Fréttablaðið - 18.12.2013, Page 52
18. desember 2013 MIÐVIKUDAGUR| MENNING | 32
Áratugalöng hefð er fyrir Jóla-
söngvum Kórs Langholtskirkju.
Í ár verða tónleikarnir þrennir,
dagana 20. til 22. desember, og
þar munu Kór Langholtskirkju
og Gradualekór Langholtskirkju
syngja undir stjórn Jóns Stefáns-
sonar. Þetta verða þrítugustu og
sjöttu Jólasöngvarnir við kerta-
ljós og að vanda er boðið upp á
rjúkandi jólasúkkulaði og pipar-
kökur í hléi.
Einsöngvarar í ár með Kór
Langholtskirkju eru Andri Björn
Róbertsson, Davíð Ólafsson, Guð-
rún Matthildur Sigurbergsdóttir,
Jóna G. Kolbrúnardóttir, Ólöf Kol-
brún Harðardóttir og Þóra Ein-
arsdóttir. Einsöngvari á táknmáli
er Kolbrún Völkudóttir og einnig
koma nokkrir einsöngvarar fram
úr röðum Gradualekórsins.
Þær Guðrún Matthildur og Jóna
G. eiga rætur í kórastarfi Lang-
holtskirkju. Guðrún Matthildur
kveðst hafa byrjað þar fimm ára
gömul með Krúttakórnum. „Svo
fór ég stig af stigi,“ segir hún
brosandi og kveðst hafa sungið
einsöng á Jólasöngvum í nokkur
ár. Þetta er hins vegar í fyrsta
skipti sem Jóna syngur einsöng í
Jólastundinni, en hún kveðst búin
að vera í kórum í Langholtskirkju í
nokkur ár, byrjað í Gradualekórn-
um og svo farið í Nobili. „Nobili eru
eðal Gradlarar, þær bestu af þeim
bestu,“ útskýrir Guðrún Matthild-
ur. „Við hittum Jónu í Söngskóla
Reykjavíkur og negldum hana,“
segir hún hlæjandi. „Nú erum við
báðar í Kór Langholtskirkju.“
Þær stöllur upplýsa að þær
syngi saman dúett með kórnum
í einu lagi, það er Pie Jesu eftir
Andrew Lloyd Webber.
„Það lag er upphaflega skrifað
fyrir sópransöngkonu og drengja-
sópran en ég tek að mér drenginn,
eins og ekkert sé.“ segir Guðrún
Matthildur glaðlega. Þær eru
sammála um að mikill jólaandi
ríki jafnan á Jólasöngvunum og
segja marga varla getað hugs-
að sér upphaf jólahátíðarinn-
ar án þess að mæta á þá. „Þetta
eru mjög hefðbundnir tónleikar
í ár en það eru alltaf einhverjir
nýir einsöngvarar,“ segir Guðrún
Matthildur. „Sumir eru þó alltaf,
til dæmis Ólöf Kolbrún. Það er
föst og falleg hefð að hún syngur
Ó, helga nótt í lok tónleikanna. Þá
eru jólin komin.“
gun@frettabladid.is
Þá eru jólin komin
Hinir hefðbundnu Jólasöngvar Kórs Langholtskirkju verða dagana 20., 21. og 22.
desember. Þeir eru hápunktur fj ölbreyttrar dagskrár kirkjunnar í aðdraganda jóla.
SÖNGKONUR Guðrún Matthildur og Jóna eru sammála um að mikill jólaandi ríki
jafnan á Jólasöngvum Langholtskirkju. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Þetta eru mjög
hefðbundnir tónleikar í ár
en það eru alltaf ein-
hverjir nýir einsöngvarar.
Guðrún Matthildur
BÆKUR ★★ ★★★
Látið síga piltar
Óskar Magnússon
JPV ÚTGÁFA
Sveitasögur eiga sér langa og merka
sögu í íslenskum bókmenntum. Allt
frá opinberu upphafi skáldsagna-
gerðar um miðja nítjándu öld gerð-
ust langflestar íslenskar skáldsögur
í sveit, það mætti nota sömu sviðs-
myndina til að kvikmynda þær
allar, grösugur dalur sem ár og
lækir renna um, hálendi og jöklar
upp af dalnum og þéttbýli þegar
nær dregur ströndinni, kauptún
eða þorp. Hliðardalur, sögusvið
skáldsögu Ósk-
ars Magnússonar,
Látið síga piltar,
er nákvæmlega
eftir þessari upp-
skrift, þótt sögu-
tíminn sé nútíminn.
Ýmsar eldri skáld-
sögur íslenskar koma
upp í hugann við lest-
ur bókarinnar, Dalalíf
og Dalafólk, Bænda-
býti og þannig mætti
lengi telja.
Hér er sagt frá fólki
sem býr við friðsæla
sveitatilveru að mestu
þar til tvenns konar inn-
rás er gerð í líf þeirra. Annars
vegar byrjar eldgos í jökli ofan við
byggðina, hins vegar koma í heim-
sókn bankamenn úr Reykjavík sem
bjóða lán til mikilla framkvæmda
og framfara á kostakjörum.
Sögufléttan um bankamennina
er fyrirsjáanleg. Bankamennirnir
í sögunni eru upp til hópa ljóngáf-
aðir en menningarsnauðir fantar og
það þarf ekkert sérlega ríkt ímynd-
unarafl til að sjá í þeim þekkt andlit
úr íslensku viðskiptalífi. Svo dæmi
sé tekið er Sigurði, sem er forstjóri
banka, lýst þannig: „Sigurður var
lítill vexti, feitur með burstaskalla.
Augun voru agnarsmá og pírð og
varirnar blautar.“ (35) Það sama má
segja um „Pöddupiltana“, svila, sem
meðal annars hafa auðgast á því að
flytja út „skeldýr og ýmsar sjávar-
pöddur“ (57).
