Fréttablaðið - 18.12.2013, Blaðsíða 10

Fréttablaðið - 18.12.2013, Blaðsíða 10
18. desember 2013 MIÐVIKUDAGUR| FRÉTTIR | GETRAUNIR Annar vinningshafanna í Lottóinu um síðustu helgi hefur gefið sig fram við Íslenska getspá. Fjölskyldumaður á fertugsaldri hafði keypt miðann sinn á lotto.is og var pollrólegur þegar hann mætti og náði í sjötíu milljóna króna mið- ann sinn. „Vinningshafinn spilar oft með í Lottó og Lengjunni og kaupir mið- ana sína á lotto.is . Á föstudaginn fór hann inn á lotto.is líkt og oft áður og átti rúmlega 500 krónur inni á spilareikningnum sínum. Hann valdi þrjár raðir í Lottó og veitti því athygli að hann hefði efni á að kaupa eina röð í viðbót sem hann gerði,“ kemur fram í tilkynningu frá Íslenskri getspá. „Á þessum tímapunkti velti hann því fyrir sér að hætta við kaupin og bæta við upphæð inn á reikning- inn til að geta keypt tíu raða seðil. Þá mundi hann eftir að hann hafði einu sinni keypt Lengjumiða og látið ógilda hann og breytt einum leik. Ef hann hefði ekki breytt þeim leik hefði hann unnið á miðann og því ákvað hann að kaupa þessar fjórar raðir. Það var nóg því það var ein- mitt fjórða röðin sem var með allar fimm tölurnar réttar.“ Foreldrar vinningshafans eru við það að missa heimili sitt og fyrsta verk hans verður að bjarga þeim. Hinn vinningshafinn í Lottóinu á enn eftir að gefa sig fram og sækja sjötíu milljónirnar sínar. Sá miði var keyptur á bensínstöð Select á Bústaðavegi. - fb Annar vinningshafanna í Lottóinu hefur gefið sig fram við Íslenska getspá: Ætlar að bjarga foreldrunum FRAMKVÆMDASTJÓRI Stefán Kon- ráðsson er framkvæmdastjóri Íslenskrar getspár. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN VINNINGASKRÁ Hausthappdrætti 2013. Dregið 16. desember 2013 1. vinningur: Chervrolet Captiva LT,2,2l. Diesel, sjálfskiptur. Nýr bíll frá Bílabúð Benna. Verðmæti kr. 6.490.000 48607 2. vinningur: Chervrolet Cruze LT 1,8l. beinskiptur. Nýr bíll frá Bílabúð Benna. Verðmæti kr. 2.990.000 81368 3. vinningur: Chervrolet Spark LT 1,2l. beinskiptur. Nýr bíll frá Bílabúð Benna. Verðmæti kr. 2.090.000 61514 4 - 43. vinningur: Ferðavinningar að með leiguflugi frá Heimsferðum. Hver að verðmæti kr. 500.000 5453 17237 43604 62237 78274 97637 118564 130614 10158 23806 47585 63599 78956 101757 120935 131059 10526 30809 48385 71581 85980 116175 121398 138872 11883 32883 50340 72338 86045 117138 127324 150337 16529 40370 61781 72975 93977 117520 127360 153035 44 - 103. vinningur Ferðavinningar með leiguflugi frá Heimsferðum. Hver að verðmæti kr. 300.000 404 22239 62561 74480 99787 135124 8746 27472 63727 74540 101679 137086 9406 28224 64623 75692 105555 137292 12368 35596 64629 76201 105617 139954 12681 36181 66737 86093 105800 140799 15374 48561 67756 86377 108626 142817 15463 53613 68609 90079 111216 144671 18531 56161 69889 90621 111337 148785 19599 61511 69980 93980 117886 150244 21362 62238 72015 94155 120683 153216 104 - 143. vinningur: Apple MacBook Air 11” 128 GB. Hver að verðmæti kr. 189.990 440 17358 38045 59848 75470 103848 116352 138834 3804 18895 44906 66828 80853 105600 119727 143321 9582 21861 47135 68358 82818 112974 124418 148152 14753 30881 48709 71526 83144 114905 128461 148626 16618 38001 51274 74117 93419 115715 130252 149771 144 - 203. vinningur Apple iPad Mini, 4G, 32GB. Verðmæti kr. 114.990 629 21536 56244 86981 107923 123357 1651 27095 56863 91345 110088 123567 5483 29246 57163 92812 110298 123870 7100 30240 69903 96485 110485 127574 7509 33647 74765 96916 114205 128784 15166 34653 80626 100378 115532 135257 16943 37811 82982 104811 116121 137920 19475 42755 83351 105058 117415 142479 20281 51548 83794 105513 120811 144245 20546 53953 85586 106709 122705 146432 Vinninga ber að vitja innan árs á skrifstofu Blindraafélagsins, Hamrahlíð 17. Upplýsingasími 525 0000. Birt án ábyrgðar 16 m. 1.9 m. 0.4 m. 2 m. 5.9 m. 7.6 m. 4.8 m. 3.1 m. 2 m. 5 m. 3 m. 0.5 m. $6.5 ma. $390 m. $169 m. $247 m. $406 m. $995 m. $1.1 ma. $591 m. $832 m. $928 m. $791 