Fréttablaðið - 18.12.2013, Side 36
KYNNING − AUGLÝSINGKaffivélar MIÐVIKUDAGUR 18. DESEMBER 20132
Útgefandi: 365 miðlar ehf., Skaftahlíð 24, s. 512 5000
Umsjónarmenn auglýsinga: Ívar Örn Hansen, s. 512 5429, ivarorn@365.is
Ábyrgðarmaður: Jón Laufdal.
Brúnhildur eða Brúnka er hún stundum kölluð upp á íslensku, dísæta súkkulaði-
kakan Brownie sem passar svo vel
með kaffinu.
Brownie varð til í Bandaríkjun-
um rétt fyrir aldamótin 1900 og
fer nokkrum sögum af því hvern-
ig þessi seiga og þétta súkkulaði-
bomba varð til. Samkvæmt einni
þeirra uppgötvaði amerísk hús-
móðir, þegar von var á gestum, að
hún átti ekkert lyftiduft en skellti
engu að síður í súkkulaðiköku og
úr varð Brownie. Önnur saga segir
að bakari einn hafi óvart bætt
bráðnu súkkulaði út í kexdeig.
Hið rétta er þó að bakari á
Palm er House-hótelinu í Chicago
bjó uppskriftina til þegar hóteleig-
andinn bað um hentugan eftirrétt
fyrir fínar frúr á útihátíð. Réttur-
inn þyrfti að vera minni en tertu-
sneið, vera næstum því eins og
kaka og hægt að borða beint upp
úr nestisboxi.
Síðan þá hafa vinsældum brún-
kunnar engin takmörk verið sett
og óteljandi tilbrigði hafa litið
dagsins ljós.
Brúnhildur varð til fyrir frúrnar
Súkkulaði er gott með kaffinu, það eru þeir sem drekka kaffi sammála um. Kökur með kaffinu eru jafnvel ennþá betri og þess vegna
langbest að komast í súkkulaðikökur með kaffibollanum. Drottning allra kaffikaka er hin dísæta súkkulaðikaka Brownie.
Caffitaly er ítalskt fyrirtæki sem hefur hannað fallega og einfalda kaffivél sem er ein-
staklega stílhrein og einföld í notk-
un. Hún er nett og fyrirferðarlítil á
eldhúsborðinu en samt taka allir
eftir henni sökum þess hversu flott
hún er,“ segir Guðný Ósk Ólafsdótt-
ir, framkvæmdastjóri heildverslun-
arinnar Kósk ehf., sem flytur inn
gæðakaffivélar frá Ítalíu.
„M2-kaffivélin hefur fengið frá-
bæra dóma á Norðurlöndum og var
valin besta hylkjavélin í Danmörku
og Svíþjóð. Þar bar hún af kaffivél-
unum Nespresso, Saeco, Electrolux
og Nespresso Dolce Gusto,“ útskýrir
Guðný um Caffitaly M2 sem býður
upp á ótal tilefni til sælustunda yfir
hverjum kaffibolla.
„Hægt er að velja úr heillandi úr-
vali gæðakaffis, espresso og venju-
legs, og einnig fjölmörgum teg-
undum af tei og súkkulaði,“ segir
Guðný.
Caffitaly M2 vegur fjögur kíló og
tekur 1.200 millilítra vatns í tank-
inn. Sjálfvirk stilling er fyrir hvern
og einn drykk og einnig er hægt
að stilla vélina á sjálfvirka, hefð-
bundna kaffiuppáhellingu.
„M2-kaffivélin fæst í nokkr-
um litum, meðal annars svörtum,
silfur og rauðum. Hún er hrein-
leg í notkun, gullfalleg og tryggir
dásamlega kaffiupplifun í hverj-
um sopa, sem slær auðveldlega
við því allra besta á kaffihúsum,“
segir Guðný.
Besta kaffivél Evrópu
Ítalska kaffivélin Caffitaly M2 var valin besta espresso-hylkjavél Evrópu í
Danmörku og Svíþjóð. Bragðupplifunin er himnesk og einnig er hægt að hella
upp á te og súkkulaði.
Caffitaly M2 fæst í Búsáhöldum í
Kringlunni, Húsasmiðjunni og
Heimkaupum. Caffitaly-vörur fást líka
í Þinni verslun, Fjarðarkaupum og á
nýju ári í Krónunni.