Óskar Magnússon hefur sent frá
sér tvö ágæt smásagnasöfn en Látið
síga piltar er fyrsta skáldsaga hans.
Óskar skrifar lipurlega, framan af
sögunni og í seinni hluta hennar
beitir hann hæðni og íróníu óspart,
en miðhlutinn, þar sem fólkið í sveit-
inni þarf að kljást við raunverulegar
náttúruhamfarir og verulega reyn-
ir á samstöðu þeirra, þrautseigju
og úthald, breytir mjög um tón, frá-
sögnin verður einlægari og
samúð sögumanns með pers-
ónum sínum meiri. Þessi
kafli bókarinnar er satt að
segja miklu betur heppnað-
ur en þeir kaflar þar sem
kaldhæðnin er mest.
Þessi fyrsta skáldsaga
Óskars er mjög misgóð.
Persónusköpunin ristir
ekki sérlega djúpt, sér-
staklega eru skúrk-
arnir í sögunni dregn-
ir einföldum dráttum.
Þeir kaflar sem eru
kaldhæðnastir og
eiga kannski að vera
beittust ádeila á sið-
leysi bankamanna og annarra við-
skiptamógúla eru sömuleiðis fremur
þunnur þrettándi. Fólkið í sveitinni
er heldur svipmeira, en þó verður
að segjast að tilraunir sögumanns
til að sýna þekkingu á sveitalífi og
bregða fyrir sig tungutaki sveita-
manna verða oft pínulítið vand-
ræðalegar og gervilegar.
Jón Yngvi Jóhannsson
NIÐURSTAÐA: Sveitasaga sem byggir
á gamalli hefð. Bestu kaflarnir eru þeir
sem lýsa lífsbaráttu fólks af samúð og
skilningi en hæðnin lætur höfundi ekki
jafn vel.
Líf í dal
ÓSKAR MAGNÚSSON sendir nú frá sér sína fyrstu skáldsögu, en áður hefur hann
sent frá sér tvö smásagnasöfn. FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA
❄ ❄❄❄ ❄❄ ❄ ❄ ❄ ❄ ❄❄ ❄❄ ❄ ❄ ❄
❄❄ ❄ ❄❄
❄
❄ ❄ ❄❄
❄
❄
❄
❄
❄
❄
❄
❄
❄
❄
❄
❄
❄
❄
❄
❄
❄
❄
❄
❄❄
❄
❄
❄
❄
❄ ❄ ❄
❄
❄
❄
❄
❄
❄
❄
❄
❄
❄
❄
❄
❄
❄
❄
❄
❄
❄
❄
❄
❄
❄
❄
❄
❄
❄
❄
❄
❄
❄
❄
❄
❄
❄
❄
❄
❄
❄
❄
❄
❄
❄
❄
❄ ❄❄ ❄
❄
❄❄ ❄❄ ❄❄ ❄
Þjón usta á Þor láks messu
og að fanga dag
Á Þor láks messu og að fanga dag, milli kl. 9:00 og 15:00 munu starfs menn
í Foss vog skirkju garði, Gufun eskirkju garði, Kópa vogskirkju garði og Hóla-
val la garði leið beina eft ir bestu getu.
Hægt er að nálg ast upp lýs ing ar um stað setn ingu leiða á vefn um
www.gard ur.is
Þjón ustusíma r:
Skrif stof an í Foss vogi, sími 585 2700 og skrif stof an í Gufun esi, sími
585 2770, eru opn ar á Þor láks messu og að fanga dag frá kl. 9:00 til 15:00
Rat kort er hægt að fá af hent á skrif stof un um eða prenta út á
www. kirkju gar dar.is
Upp lýs ing ar eru veitt ar í síma all an des em ber mán uð á skrif stofu tíma.
Foss vog skirkja verð ur op in á að fanga dag frá kl. 9:00 til 12:00
Á að fanga dag frá kl. 9:00 til 15:00 er all ur akst ur um
kirkju garð inn í Foss vogi óheim ill, nema fyr ir hreyfi haml aða.
Til kynn ing frá Kirkju görð um
Reykja vík ur próf asts dæma
Gleði lega jóla há tíð
❄❄❄❄❄❄❄ ❄ ❄❄❄❄❄ ❄ ❄
❄ ❄❄❄ ❄❄❄❄ ❄❄ ❄ ❄ ❄❄ ❄ ❄ ❄❄ ❄❄
❄❄ ❄
Kirkju garð ar Reykja vík ur próf asts dæma
www.kirkju gar dar.is
PI
PA
R\
TB
W
A
•
S
ÍA
VIRB Elite
Hasarmyndavél
Innbyggður skjár, 2000mAh
rafhlaða, 16Mp myndflaga,
GPS skráir hraða og hæð, WiFi
tenging við síma og margt annað
setur Garmin hasarmyndavélarnar
í sérflokk.
VIRB FRÁ
54.900
PI
PA
R\
TB
W
A
•
S
ÍA
PI
PA
R\
TB
W
A
•
S
ÍASÍ
A
SÍ
A
Forerunner 620
Hlaupaúr
Hvíldartími, súrefnisupptaka,
skrefafjöldi, skreftími og
sendir þráðlaust á Garmin
Connect með WiFi.
HLAUPAÚR FRÁ
23.900
Monterra
Útivistartæki
Android, Vídeó, FM útvarp,
netvafri, tölvupóstur, myndavél
og margt annað spennandi.
ÚTIVISTARTÆKI FRÁ
29.900
Ögurhvarfi 2, 203 Kópavogi | S: 577 6000 | www.garmin.is | Opið kl. 10-18 fram að jólum. Kl. 10-12 á aðfangadag.