Fréttablaðið - 20.02.2014, Side 4
| FRÉTTIR | 4
LANDBÚNAÐUR Guðni Ágústsson,
framkvæmdastjóri Samtaka
afurðastöðva í mjólkuriðnaði,
segir að hlutdeild Mjólkursam-
sölunnar í samanlögðum osta-
kvóta á síðastliðnum fimm árum
hafi aðeins verið 11 prósent.
„Tölurnar sýna að bændafyrir-
tækin halda ekki uppi verði á
innfluttum ostum,“ segir Guðni.
Samkvæmt upplýsingum
atvinnuvega- og nýsköpunar-
ráðuneytisins hafa fyrirtæki
mátt flytja inn 1.400 tonn af osti
frá árinu 2009.
Sá háttur er
hafður á að fyr-
irtækin bjóða í
tollkvótana og
er þeim úthlut-
að til hæstbjóð-
enda.
Enginn hefur
boðið í rúmlega
fjórðung þess
ostakvóta sem í boði hefur verið,
eða 360 tonn.
Stærsti innflytjandinn er Inn-
nes ehf. sem hefur flutt inn tæp
330 tonn, Sólstjarnan hefur flutt
inn 200 tonn, MS tæp 160 tonn
og innflutningur Haga nemur
tæpum 130 tonnum.
Guðni segir að tölurnar sýni að
það sé rangt, sem haldið hefur
fram í fjölmiðlum, að MS sé ráð-
andi í innflutningi á ostum.
- jme
AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS– AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Guðmundur Steinsson gudmundur@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynur@365.is, Laila Awad laila@365.is,
Sigríður Dagný Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/LÍFIÐ/SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Bryndís Hauksdóttir bryndis@365.is, Ívar Örn Hansen ivarorn@365.is, Kolbeinn Kolbeinsson kolli@365.is, Sverrir Birgir Sverrisson sverrirbs@365.is
FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Sólveig Gísladóttir solveig@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is
SVONA ERUM VIÐ
UMHVERFISMÁL Samkomulag náðist
í gær í umhverfis- og samgöngu-
nefnd um að ný náttúruverndar-
lög verða ekki felld úr gildi heldur
verður gildistöku þeirra frestað til
1. júlí 2015. Sá tími verður nýttur
til að grandskoða þá þætti sem helst
hafa verið umdeildir. Meirihluti og
minnihluti nefndarinnar standa
sameiginlega að niðurstöðunni.
Höskuldur Þórhallsson, þingmað-
ur Framsóknar-
f lokksi ns og
formaður nefnd-
arinnar, segir að
sáttin sem náðist
í gær sé söguleg,
enda hafi margt
bent til þess að
hörð átök yrðu
um málið. Hösk-
uldur vísar til
þess þegar Sigurður Ingi Jóhanns-
son umhverfisráðherra kynnti
áform sín. Var kallað eftir endur-
skoðun einstakra kafla laganna,
eins og nú hefur skapast friður um.
Þrír þingmenn skrifa undir
nefndarálitið með fyrirvara; Birg-
itta Jónsdóttir, þingmaður Pírata,
Katrín Júlíusdóttir, þingmaður
Samfylkingarinnar, og Katrín Jak-
obsdóttir, formaður Vinstri grænna.
Katrín Júlíus-
dóttir fagnar
niðurstöðunni
enda er hún í
samræmi við til-
lögur hennar og
annarra í minni-
hlutanum. Hún
segir niðurstöð-
una afurð ítar-
legrar vinnu sem
leiddi fram að ekki var eins langt
á milli sjónarmiða og í fyrstu leit
út fyrir. Ákveðið hafi verið að fara
þessa frestunarleið með þverpóli-
tískri sátt frekar en að umræða um
náttúruvernd á Íslandi lenti enn og
aftur í blindgötu. Eins fagnar hún
því að umhverfisnefnd fái tækifæri
til að gaumgæfa niðurstöðu ráðu-
neytisins og veita umsögn þegar
þar að kemur. Katrín Jakobsdóttir
tekur undir að það séu stórtíðindi að
samkomulag náist um að hverfa frá
afturköllun laganna og nota tímann
til að reyna að ná sátt um einhverj-
ar breytingar. Hin raunverulega
áskorun sé hins vegar hvort takist
að gera breytingar án þess að draga
úr gildi laganna. „En ég geng til
þeirrar vinnu af fullum heilindum,“
segir Katrín en bætir við að heild-
arhugsun nýju laganna hafi verið
mikið framfaraskref fyrir náttúru-
vernd í landinu. „En ég fagna því að
samkomulag hafi náðst um að kasta
henni ekki fyrir borð heldur leita
leiða til að lögin geti gengið í gildi.“
svavar@frettabladid.is
Nýju lögin fá framhaldslíf
Þingmenn allra flokka í umhverfisnefnd sættust á að ný náttúruverndarlög yrðu ekki afturkölluð í heild sinni.
Gildistöku er þess í stað frestað þangað til endurskoðun er lokið. „Söguleg sátt,“ segir nefndarformaður.
MENGUN Áralöng vinna að baki nýjum náttúruverndarlögum nýtist þrátt fyrir áhyggjur um annað.
FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
HÖSKULDUR
ÞÓRHALLSSON
KATRÍN
JÚLÍUSDÓTTIR
● Að óbreyttu áttu ný lög um náttúruvernd að taka gildi 1. apríl 2014, en
þau voru samþykkt á Alþingi rétt fyrir þinglok í vor. Með brottfalli þeirra
áttu eldri og núgildandi lög frá 1999 að halda gildi sínu.