Hér er ein góð af www.bbcgoodfood.com
1 Skerið 185 grömm af ósöltu smjöri í teninga. Brjótið 185 grömm af dökku súkkulaði
og bræðið saman við smjörið yfir
vatnsbaði. Látið kólna.
2 Stillið ofninn á 180 gráð-ur. Klæðið ferkantað form með bökunarpappír. Sigtið
saman í skál 85 g af hveiti og 40 g
af kakódufti.
3Saxið gróf lega niður 50 grömm af hvítu súkkulaði og 50 grömm af rjómasúkk-
ulaði.
4Brjótið 3 stór egg í stóra skál og hellið 275 grömmum af sykri út í. Þeytið í nokkr-
ar mínútur eða þar til blandan er
létt og ljós.
5Hell ið bráðnu súk k ul-aðinu yfir eggjaþeytinginn og blandið hægt og varlega
saman með gúmmíspaða.
6Haldið sigti yfir súkkulaði- og eggjablöndunni og sigtið hveiti og kakóið aftur í gegn.
Blandið saman, jafn hægt og ró-
lega og áðan og ekki of vel. Bland-
ið þá að endingu út í súkkulaðinu
sem saxað var niður.
7Hellið öllu saman í bökunar-formið og jafnið varlega út í hornin. Bakið í 25 mínútur.
Opnið þá ofninn og hristið form-
ið örlítið til. Ef kakan hreyfist til í
miðjunni er hún ekki alveg tilbú-
in. Bakið þá í 5 mínútur í viðbót
eða þar til yfirborð kökunnar er
glansandi, brotnar eins og papp-
ír og hliðarnar losna frá.
8Látið brúnkuna standa á borðinu í forminu þar til hún hefur alveg kólnað.
Lyftið henni þá uppúr forminu
með því að toga í bökunarpappír-
inn. Skerið í ferninga. Ef frú Brún-
hildur klárast ekki á stundinni
geymist hún í loftþéttum umbúð-
um í frysti í allt að fjórar vikur.
Sjálfsögð gestrisni þykir að
bjóða upp á kaffisopa. Íslend-
ingar fóru þó ekki almennt að
drekka kaffi fyrr en um miðja
19. öldina en þá voru þeir líka
f ljótir að komast á bragðið.
Árni Magnússon, prófess-
or og handritasafnari, fékk
fjórðungspund af kaffibaun-
um sent frá Lárusi Gottrup,
lögmanni á Þingeyrum, þann
16. nóvember 1703. Baunun-
um fylgdi bréf þar sem Lárus
baðst forláts á hversu lítið
hann hefði sent og er þetta bréf
elsta þekkta heimild um kaffi
á Íslandi. Talið er að Árni geti
jafnvel hafa verið fyrsti Íslend-
ingurinn sem ánetjaðist kaffi
og te en hann stundaði tehúsin
í Kaupmannahöfn grimmt um
aldamótin 1700. Árni lét síðar
smíða fyrir sig forláta kaffi-
könnu úr silfri sem var tæpt
kíló að þyngd.
Það voru helst danskir emb-
ættismenn á Íslandi sem áttu
tæki og tól til að hella
upp á kaffi
snemma á 18.
öld en fljót-
lega upp úr
miðri 18. öld
komust ís-
lenskir embætt-
ismenn einn-
ig á kaffibragðið.
Flestir prestar og
sýslumenn voru
farnir að drekka
kaffi eftir 1780
og svo fylgdu
efnameiri
bændur í kjöl-
farið.
Kaffið virðist hafa farið vel í
Íslendinga en innflutningur á
kaffi nífaldaðist, hvorki meira
né minna, á árunum 1819 til
1840 og fór úr tæplega fimm
tonnum upp í 44 tonn á ári.
Næstu árin jókst innflutning-
urinn enn og var árið 1855 orð-
inn 213 tonn, eða um þrjú kíló
á mann!
Segja má
að öll þjóð-
in hafi verið
orðin ánetj-
uð kaffi um
miðja 19. öld
og kaffikönn-
ur og kaffikvarn-
ir voru orðinn
staðalbúnað-
ur á heimilum
landsins.
Heimild:
Vísindavefur
Háskóla Ís-
lands.
Árni Magnússon handritasafnari
er talinn fyrsti Íslendingurinn sem
ánetjaðist kaffi en hann komst á bragðið
í Kaupmannahöfn.
Árni Magnússon var
fyrsti kaffifíkillinn