m. Sjóðir sem SÞ telja nauðsynlega árið 2014 Sýrland og nágrannaríki Palestína Afganistan Mjanmar* Haítí Mið- Afríkulýðveldið Súdan Kongó- lýðveldið Suður- Súdan Sómalía (Egyptaland, Írak, Jórdanía, Líbanon, Tyrkland) HJÁLPARSTARF Sameinuðu þjóðirnar og samstarfsstofnanir þeirra munu biðja um tæpa þrettán milljarða Bandaríkjadala, að jafngildi um 1.500 milljarða íslenskra króna, til að standa undir kostnaði við hjálpar- starf um heim allan. Um helmingi fjárins verður varið í neyðaraðstoð vegna borgarastyrjaldarinnar í Sýr- landi, sem er hæsta upphæð sem óskað hefur verið eftir til eins neyð- artilfellis. Enda eru átta milljónir manna hjálparþurfi vegna átakanna sem hafa staðið frá vorinu 2011. Valerie Amos, mannréttindastjóri Sameinuðu þjóðanna, tilkynnti þetta á fundi í Genf á þriðjudag, en und- irstrikaði að ástandið reyndi veru- lega á viðbragðsgetu alþjóðasam- félagsins. Hjálparsamtök miða að því að koma aðstoð til um 52 milljóna manna í sautján löndum á komandi ári. Allt þetta fólk þarfnast nær- ingar, húsaskjóls og heilbrigðis- þjónustu. Hættan er víða mikil þar sem 35 milljónir manna eru til að mynda á flótta eða vergangi bara í Sýrlandi, Jemen og á Filippseyjum og ástandið í Mið-Afríkulýðveldinu, þar sem hundruð þúsunda manna hafa hrakist frá heimilum sínum, er slæmt. „Ég hef séð fólk í hrika- legum aðstæðum í Mið-Afríkulýð- veldinu, Jemen, á hörmungasvæð- unum á Filippseyjum og enn víðar í þeim löndum sem ég hef heimsótt í ár,“ sagði Amos. „Það er erfitt að koma orðum að þeirri örvæntingu sem ríkir þar en líka þeirri reisn sem þetta fólk sýnir þegar það stendur frammi fyrir erf- iðum aðstæðum. Við reiðum okkur á áframhaldandi stuðning frá okkar samstarfsaðilum til að vinna að því að bjarga lífum og styðja við þær milljónir sem eiga um sárt að binda.“ Alls vinna 568 hjálparsamtök með 1.500 milljarða er þörf til hjálparstarfs Talsmenn Sameinuðu þjóðanna segja að alls sé þörf á jafngildi 1.500 milljarða ís- lenskra króna til að bregðast við neyð um allan heim. Helmingur fer til Sýrlands. Aldrei hefur verið beðið um meira fé, en 52 milljónir manna eru nú hjálparþurfi. Fjörutíu daga þjóðarsorg á Fil- ippseyjum lauk í gær eftir yfirreið fellibyljarins Hayians sem kostaði þúsundir manna lífið. Enn ríkir þar neyðarástand og eru meðal annars 1,4 milljónir barna á vergangi á hörmungasvæðinu. UNICEF hefur unnið mikið að málefnum barna og til dæmis hafa samtökin komið upp tímabundn- um skólastofum fyrir þúsundir barna. Söfnun á vegum UNICEF úti um allan heim hefur gengið vel, ekki síst hér á Íslandi þar sem 23 milljónir hafa safnast, að sögn Sigríðar Víðis Jónsdóttur, kynn- ingarfulltrúa UNICEF á Íslandi. 23 milljónir hafa safnast fyrir Filippseyjar KLESST‘ANN Anthony Lake, framkvæmdastjóri UNICEF, heimsótti hörmungasvæðin á Filippseyjum í vikunni og hitti meðal annars þessa krakka sem brostu þrátt fyrir erfiðar aðstæður. MYND/UNICEF flóttamannahjálpinni í fyrrnefnd- um verkefnum og segir Amos að árið sem er fram undan verði afar krefjandi. „Fjöldi þeirra sem hafa hrakist frá heimilum sínum er í hámarki og það er afar mikilvægt að hjálpar- samtök geti brugðist við af krafti,“ sagði Antónío Guterres, flótta- mannafulltrúi Sameinuðu þjóðanna. Á þessu ári söfnuðust um átta milljarðar Bandaríkjadala til neyðaraðstoðar, sem er það mesta sem safnast hefur. Fyrra met var í fyrra þegar um 7,2 milljarðar söfn- uðust. Þrátt fyrir örlæti gefenda ná framlög sjaldnast meira en 60 prósentum af því fjármagni sem leitast er eftir að safna. thorgils@frettabladid.is Sþ hafa biðlað til alþjóðasamfélagsins um að fá nær fjórtán milljarða dala til neyðaraðstoðar um heim allan. Helmingi þeirrar upphæðar verður varið til aðstoðar vegna borgarastyrjaldarinnar í Sýrlandi. Sameinuðu þjóðirnar leita eftir 13-14 milljörðum dala til hjálparstarfs 2014 Fjöldi fólks í neyð Filippseyjar Heimild: OCHA *nauðsynlegir fjármunir munu liggja fyrir í janúar. (c) Graphic News Jemen 10
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.