Fréttablaðið - 18.12.2013, Blaðsíða 16

Fréttablaðið - 18.12.2013, Blaðsíða 16
18. desember 2013 MIÐVIKUDAGUR16 19 Búið að tala um fjár-aukalög í 19 klukkustundir2 þingfundadagar eftir til jóla samkvæmt starfsáætlun 52 stjórnar-frumvörp bíða af-greiðslu 80 Umræða um fjárlög á síðasta ári tók rúmar 80 klukkustundir STJÓRNARFRUMVÖRP SEM BÍÐA AFGREIÐSLU ● Fjárlög 2014 ● Fjáraukalög ● Tekjuaðgerðir fjárlagafrum- varps 2014 ● Frestun nauðungarsölu ● Brottfall laga um náttúruvernd ● Stjórn fiskveiða (aflahlut- deildir í rækju) ● Siglingavernd o.fl. (hert öryggismál í flugi og á hafnarsvæðum) ● Fjárhagsaðstoð vegna gjald- þrotaskipta (skiptakostn- aður) ● Lífsýnasöfn (söfn heilbrigðis- upplýsinga og leitargrunnar) ● Almenn hegningarlög (kynvitund) ● Sveitarstjórnarlög (eignar- hlutir í orkufyrirtækjum) ● Dýrasjúkdómar og varnir gegn þeim ● Svæðisbundin flutnings- jöfnun Kunnugleg staða er komin upp á Alþingi nú þegar aðeins tveir þing- fundadagar eru eftir til jóla. Enn á eftir að afgreiða frumvarp ríkis- stjórnarinnar til fjáraukalaga og fjárlagafrumvarpið. Alls bíða 52 stjórnarfrumvörp afgreiðslu en í heild hefur Alþingi afgreitt sjö laga- frumvörp á yfirstandandi þingi. Stjórnarandstaðan á hverjum tíma hefur nýtt sér þann þrýsting sem myndast í kringum afgreiðslu fjárlaga í lok hvers árs til að skapa sér samningsstöðu gagnvart stjórn- arflokkunum. Þannig var talað um fjárlög í rúmar 80 klukkustundir á Alþingi í fyrra en umræðu lauk 20. desember. Björn Valur Gísla- son, þáverandi þingmaður Vinstri grænna, og Lúðvík Geirsson, þáver- andi þingmaður Samfylkingarinnar, sökuðu þá stjórnarandstöðuna um málþóf með allóvenjulegum hætti þegar þeir gengu fram fyrir ræðu- stól með skilti í hendi. Þó málþóf- ið sé umdeilt er það engu að síður viðurkennd aðferð sem stjórnarand- stæðingar á hverjum tíma nota til að koma sínum áherslum á framfæri og ná fram breytingum á frumvörp- um ríkisstjórnarinnar. Önnur umræða um fjárlagafrum- varp ríkisstjórnarinnar hefur nú staðið yfir í nærri þrjátíu klukku- stundir. Margir stjórnarliðar sem Fréttablaðið talaði við telja að núverandi stjórnarandstaða sé byrj- uð á málþófi. Einn orðaði þetta sem svo að það væri „málþófslykt í loft- inu“. Samkvæmt heimildum Frétta- blaðsins leggur stjórnarandstaðan áherslu á að tillaga Eyglóar Harð- ardóttur félagsmálaráðherra um að atvinnulausir fái desemberupp- bót verði samþykkt. Breytingartil- laga minnihluta fjárlaganefndar þessa efnis var hins vegar felld í atkvæðagreiðslu á fimmtudag í síð- ustu viku. Þingmenn stjórnarand- stöðunnar hafa einnig gagnrýnt ýmislegt í fjárlögum, eins og niður- skurð á fjárframlögum til þróunar- aðstoðar, legugjald á sjúkrahúsum og lækkun vaxtabóta. Formenn flokkanna hafa fundað til að ná sátt um afgreiðslu mála og þinglok og var meðal annars fundað um málið í gær. Ekkert samkomulag lá hins vegar fyrir þegar Fréttablaðið fór í prentun. Þeir þingmenn sem Fréttablaðið talaði við telja að hægt verði að klára þingstörf á laugardag að því gefnu að samið verði um þinglok í dag. Þá verði hægt að afgreiða fjár- aukalög, fjárlög, bandorminn og önnur