Fréttablaðið - 18.12.2013, Side 38
KYNNING − AUGLÝSINGKaffivélar MIÐVIKUDAGUR 18. DESEMBER 20134
KAFFIÐ ER GOTT
Bandaríski fréttavefurinn The
Huffington Post birti grein fyrir
skömmu þar sem tilgreindar eru
nokkrar ástæður til að drekka gott
kaffi. Blaðamaður segir að í raun
sé ekki hægt að vera fullorðinn í
Bandaríkjunum án þess að drekka
kaffi og miðað við þá fjárhæð
sem kaffihúsið Starbucks þénar
á ári hverju, þá elskar fólk kaffi.
54% Bandaríkjamanna yfir 18 ára
drekka kaffi.
Vísindamenn í háskólanum í
Seoul hafa fundið út að með því
að þefa af góðu kaffi sé mögulegt
að draga úr streitu. Rannsókn á
rottum sýndi að ef þær fundu
kaffiilm róuðust þær.
ScienceDaily greindi frá því í
fyrra að koffín gæti hjálpað fólki
með Parkinson-sjúkdóminn að
stjórna hreyfingum sínum.
Rannsókn sem birt var árið 2006
sýndi að fólk sem drekkur að
minnsta kosti einn bolla af kaffi
á dag eru í 20% minni hættu en
aðrir á að þróa skorpulifur. Þetta
eru líklega góðar fréttir fyrir þá
sem drekka líka áfengi.
Rannsókn sem gerð var af
National Institute of Health leiddi
í ljós að þeir sem drekka þrjá til
fjóra bolla af kaffi á dag eru síður
líklegir til að verða þunglyndir.
Læknadeild Harvard-háskóla
greindi frá rannsókn þess efnis
að mun minni hætta sé á að
konur sem drekka þrjá eða fleiri
kaffibolla á dag þrói með sér húð-
krabbamein.
Kaffi er gott fyrir íþróttamenn
samkvæmt skýrslu sem birt var
í blaðinu The New York Times.
Einn bolli fyrir líkamsþjálfun eykur
árangur.
Kaffi getur minnkað áhættu á
sykursýki 2 ef marka má rannsókn
frá American Chemical Society.
Vísindamenn við háskólann
í Suður-Flórída og háskólann í
Miami telja að fólk eldra en 65 ára
sem hefur drukkið kaffi reglulega
sé síður líklegt en aðrir til að fá
Alzheimer. Það getur að minnsta
kosti seinkað því með kaffi-
drykkju.
Því hefur stundum verið haldið
fram að kaffi geri fólk greindara.
Svefnþörf minnkar en rannsóknir
sýna að koffínið geti bætt árvekni,
athygli, viðbragðstíma og þess
háttar.
Hvað sem til er í þessum rann-
sóknum, þá bendir flest til þess
að fólk eigi bara að halda áfram
að njóta þess að drekka kaffið.
MJÓLKURKAFFI Í KULDANUM
Kaffi er ein algengasta verslunarvara heims, næst á eftir hráolíu. Það er kannski ekki að
undra enda þykir það bæði bragðgott og afar hressandi. Á þessum árstíma er fátt betra en
að drýgja bollann með flóaðri mjólk og njóta þannig hitans og áhrifanna lengur.
Cappuccino og Latte eru algengustu mjólkurkaffidrykkirnir. Cappuccino er yfirleitt borið
fram í 150 til 180 millilítra bolla og samanstendur af 1/3 kaffi, 1/3 heitri mjólk og 1/3
mjólkurfroðu. Mjólkin á að blandast kaffinu þannig að hún renni saman við espressó-skotið
svo að bollinn sé með hvítum mjólkurhatti umluktum rauðbrúnum kaffihring. Best þykir ef
freydd mjólkin minnir á húsamálningu eða silki þegar henni er hellt út í kaffið.
Caffé latte er yfirleitt búið til með því að hella flóaðri mjólk yfir lögun af espresso. Hlut-
fallið á milli mjólkur og kaffis er venjulega um 5:1 . Latte inniheldur því mun meiri mjólk en
Cappuccino. Það er yfirleitt borið fram í háu glasi.
100
HEPPNIR VILDARÁSKRIFENDUR FÁ
JÓLAKÖRFU (GJAFAKORT) FRÁ BÓNUS
AÐ VERÐMÆTI 30.000 KR.
Skráðu þig á stod2.is/vild
Við drögum út síðustu 50 körfurnar í Íslandi í dag
þann 20. desember
Vinsælar
jólavörur
í Bónus
Kjarnafæði kofar. úrb. hangilæri
Ali hamborgarhryggur m/beini
Appelsínkippa 4x2 lítrar
Kókkippa 6x1,5 lítrar
Egils malt í dós 6x500 ml
Egils jólaöl í dós 6x500 ml
Mackintosh 2 kg
Nóa konfekt 1 kg
Toblerone 300 g
Kjörís jólaís 2 lítrar
Kjörís ísterta 12 manna
Ömmu steikt laufabrauð
Robin klementínur 2,3 kg
Appolo lakkrískonfekt 700g
Ora grænar heildós
Ora maís heildós
Ora rauðkál krukka
Papco jóla wc pappír
Papco jóla eldhúsrúllur