Þeir þættir nýrra náttúruverndarlaga sem hafa verið sérstaklega
umdeildir varða helst:
● Almannarétt. Í náttúruverndarlögum lýtur almannaréttur helst að rétti
fólks til ferðar um landið til að njóta útiveru og samvista við náttúruna.
Landeigendur hafa sett fram efasemdir um ákvæði nýrra laga.
● Varúðarregluna. Inntak reglunnar er að skorti á vísindalegri fullvissu, þar
sem hætta er á alvarlegu eða óbætanlegu tjóni, skal ekki beitt sem rökum
til þess að fresta aðgerðum sem koma í veg fyrir umhverfisspjöll.
● Ákvæði um sérstaka vernd. Varðar t.d. skipulag friðlýsingar, friðunar og
verndar.
● Utanvegaakstur. Ákvæði laganna um hvar leyfilegt er að aka, t.d. á
hálendinu, hefur mætt harðri gagnrýni. Ekki síst frá samtökum eins og
ferðaklúbbnum 4x4.
● Framandi lífverur. Á við um dýr, plöntur og örverur til dæmis.
Helstu álitamál sem verða endurskoðuð
Hlutdeild Mjólkursamsölunnar í ostakvóta 11 prósent síðastliðin fimm ár:
Enginn boðið í fjórðung kvótans
GUÐNI
ÁGÚSTSSON
INDLAND, AP Hæstiréttur Indlands
breytti dauðadómi þriggja fanga í
lífstíðarfangelsi á þriðjudag. Þre-
menningarnir voru dæmdir til
dauða fyrir tuttugu árum fyrir að
hafa átt minniháttar þátt í morði á
fyrrverandi forsætisráðherranum
Rajiv Gandhi.
Í tvo áratugi hafa þeir beðið
aftöku á dauðadeild í Vellore-fang-
elsinu. Hæstiréttur samþykkti að
breyta dómnum vegna dráttar á
aftöku. Mennirnir segjast ekki
hafa vitað af áætluninni um að
myrða forsætisráðherrann árið
1991, sem Tamíltígrar skipulögðu.
-ue
Þrír fá lífstíðarfangelsi:
Dráttur verður
mönnum lífgjöf
RAJIV GHANDI
SKÓLAMÁL Tillaga sjálfstæðis-
manna um virkt samráð við for-
eldrafélög sem gæfu umsagnir
vegna ráðningar skólastjóra var
felld af öðrum borgarstjórnar-
fulltrúum.
„Með afgreiðslu tillögunnar
sannast enn og aftur að Samfylk-
ingin og Besti flokkurinn hafa
ekki áhuga á að auka samráð við
foreldra um skólastarf í borg-
inni,“ bókuðu sjálfstæðismenn
en fulltrúar Besta flokksins og
Samfylkingar sögðu skóla- og frí-
stundaráð þegar hafa samþykkt
tillögu um að auka aðkomu for-
eldra að ráðningum stjórnenda í
leik- og grunnskólum. - gar
Ráðning grunnskólastjóra:
Vildu aðkomu
foreldrafélaga
Veðurspá
Laugardagur
8-15 m/s NV- og SA-til, annars hægari.
NA-HVASSVIÐRI EÐA STORMUR á landinu SA-verðu í dag og á morgun, annars
allhvasst víða. Úrkoma um landið SA- og A-vert næstu daga og snjóél N-til. Kólnar
heldur í veðri um helgina.
0°
13
m/s
2°
13
m/s
4°
9
m/s
6°
11
m/s
Á morgun
8-15 m/s, hvassara SA-til.
Gildistími korta er um hádegi
-1°
-2°
-2°
-3°
-5°
Alicante
Basel
Berlín
21°
13°
10°
Billund
Frankfurt
Friedrichshafen
6°
11°
11°
Gautaborg
Kaupmannahöfn
Las Palmas
5°
5°
19°
London
Mallorca
New York
12°
17°
8°
Orlando
Ósló
París
29°
0°
13°
San Francisco
Stokkhólmur
16°
0°
3°
12
m/s
4°
11
m/s
2°
9
m/s
2°
11
m/s
-1°
5
m/s
1°
11
m/s
-2°
10
m/s
2°
0°
3°
0°
-2°
Snjólaug Ólafsdóttir
veðurfréttamaður
➜ Innnes er stærsti innflytj-
andi osta hér á landi.
HRÍSEY Þrettán manns var sagt
upp störfum hjá sjávarútvegs-
fyrirtækinu Hvammi í Hrísey í
gær. Fyrirtækið er stærsti vinnu-
veitandinn í eynni. „Ástæða upp-
sagnanna er rekstrarörðugleik-
ar, það vantar fisk og það er búin
að vera leiðindatíð og lítil veiði.
Það er erfiður rekstur á þessu,“
segir Þröstur Jóhannsson, einn
eigendanna. Miðað við hlutfall af
íbúafjölda jafngilda uppsagnirnar
því að rúmlega 30.000 manns yrði
sagt upp á höfuðborgarsvæðinu. -js
Mörgum sagt upp í Hrísey:
Þrettán missa
vinnuna í fiski
19% fyrirtækja nota sam-félagsmiðla til þess
að ráða fólk.
Í heild nota 59 prósent fyrirtækja
samfélagsmiðla. Hæsta hlutfall er
meðal gisti- og veitingastaða, eða
91 prósent.
Gefum 80.000 kr.
af eldsneyti dagana
25-28. febrúar!
www.lodur.is - Sími 544 4540
Vertu vinur okkar á Facebook
og þú gætir unnið!