Fréttablaðið - 18.12.2013, Blaðsíða 62
18. desember 2013 MIÐVIKUDAGUR| MENNING | 42
BAKÞANKAR
Höllu Þórlaugar
Óskarsdóttur
„Ég flutti hingað 19. desember fyrir
22 árum og það fyrsta sem ég lærði
að segja var: Gleðileg jól. Ég gift-
ist Íslendingi og hef búið hér síðan,“
segir Pauline McCarthy, skosk kona
sem býður einmana fólki heim til
sín á aðfangadag.
„Ég hef boðið fólki heim til mín á
aðfangadag í nítján ár, nema í fyrra
þegar ég þurfti að fara til London.
Ég byrjaði á þessu því ég vissi að
það væru margir nemar sem væru
einir á jólunum. Síðan varð ég for-
maður Félags nýrra Íslendinga og
þá voru flestir þeir sem komu heim
til mín á jólunum innflytjendur eða
nemar. Ég flutti til Akraness fyrir
sjö árum og varð sjálfboðaliði hjá
Rauða krossinum. Þá gerði ég mér
grein fyrir því að það eru margir
Íslendingar líka einir á jólunum.
Ég hélt að allir ættu fjölskyldu sem
þeir gætu leitað til. Núna er hópur-
inn sem kemur til mín mjög bland-
aður og það kemur meira að segja
einn ferðamaður til mín í ár,“ segir
Pauline.
Mismunandi er hve margir heim-
sækja hana á aðfangadag en mest
hafa verið sautján manns á heim-
ilinu sem hún deilir með eiginmanni
sínum og tveimur sonum, sextán og
tuttugu ára.
„Ég á tíu systkini og ég er vön
því að hafa mikið af fólki í kringum
mig. Mér finnst ekki vera jól nema
húsið sé fullt af fólki. Eiginmaður
minn og synir styðja mig í þessu og
ég gæti þetta ekki án þeirra.“
Aðfangadagskvöld er annars frek-
ar hefðbundið á heimilinu og Paul-
ine segir alla velkomna í heimsókn.
„Stemningin er yndisleg. Sumir
eru pínulítið feimnir en þeir eru það
ekki lengi því ég fíla það ekki. Við
fáum okkur góðan kvöldmat en mat-
urinn er ekki alltaf kominn á borðið
klukkan sex því ég er með ADHD.
Eftir matinn setjumst við í stof-
una og fáum okkur eftirrétt og svo
er alltaf eitthvað undir trénu. Við
hjónin eigum ekki mikinn pening en
sjáum til þess að allir fái litla gjöf,“
segir Pauline. Hún bendir fólki á að
strætó til Akraness gangi snemma á
aðfangadagsmorgun og býður fólki
að gista hjá sér í svefnpokum. Þá
getur hún líka séð til þess að fólk
sé sótt og skilað aftur eftir hátíðar-
höldin.
Pauline er margt til lista lagt og
rekur fyrirtækið Ísland Treasures
sem framleiðir minjagripasælgæti.
Þá tók hún þátt í raunveruleikaþætt-
inum Ísland Got Talent sem fer í
loftið eftir áramót. Hún er þögul
sem gröfin um þá reynslu og því
verða áhorfendur að bíða þangað
til í janúar til að sjá hvernig henni
gekk. liljakatrin@frettabladid.is
Býður einmana fólki
heim á aðfangadag
Pauline McCarthy er skosk kona sem fl utti til Íslands fyrir 22 árum. Í nítján ár
hefur hún boðið einmana fólki heim á aðfangadag til að fagna jólunum. Hún
ólst upp með tíu systkinum og fi nnst ekki vera jól nema húsið sé fullt af fólki.
ÓFEIMIN
Pauline er
mjög opin og
elskar að hafa
mikið af fólki í
kringum sig.
FRÉTTABLAÐIÐ/
DANÍEL
Þá gerði ég mér
grein fyrir því að það eru
margir Íslendingar líka
einir á jólunum. Ég hélt
að allir ættu fjölskyldu
sem þeir gætu leitað til.
Pauline McCarthy
Sigríður Thorlacius mun ásamt
hljómsveit sinni leika á útgáfutón-
leikum í Fríkirkjunni í Reykjavík
í kvöld.
Á plötunni, sem ber titilinn Jóla-
kveðja, eru frumsamin lög en text-
arnir eru sóttir í klassísk íslensk
ljóðasöfn. Textarnir spanna nokk-
uð langt tímabil, þeir elstu eiga
rætur sínar að rekja til aldamót-
anna 1900 en þeir yngstu ná allt til
árþúsundamótanna 2000.
Sigríður Thorlacius hefur á
stuttum ferli skapað sér sess með
fremstu söngkonum þjóðarinnar.
Tónleikarnir hefjast stundvíslega
klukkan 20.00. - glp
Jólakveðja í
Fríkirkjunni
ÚTGÁFUTÓNLEIKAR Sigríður Thor-
lacius leikur ásamt hljómsveit sinni á
útgáfutónleikum í Fríkirkjunni í kvöld.
FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Tónleikar Skálmaldar og Sin-
fóníuhljómsveitar Íslands verða
fáanlegir í verslunum víðast hvar
á höfuðborgarsvæðinu í dag og
um land allt á morgun. Til stóð
að tónleikarnir, sem gefnir eru
út á geisla- og mynddiski, kæmu
í verslanir í gær en tafir á fram-
leiðslu komu í veg fyrir það.
