Fréttablaðið - 18.12.2013, Side 25

Fréttablaðið - 18.12.2013, Side 25
MIÐVIKUDAGUR 18. desember 2013 | SKOÐUN | 25 fræðasviði, sem hafa jafnan lært við bestu háskóla erlend- is. Íslenskir nemendur kynnast bæði óleystum vandamálum og nýjustu aðferðum, sem eru kveikjan að nýjum lausnum og mögulega fyrirtækjum. Í fjárlagafrumvarpi sem nú liggur fyrir Alþingi er fyrirhug- aður margs konar niðurskurð- ur í rannsóknum og nýsköpun, sérstaklega á samkeppnissjóð- um um tugi prósenta milli ára. Áframhaldandi niðurskurður er áætlaður næstu árin. Jafnvel alvarlegra er þó að þrátt fyrir að Íslendingar verji tiltölulega háu hlutfalli landsframleiðslu í rannsóknir (2,6%), þá setjum við einungis 14% þess í samkeppnis- sjóði. Til samanburðar fara 30 – 40% rannsóknarpeninga nor- rænna skattborgara í samkeppn- issjóði. Til að bæta gráu ofan á svart hefur hlutfallslegt framlag okkar til rannsókna lækkað um 8% frá 2009 öfugt t.d. við Finna sem juku fjármagn til rann- sókna og nýsköpunar í krepp- unni fyrir aldamót. Finnar vissu að samkeppnissjóðir eru besta leiðin til að fjárfesta í rannsókn- um og nýsköpun, líka á erfiðum tímum. Íslensk vísindi og nýsköpun geta bætt efnahag og þjóðfélag landsins ef við berum gæfu til að verja (og stækka sem fyrst) samkeppnissjóðina og styðja við rannsóknarháskólana. ➜ Grunnrannsóknir eru ákafl ega mikilvægar vegna þess að þær skapa þekkingu sem er undirstaða hagnýt- ingar og annarra framfara. Miklu skiptir að hagnýtingin er sjaldnast augljós í upphafi . Fátt er þjóðfélaginu mikilvæg- ara nú en að skapa hagnýta þekkingu og skapa ný verðmæti. Þekkingin sem ný fyrirtæki eru byggð á er oftar en ekki afurð vísindalegra framfara. Og þær byggjast oftast á fyrirbæri sem landinn heyrir lítið um, svoköll- uðum opinberum samkeppnis- sjóðum. Samkeppnissjóðir styrkja bæði grunnrannsóknir og tækniþróun með hagnýtingu og markaðssetningu að markmiði. Fyrirkomulagið er þannig að vís- indamenn og frumkvöðlar keppa um fjármagn með því að senda inn ítarlegar áætlanir, sem metnar eru af fagfólki. Bestu hugmyndirnar, aðferðirnar og verkefnin fá styrki. Grunnrannsóknir eru ákaflega mikilvægar vegna þess að þær skapa þekkingu sem er undir- staða hagnýtingar og annarra framfara. Miklu skiptir að hag- nýtingin er sjaldnast augljós í upphafi. Með öðrum orðum, það er oftast ófyrirsjáanlegt hvaða grunnrannsóknir reynast stökk- pallur fyrir hagnýtingu síðar meir. Lítið dæmi eru rannsókn- ir á frostþoli í skordýrum, sem síðar nýttust til að geyma líffæri fyrir ígræðslu. Ekki síður mikil- væg afurð grunnrannsókna er þjálfun fólks í að rannsaka og leysa vandamál. Með því að styðja við sam- keppnissjóði og rannsóknarhá- skóla græðir Ísland á nokkra vegu: 1 Vísindamenn okkar geta uppgötvað nýjar staðreynd-ir eða lögmál, sem skipta okkur og umheiminn máli. Dæmi um þekkingu af þessu tagi má nefna nýlegar rann- sóknir á eldgosum, krabba- meinum og lífríki hafsins. 2 Útskrifaðir nemendur með vísindalegan skilning og þjálfun geta tileinkað sér nýjustu framfarir í heimi vís- inda og tækni. Slíkt fólk er forsenda þess að við getum hagnýtt erlenda þekkingu, heimfært hana upp á íslenskar aðstæður og jafnvel betrum- bætt. 3 Rannsóknarnám þjálfar nýja kynslóð vísindamanna sem getur tekist á við áskor- anir framtíðar. Þær áskoranir eru margar ófyrirsjáanlegar og því nauðsynlegt að þjálfa fólk í vísindalegum vinnu- brögðum, sem er aðferð til að takast á við opnar spurningar. 4 Í rannsóknarháskólum kenna hæfustu einstak-lingar landsins á hverju Öfl ugir samkeppnissjóðir eru nauðsynlegir fyrir nýsköpun RANNSÓKNIR Arnar Pálsson erfðafræðingur og dósent við HÍ Pétur H. Petersen taugalíff ræðingur og dósent við HÍ Ábendingahnappinn má finna á www.barnaheill.is

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.