annarri seríu af Ástríði fer í loft ið á sunnudaginn á Stöð 2. Leikar-
inn Rúnar Freyr Gíslason leikur Svein Torfa og lýsir Rúnar honum sem sætu
greyi. Hann segir hins vegar að kona sín geti ómögulega horft á hann á skjánum.
BÍÐUR SPENNTUR Rúnar getur ekki beðið eftir að horfa á lokaþátt Ástríðar 2 á
sunnudag. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
SÆT SAMAN Rúnar Freyr og leikkonan
Þóra Karítas Árnadóttir leika par í seríunni.
HVAÐ ER AÐ GERAST HÉR? Leikarar
sprella á setti.
KÓSÍHEIT Kjartan Guðjónsson, Guðbjörg Thoroddsen og Ilmur Kristjánsdóttir
samrýmd á setti.
SÆTIR SAMAN Kjartan Guðjónsson og
Björn Hlynur Haraldsson slaka á.
Hemma Gunn minnst
Mannmargt var í útgáfuteiti bókarinnar Sonur
þjóðar eft ir Orra Pál Ormarsson, sem fj allar um líf og
störf hins ástsæla Hermanns Gunnarssonar, sem lést
fyrr á þessu ári.
BÖRNIN HANS HEMMA Þórður Norðfjörð, Eva Laufey, Edda og Sigrún brostu sínu
blíðasta í útgáfuteitinu. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
ÆSKUVINUR OG HÖFUNDUR
Sveinn Guðjónsson, æskuvinur Hemma,
ásamt Orra Páli Ormarssyni.
VINIR HEMMA Halldór í Henson,
stórvinur Hemma, og Guðleifur Long.
FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
Hermann, sem flestir þekkja
betur sem Hemma Gunn, hafði
einstakt lag á að sjá það spaugi-
lega í tilverunni en líf hans var
enginn dans á rósum. Hann lenti
snemma í klóm Bakkusar, upplifði
einelti og missti ástina í lífi sínu
snemma á lífsleiðinni. Hann var
afreksmaður í íþróttum og einn
vinsælasti skemmtikraftur og
fjölmiðlamaður landsins. Vinna
við bókina hófst í mars 2012 en
auk frásagnar Hemma sjálfs
segja tæplega þrjátíu samferða-
menn hans frá kynnum sínum af
honum.