Sveitin sendi frá sér tilkynningu
á fésbókarsíðu sinni þess efnis að
hún fyndi fyrir ofboðslegum byr í
seglin en ekki væri unnt að panta
meira fyrir jólin og því yrði að
treysta á að upplagið dygði. „Við
bendum þó jólasveinum á að bíða
ekki of lengi með að kaupa gripinn
í jólapakkana.“
Að lokum þakkar sveitin fyrir
stuðninginn og fallegu orðin. - glp
Skálmöld í sölu
KOMNIR ÚT Tónleikar Skálmaldar og
Sinfóníuhljómsveitar Íslands komu út á
geisla- og mynddiski í dag.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Hinn árlegi Kraumslisti verður
tilkynntur í sjötta sinn í dag en
þá kemur í ljós hvaða plötur skipa
listann í ár og hljóta viðurkenn-
ingu tónlistarsjóðsins Kraums sem
bestu plötur ársins.
Tuttugu manna dómnefnd velur
á Kraumslistann en fyrir tveimur
vikum tilnefndi níu manna öld-
ungaráð Kraums tuttugu plötur
á sérstakan úrvalslista sem dóm-
nefnd velur af. Meðal listamanna
sem eiga plötur á listanum eru
Benni Hemm Hemm, Grísalappa-
lísa, Lay Low, Mammút, Múm, Sin
Fang og Tilbury.
Kraumslistinn verður kynntur
í húsakynnum Kraums tónlistar-
sjóðs í Vonarstræti 4b klukkan
fimm þar sem boðið verður upp á
léttar veitingar. lkg
Kraumslisti
tilkynntur
Jólin eru svo magnaður tími, ekki síst aðventan. Hún er svo óræð; dularfull
blanda af stressi, eftirvæntingu, söknuði
og þrá. Allir hafa hugmyndir um hvern-
ig jólin eigi að vera. Sumir geta til dæmis
ekki hugsað sér aðfangadag án þess að
borða rjúpur. Öðrum finnst allt vera ónýtt
ef hamborgarhryggur er ekki á matseðlin-
um. Sumar fjölskyldur hafa meira að segja
hvort tveggja á boðstólum vegna þess að
samkomulag hefur ekki náðst á gatnamót-
um hjónabandsins. Ólíkar hefðir foreldr-
anna eru kannski eins og tveir segulpólar,
en saman mynda þær nýja og algjörlega
órjúfanlega hefð fyrir afkomendunum.
SYSTKINI keyra út pakka á aðfangadags-
morgun, einn pakki hjá ömmu í hádeg-
inu, mandarínur úr jólasveinakrukkunni,
„skrípó“ í sjónvarpinu. Eftirvænting í
loftinu. Svo líður tíminn, þrátt fyrir
alla heimsins tregðu.
STEFNUMÓT í kirkjugarðinum,
systkini aka hvert í sína áttina, glæný
börn og glæný eftirvænting sem samt
er svo keimlík minningu frá fornu
fari. Mandarínur í jólasveinakrukkunni
sem nú er farin að láta á sjá og eflaust
eru teiknimyndir í sjónvarpinu. Það hlýtur
að vera.
AÐVENTAN er óræður tími. Allt er á fullu
– samt á hvolfi líka. Jólin nálgast með ógn-
arhraða og einhvern veginn er ekkert búið
að gera, alveg fram á síðustu stund. En inni
í manni líður tíminn svo undarlega. Mitt
í öllu stressinu reynir maður að rifja upp
hvað raunverulega skiptir máli og átta sig á
því hvort það sama gildi um aðra líka.
TÍMINN leið öðru vísi á jólunum í æsku.
Þá gat maður setið heila eilífð með höfuðið
út um gluggann að reyna að grípa snjókorn
með tungunni, höndunum – þau bráðnuðu
hraðar í lófanum er á handarbakinu. Höndin
varð svo undarlega köld þegar maður var
búinn að sjúga bráðið snjókornið af handar-
bakinu. Og munið þið eftir tilfinningunni að
finna ískalda mandarínu ofan í skó í glugg-
anum?
Á jólunum eru tilfinningar kynngimagnað-
ar. Söknuður verður sárari, gleði innilegri
og þakklæti fæðist bara upp á nýtt. Og á jól-
unum má maður sko vera tilfinningasamur
með tárin í augunum og segja alls konar
væmið. Jólin eru svo magnaður tími.
Óræður tími aðventunnar
NÁNAR Á MIÐI.IS
FROSINN 2D
FROSINN 3D
THE HUNGER GAMES 2
THE HUNGER GAMES 2 LÚXUS
THE COUNCELOR
FURÐUFUGLAR 2D
PIONEER
MANDELA
THE HUNGER GAMES 2
HROSS Í OSS
PIONEER
MANDELA
THE HUNGER GAMES 2
KL. 3.30 - 5.40
KL. 3.30 - 6
KL. 5 - 6 - 8 - 9
KL. 5 - 8
KL. 8
KL. 3.30
KL. 6 - 8
KL. 10
KL. 6 - 9
Miðasala á: og
KL. 6 - 9
KL. 6 - 9
KL. 6 - 9
KL. 6 - 9
YFIR 35.000 MANNS Í AÐSÓ KN!
TOPPMYNDIN
Á ÍSLANDI Í DAG
-H.S.S, MBL
PHILOMENA
SJÁ FLEIRI SÝNINGAR Á WWW.BIOPARADÍS.IS - Miðasala: 412 7711 - Hverfisgata 54 - bioparadis.is - Hluti af Europa Cinemas
FROZEN 2D 5:45
HUNGER GAMES 2 6, 8, 9
S.B. - FBL
ÍSL TAL
ÁLFABAKKA
AKUREYRI
EGILSHÖLL
KRINGLUNNI
KEFLAVÍK
USA TODAY LOS ANGELES TIMES
THE PLAYLIST
Save the Children á Íslandi