dagsetningarmál en umræðu um önnur mál verði frestað fram á næsta ár. Reynsla síðustu ára sýnir að um leið og samkomulag liggur fyrir ganga þingstörf nokkuð hratt fyrir sig. Ekki náðist í Einar K. Guðfinns- son, forseta Alþingis, í gær. Pattstaða á Alþingi og ásakanir um málþóf Á sjötta tug stjórnarfrumvarpa bíða afgreiðslu Alþingis þegar aðeins tveir þing- fundadagar eru eftir samkvæmt starfsáætlun. Önnur umræða um fjárlög hefur staðið yfir í nærri þrjátíu klukkustundir. Stjórnarandstaðan vill að tillaga félags- málaráðherra um desemberuppbót fyrir atvinnulausa verði samþykkt. Á ALÞINGI Þingmenn fara væntanlega brátt að eygja þinglok, þótt fjöldi stjórnar- frumvarpa bíði enn afgreiðslu þingsins. Samkvæmt starfsáætlun eru bara tveir þing- fundadagar eftir, en líkast til verða þeir nokkuð fleiri. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA Helgi Hjörvar, þingflokksformaður Samfylkingarinnar: „Önnur umræða um fjárlög í fyrra stóð í sjö daga og ég held að við séum ennþá langt frá því. Auðvitað væri betra ef það væru færri ágreiningsatriði á milli stjórnar og stjórnarandstöðu í þessu. Hins vegar er eðlilegt að menn taki sér tíma til að fara yfir þær breytingartillögur sem hafa komið fram á síðustu dögum.“ Róbert Marshall, þingflokksformaður Bjartrar framtíðar: „Við erum ekki í neinu málþófi enda enginn frá okkur á mælendaskrá. Við tökum ekki þátt í svoleiðis pólitík. Við höfum sett okkar áherslur á borðið og erum tilbúnir að klára þessa vinnu. Við erum með breytingartillögu við fjárlögin og þar kemur okkar pólitíska áhersla fram.“ Ragnheiður Ríkharðsdóttir, þingflokksformaður sjálfstæðismanna: „Stjórnarandstaðan er bara að nýta sér sinn rétt sam- kvæmt þingsköpum og ég geri ekki athugasemdir við það. Þeir munu nýta sér þennan rétt þangað til formenn hafa komist að samkomulagi um þinglok. Þannig hefur þetta alltaf verið.“ Sigrún Magnúsdóttir, þingflokksformaður framsóknarmanna : „Ég tel að það sé hægt að klára mikilvægustu málin fyrir jól þannig að ekki þurfi að funda á milli jóla og nýárs. Það er ekki mikill tími til stefnu en ég er bjartsýn á að þetta takist.“ Birgitta Jónsdóttir, þingflokksformaður Pírata: „Þetta er hefð sem hefur verið í gangi alltof lengi. Þingheimur er að afgreiða mörg mikilvæg mál á alltof skömmum tíma. Stundum þarf tíma til að ræða hlutina betur. Þar að auki hafa mál verið að koma inn seinna en venjulega.“ ➜ Þingflokksformenn um stöðuna Höskuldur Kári Schram hoskuldur.schram@365.is | FRÉTTASKÝRING | TEKIST Á UM ÞINGLOKIN Úrval af baðsloppum – ALLAR STÆRÐIR – fyrir dömur og herra VERÐ FRÁ 11.900 MEÐ 20% JÓLAAFSLÆTTI , Skátahreyfingin hefur um árabil selt sígræn eðaltré í hæsta gæðaflokki og prýða þau þúsundir heimila og fyrirtækja. Sígrænu jólatrén eru seld í Skátamiðstöðinni Hraunbæ 123 í Reykjavík, s: 550 9800 og á skátavefnum: www.skatar.is Frábærir eiginleikar: -eðaltré ár eftir ár! Sígræna jólatréð 10 ára ábyrgð 12 stærðir (90-500 cm) Stálfótur fylgir Ekkert barr að ryksuga Veldur ekki ofnæmi Eldtraust Þarf ekki að vökva Íslenskar leiðbeiningar
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.