Fréttablaðið - 16.11.2013, Blaðsíða 113
LAUGARDAGUR 16. nóvember 2013 | SPORT | 81
FÓTBOLTI „Leikmennirnir spiluðu
frábærlega. Þið getið valið
lýsingarorðin. Ég á þau ekki til að
lýsa frammistöðu þeirra,“ sagði
Lars Lagerbäck að leik loknum.
Þjálfarinn hvatti blaðamenn til
að beina spurningum til Heimis
Hallgrímssonar því tilfinningar
sínar væru svo blendnar. Þær
sneru ekki síst að dómara leiksins,
Alberto Undiano, sem átti að hans
mati ekki sinn besta dag.
„Dómarinn átti ekki sinn besta
leik og það hjálpaði Króötum. Við
vorum óheppnir með dómgæsluna,“
sagði sá sænski.
Lagerbäck sagðist ekki geta lagt
mat á hvort rauða spjaldið á Ólaf
Inga hefði verið réttur dómur.
„Ég þyrfti að sjá það í sjónvarpi.
Hins vegar voru margar skrýtnar
ákvarðarnir, 50/50 dómar sem féllu
ekki með okkur.“
Lagerbäck sagðist vera ánægður
með úrslitin í ljósi stöðunnar sem
upp var komin.
„Ég sagði fyrir leikinn að ef við
héldum hreinu í þessum leik þá
ættum við góða möguleika. Það er
enn raunhæft að sigra þá,“ sagði
Lagerbäck.
Svíinn sagðist reikna með að Kol-
beinn Sigþórsson, sem fór meidd-
ur af velli undir lok fyrri hálf-
leiks, færi í myndatöku á morgun.
Hann hefði snúið á sér ökklann.
Ekki yrði kallaður nýr leikmað-
ur inn í hópinn í stað framherjans
enda myndi Birkir Már Sævarsson
snúa aftur úr leikbanni. Lagerbäck
sagði frammistöðu liðsins í síðari
hálfleik, manni færri, hafa verið í
heimsklassa. Ef liðið spilaði vel í
síðari leiknum, líkt og til dæmis í
sigurleiknum gegn Albaníu í sept-
ember, þá væri góður möguleiki á
að fara áfram.
- ktd
Vorum óheppnir með dómgæsluna
Lars Lagerbäck átti erfi tt með að fi nna lýsingarorðin um frammistöðu strákanna
ÓSÁTTUR VIÐ DÓMARANN Lars Lagerbäck í leiknum í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
FÓTBOLTI Gylfi Þór Sigurðsson
segir að Ólafur Ingi Skúlason
hafi tekið rétta ákvörðun þegar
hann kippti Króatanum Ivan
Perisic niður í upphafi seinni
hálfleiksins í gær. Ólafur Ingi
fékk að launum rauða spjaldið.
„Hann [Perisic] var kominn í
gegn og Óli sýndi hversu reyndur
hann er með því að brjóta á
honum. Óli var kannski í erfiðri
stöðu þegar sóknin hófst en
ákvörðunin var rétt.“
Kolbeinn Sigþórsson meiddist í
gær og er ólíklegt að hann verði
með í seinni leiknum sem fer
fram í Króatíu á þriðjudaginn.
„Sem betur fer erum við með nóg
af góðum leikmönnum sem geta
komið inn og staðið sig vel. Það
var til dæmis ekki leiðinlegt að
geta náð í leikmann eins og Eið
Smára inn af bekknum.“ - esá
Rétt hjá Óla
ERFITT Gylfi Þór Sigurðsson í leiknum
í gærkvöldi. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
FÓTBOLTI Úkraína, Grikkland
og Portúgal unnu sína leiki í
umspilinu í gærkvöldi og taka
Grikkir og Úkraínumenn með
sér tveggja marka forskot í
seinni leikinn. Cristiano Ronaldo
var hetja Portúgala þegar hann
skoraði eina markið í 1-0 sigri á
Svíum. Ronaldo var hársbreidd
frá því að bæta við marki
skömmu eftir sigurmarkið.
Úkraínumenn eru í fínum málum
eftir 2-0 sigur á Frakklandi í
kvöld í fyrri umspilsleik þjóð-
anna um laust sæti á HM í Brasi-
líu. Frakkar eiga því á brattann
að sækja í seinni leiknum
Grikkland vann 3-1 sigur á Rúm-
eníu. Grikkir komust í 1-0 strax
á 14. mínútu leiksins en Rúmenar
skoruðu mikilvægt útivallarmark
og jöfnuðu metin aðeins fimm
mínútum síðar. Grikkir tryggðu
sér sigur með tveimur mörkum.
Konstantinos Mitroglou skoraði
tvö mörk fyrir Grikki. - óój
Frakkar ekki í
góðum málum
HETJA PORTÚGALA Cristiano Ronaldo
skoraði mikilvægt mark í gær. MYND/AP
Hvað felst í Skráargatinu?
Skráargatið er opinbert samnorrænt merki sem finna má á umbúðum
matvara sem uppfylla ákveðin skilyrði varðandi samsetningu næringarefna.
Veldu Skráargatið
Markmiðið með Skráargatinu er að neytendur geti á einfaldan hátt
valið hollari matvöru.
Lestu meira um
Skráargatið á
skraargat.is