Fréttablaðið - 18.12.2013, Síða 42

Fréttablaðið - 18.12.2013, Síða 42
KYNNING − AUGLÝSINGÖryggi barna MIÐVIKUDAGUR 18. DESEMBER 20138 SNJÓSLEÐAR OG ÞOTUR Fylgjast þarf vel með því að börn leiki sér á öruggan hátt í snjó, útskýra hvar hætturnar leynast og benda á örugg leiksvæði. Hljóðmanir við umferðargötur, brekkur sem liggja að götum og umferðar- götur eru ekki leiksvæði. Slöngudráttur og sleðabrun við götur eru ekki örugg skemmtun. Snjóruðningar eftir mokstur á götum geta verið freistandi leiksvæði. Þeir eru hins vegar ekki öruggir því þakið getur hrunið yfir barnið og það kafnað. Benda þarf börnum á að nota heldur ekki skafla til að renna sér á sleðum þar sem þeir liggja oftast nálægt götum og börnin geta runnið stjórnlaust í veg fyrir bíla. Ekki leyfa börnum að nota bíla, mótorhjól eða önnur ökutæki til að draga sig á þotum, sleðum eða slöngum eftir götum. www.forvarnarhusid.is UM BORÐ Í FLUGVÉL Gott er að kynna sér þær öryggisreglur sem gilda hjá flugfélögum því þær geta verið mismunandi milli félaga. Þeir sem ferðast með börn yngri en 2 ára þurfa ekki nauðsynlega að kaupa sérsæti fyrir þau. Almennt láta flugfélög foreldra hafa laus sæti ef unnt er og þá getur barnið setið öruggt í barnabílstól. Ef engin aukasæti eru laus situr foreldri með barnið í fangi sér. Viðbótarlykkjubelti eru öryggisbelti sem ætluð eru yngstu farþegunum. Þetta belti er þrætt í öryggisbeltið sem hinn fullorðni notar og barnið síðan spennt í það þar sem það situr í fangi hins fullorðna. Gott er að fá upplýsingar hjá flugþjónum um hvernig er best að festa barnabílstól í sæti. Þá er gott ráð að hafa með sér mat og drykk fyrir börnin. Passa þarf að drekka ekki heita drykki með börn í fanginu. Ekki er mælt með að skipta á börnum á meðan ókyrrð er í lofti. Eldri börn geta orðið óróleg á löngum ferðum og því þarf að hafa eitthvað meðferðis sem styttir þeim stundir. Mikilvægt er að börnin sitji ávallt spennt í sætinu meðan á fluginu stendur vegna hættu á ókyrrð. Dæmi eru um að börn hafi slasast þegar matarvagnar hafa rekist á þau eða vegna skyndilegrar ókyrrðar. EKKI EFTIRLITSLAUS NÁLÆGT VATNI Ung börn geta drukknað á innan við þremur mínútum í aðeins 2-5 cm djúpu vatni. Drukknun getur átt sér stað víða til dæmis í sundlaug, baði, setlaug, ám, lækjum og ekki síst pollum. Það getur gerst mjög skyndilega og hljóðlega án hrópa eða busls í vatninu. Ekki má treysta eingöngu á sundkennslubúnað, s.s. armakúta eða sundjakka. Ung börn eru forvitin og sífellt á ferðinni. Ef þau lenda í erfiðleikum hafa þau litla möguleika á að bjarga sér m.a. vegna þess að höfuð þeirra er hlutfallslega mjög þungt og stórt miðað við líkamann og því eiga þau erfitt með að lyfta höfðinu upp til að ná andanum. Þungur og fyrirferðarmikill fatnaður gerir þeim erfitt fyrir að koma sér upp og ekki má gleyma að kuldi vatnsins getur dregið fljótt úr kröftum þeirra. Aldrei má skilja barn eftir eftir- litslaust í nálægð við vatn. Heimild: forvarnarhusid.is SKRUDDA www.skrudda.is „Fyrsta flokks barnabók“ Tónlistin úr leiksýningunni „Skrímslið litla systir mín“ fylgir með á geisladiski. n er fallega myndskreytt af Björku Bjarkadóttur og list Eivarar Pálsdóttur er skemmtileg viðbót við andaða bók. Eins og aðrar fyrsta flokks barnabækur höfðar bókin bæði til barna og fullorðinna.“ Ólöf Skaftadóttir, Frbl. 18. okt. „Bóki ón v t Lísa í Undralandi í nýjum ævintýrum Í gegnum spegilinn er sjálfstætt framhald Lísu í Undralandi og hefur löngum verið talið eitt af meistaraverkum barnabókmenntanna. Kemur nú út í fyrsta sinn á íslensku í vandaðri þýðingu Valdimars Briem og með upprunalegum myndskreytingum. Frábærar smábarnabækur Hvernig er hægt að fá börnin til að koma sér upp góðum venjum við heimanámið? Þessi bók veitir ótal góð ráð í því efni! Handa öllum þeim sem eiga erfitt með að stilla skap sitt og bregðast við stríðni og öðrum streituvöldum. Bækur fyrir börn og foreldra Úrvalsbækur handa börnum Ævintýraheimur barnanna Glæsilegar útgáfur með ævintýrum Grimmsbræðra og sögum úr sagnabálki Esóps. Frábærar myndskreytingar Vals Biros leiða okkur inn í töfrandi sagnaheim liðinna alda. Sögur sem öll börn þurfa að kynnast.

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.