Fréttablaðið - 18.12.2013, Blaðsíða 50
18. desember 2013 MIÐVIKUDAGUR| MENNING | 30
Kammerhópurinn Camerarctica
heldur sína árlegu kertaljósatón-
leika í kirkjum nú rétt fyrir jólin
en hópurinn hefur leikið ljúfa
tónlist eftir Mozart við kertaljós
í tuttugu ár.
Í ár verða leikin eftirfarandi
verk eftir Wolfgang Amadeus
Mozart: Divertimento kv.136
fyrir strengi Klarinettukvartett
kv.378 og Klarinettukvintettþátt-
ur kv.516c tvær aríur þ.e Laud-
ate Dominum kv.339 og Parto
Parto úr La Clemenza di Tito. Að
venju lýkur tónleikunum á því að
Camerarctica leikur jólasálm-
inn góða Í dag er glatt í döprum
hjörtum, sem er úr Töfraflaut-
unni eftir Mozart.
Hópinn skipa að þessu sinni
þau Ármann Helgason klarinettu-
leikari, Gunnhildur Daðadóttir og
Rannveig Marta Sarc fiðluleikar-
ar, Svava Bernharðsdóttir víólu-
leikari og Sigurður Halldórsson
sellóleikari en gestur á tónleik-
unum er Ingibjörg Guðjónsdóttir
söngkona. Einnig koma fram tveir
drengir úr Drengjakór Reykja-
víkur, þeir Benedikt Gylfason og
Tryggvi Pétur Ármannsson.
Tónleikarnir verða sem hér
segir: Í Hafnarfjarðarkirkju
fimmtudagsdagskvöldið 19. des-
ember, Kópavogskirkju föstu-
dagsdagskvöldið 20. desember,
Garðakirkju laugardagskvöldið
21. desember og loks í Dómkirkj-
unni í Reykjavík sunnudagskvöld-
ið 22. desember. Þeir hefjast allir
klukkan 21.
Mozart við kertaljós
Camerarctica heldur nú fyrir jólin kertaljósatónleika
í nokkrum kirkjum. Þetta er tuttugasta árið sem
hópurinn fl ytur tónlist Mozarts fyrir hátíðirnar.
SYNGJA INN JÓLIN Kammerhópurinn
Camerarctica flytur tónlist Mozarts í
kirkjum fyrir hátíðirnar.
„Þetta er alveg ótrúlegt, ég er í
hálfgerðu sjokki,“ segir Sif Sig-
marsdóttir um velgengni fyrsta
bindis Freyjusögu, Múrsins, sem
tilnefnd er bæði til Íslensku bók-
menntaverðlaunanna og Fjöru-
verðlaunanna, auk þess að vera
ofarlega á metsölulistum og hafa
hlotið rífandi góða dóma gagnrýn-
enda. „Maður vonast auðvitað allt-
af eftir góðum viðbrögðum við því
sem maður skrifar, en þótt maður
sé sjálfur rosalega ánægður með
eigin grip þá veit enginn hvernig
aðrir taka honum, þannig að, nei,
ég hafði ekki séð þetta fyrir mér.“
Freyjusaga er framtíðarsaga
sem kölluð hefur verið hinir
íslensku Hungurleikar, en Sif
segist hafa verið byrjuð á sögunni
löngu áður en Hungurleikarnir
komu fram á sjónarsviðið. „Þessi
bók er búin að vera vandræðalega
lengi í vinnslu, nærri sex ár, en
hugmyndin kviknaði fyrst þegar
ég var í námi í barnabókmenntum
í Bretlandi. Ég byrjaði þar árið
2002 og var þá svakalega skot-
in í Philip Pullman og bókunum
hans um Gyllta áttavitann. Eftir
að ég las þær var ég staðráðin í
að skrifa einhverja drungalega
fantasíu. Svo vildi þannig til að
það fengu allir sömu hugmynd á
svipuðum tíma og síðan þá hafa
komið út margar bækur í þessum
anda. Þegar ég las Hungurleikana
hugsaði ég: Andskotinn, hún stal
hugmyndinni minni.“
Einhverjum lesendum hafa
þótt lýsingarnar í Múrnum ansi
hrottalegar, finnst þér það sjálfri?
