Fréttablaðið - 18.12.2013, Qupperneq 33
KYNNING − AUGLÝSING Öryggi barna18. DESEMBER 2013 MIÐVIKUDAGUR 3
„Eins og fætur toga er þjónustumiðstöð
sem hefur þríþætta starfsemi. Þar starf-
ar fagfólk með íþróttatengdan bakgrunn
svo sem íþróttafræðingar, íþróttanær-
ingarfræðingur, íþróttasálfræðingur,
íþróttanuddarar, hjúkrunarfræðing-
ur, fótaaðgerðafræðingar, og fleiri sem
hafa það sameiginlega markmið að
auka hreyfingu landsmanna og halda
uppi faglegri heilsutengdri umfjöllun,“
útskýrir Lýður Skarphéðinsson, fram-
kvæmdastjóri Atlas göngugreiningar.
„Við erum sérfræðingar í fótum og
komum til með að bjóða fjölbreytta
þjónustu fyrir fætur svo sem göngu-
og hlaupagreiningu, fótaaðgerðir,
stoðtækjaþjónustu auk þess að bjóða
upp á mikið af vörum tengdum fótum.
Eins og fætur toga verður með
mikið úrval af vinnuskóm fyrir þá
sem eru að vinna á fótunum og sér-
verslun fyrir hlaupara og þá sem
stunda létta göngu. Footbalance-bún-
aður er notaður til að velja skó sem
henta fótlagi og niðurstigi. Fjölbreytt
þjónusta og vörur fyrir hlaupara og
göngufólk. Sérhæfum okkur í gæða-
skóm, Asics, Brooks, Ecco og New
Balance, og fatnaði frá Brooks, Ron-
hill, Under Armour, CWX, 2XU, Com-
pressport og fleira.“
Góður árangur göngugreiningar
fyrir börn
„Ef börn kvarta mikið undan verkjum
í fótum, er ástæðan í mjög mörgum til-
fellum skakkir hælar,“ segir Lýður.
„Þeir sem eiga börn sem eru löt að
ganga, kvarta undan þreytu og vilja
láta halda á sér ef þau eiga að ganga
eitthvað, ættu því að koma til okkar í
greiningu en dæmigert fyrir skakka
hæla er að verkurinn hverfur um leið
og börnin setjast niður og hvíla sig.
Ef í ljós kemur að hælarnir eru
skakkir, búum við til innlegg í skóna og
réttum hælana af. Okkur hefur gengið
ótrúlega vel að greina og laga skakka
hæla hjá börnum og nánast undan-
tekningarlaust líður börnunum betur,“
segir Lýður.
„Innleggin sem slík laga ekki fót-
inn en þau rétta hann af meðan þau
eru undir. Líkaminn sér sjálfur um að
styrkja liðbönd, vöðva og sinar í kring-
um liði og þegar innleggin eru til stað-
ar er möguleiki á að fóturinn styrkist í
betri stöðu.“
Hversu ung börn er hægt að göngu-
greina?
„Um leið og börn eru hætt með bleiu
og farin að hlaupa um geta þau komið
í göngugreiningu. Þó er miðað við að
börn komi fyrst í greiningu í kringum
þriggja ára aldurinn.“
Hvernig fer göngugreining barna
fram?
„Barnið er látið ganga á hlaupabretti
ef það hefur aldur til, yngstu börnin
standa á brettinu og ganga á gólfinu.
Tekin er vídeómynd aftan á fæturna
og þannig sjáum við allar skekkjur í
hælum, ökklum og hvernig álagið er
upp í hné og mjaðmir. Eldri krakk-
ar ganga einnig yfir þrýstiplötu sem
sýnir hvar álagið er mest. Við skoð-
um fótinn einnig með höndunum
og athugum þannig hvort liðirn-
ir eru lausir. Þeir sem framkvæma
göngugreiningu barna eru sérhæfðir
íþróttafræðingar. Sérfræðingar Atlas
göngugreiningar taka um fimm þús-
und manns í göngugreiningu á ári
og hafa tekið um það bil 50.000 ís-
lendinga í göngugreiningu frá árinu
2001.“
Láttu þér líða vel
Atlas göngugreining opnaði nýlega Eins og fætur toga í Bæjarlind 4 í Kópavogi
Atlas Göngugreining er flutt í Bæjarlind 4. í Kópavogi.
Hjá Atlas göngugreiningu starfar fagfólk við göngu- og hlaupagreiningu fyrir bæði börn og fullorðna.
Lýður Skarphéðinsson framkvæmdastjóri segir skakka hæla algengustu
orsök þess að börn kvarta undan verkjum í fótum.