„Nei, alls ekki. Það er hins vegar
dálítið algengt þegar kemur að
unglingabókum að fólki finnist að
þær eigi að vera voða saklausar
og krúttlegar og fullar af loðnum
kanínum og bleikum prinsess-
um, en ég er alls ekki sammála
því. Við sem erum að skrifa fyrir
unglinga erum að keppa við blóð-
uga tölvuleiki og sjónvarpsþætti
og þurfum bara hreinlega að vera
samkeppnishæf. Enda held ég að
unglingarnir þoli þetta smáræði
nú alveg, það er aðallega fullorðna
fólkið sem barmar sér yfir hvað
þetta sé ógeðslegt.“
Margir líta á skrif barnabóka
sem tilhlaup eða upphitun fyrir
skrif „alvöru“ bókmennta, ertu á
þeim buxunum? „Nei mig hefur
alltaf langað að skrifa unglinga-
bækur. Ein fyrsta spurningin sem
ég fékk þegar fyrsta unglingabók-
in mín kom út var einmitt: Hve-
nær ætlarðu að skrifa alvöru bók?
Mér finnst hins vegar barnabók-
menntir vera alvöru bókmenntir
og börn og unglingar eru mjög
kröfuharðir lesendur. Það er
alveg óþarfi að flokka þær sem
eitthvert óæðra form. Bækur eru
fyrst og fremst bara annaðhvort
góðar bókmenntir eða ekki, alveg
sama fyrir hvaða aldurshóp er
skrifað.“ fridrikab@frettabladid.is
Engar loðnar kanínur
og bleikar prinsessur
Múrinn eft ir Sif Sigmarsdóttur hefur fengið rífandi góðar viðtökur, verið hlaðin
lofi og er tilnefnd til tvennra bókmenntaverðlauna. Sif segist alltaf hafa ætlað
sér að skrifa fyrir börn og unglinga, enda séu þau mjög kröfuharðir lesendur.
SIF SIG-
MARSDÓTTIR
„Bækur eru fyrst
og fremst bara
annaðhvort
góðar bókmennt-
ir eða ekki.“
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Kammerkórinn Schola Cant-
orum heldur síðustu hádeg-
istónleika sína á aðventunni
með jólatónleikum í Hall-
grímskirkju í hádeginu í dag.
Á þessum þriðju hádegistón-
leikum í desember flytur
kórinn falleg, íslensk jólalög,
m.a. Hátíð fer að höndum ein,
Kom þú, kom, vor Immanúel,
Ljós og hljóma eftir Þorkel
Sigurbjörnsson, Jólaljósin
blika eftir Hauk Tómasson,
Það aldin út er sprungið,
Englakór frá himnahöll og
tvö ný jólalög eftir Hafliða
Hallgrímsson. Stjórnandi er
Hörður Áskelsson.
Tónleikarnir hefjast klukk-
an 12 og standa til 12.30.
Schola Cantorum með jólatónleika í Hallgrímskirkju:
Síðustu hádegistónleikarnir
Mozart við kertaljós
Kammertónlist á aðventu 2013
Styrkt af Tónlistarsjóði Menntamálaráðuneytisins, Reykjvíkurborg, Hafnarfjarðarbæ, Kópavogsbæ og Garðabæ
Miðasala við innganginn, miðaverð kr. 2.500 / 1.500
Hafnarfjarðarkirkju fimmtudag 19. des. kl. 21.00
Kópavogskirkju föstudag 20. des. kl. 21.00
Garðakirkju laugardag 21. des. kl. 21.00
Dómkirkjunni í Reykjavík sunnudag 22. des. kl. 21.00
Camerarctica
Ingibjörg Guðjónsdóttir söngur
Verið velkomin í verslun okkar að Síðumúla 16. Opið mán - fös 8.30 - 17.00
Síðumúli 16 • 108 Reykjavík • Sími 580 3900 • www.fastus.is
Veit á vandaða lausn
GENSE kvörn
• Malar salt og pipar
• Keramikkvörn - píanólakk
• Þrír litir: svart, hvítt, rautt
Kr. 6.262,-
JÓL Í ELDHÚSIÐ
DUALIT brauðrist
• 2 brauðsneiðar
• Sérstaklega víð rauf f. brauð
• Hægt að rista beyglu / pítu
Kr. 32.944,-
DUALIT hraðsuðuketill
• 1.5L hraðsuðuketill
• Snúrulaus
• Sía innan á stút
Kr. 18.900,-
FA
S
TU
S
_E
_4
6.
12
.1
3
MENNING