Fréttablaðið - 20.02.2014, Blaðsíða 16

Fréttablaðið - 20.02.2014, Blaðsíða 16
20. febrúar 2014 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR NEYTENDUR | 16 1 Prófaðu Töfrateppið„Byrjendakennsla snýst fyrst og fremst um að koma sér af stað. Það er flott byrjendalyfta í Bláfjöllum sem kallast Töfrateppið. Þar er færiband sem þú labbar inn á. Fyrst og fremst þarf fólk að geta haldið jafnvægi, vera með stafi og æfa sig.“ 2 Komdu þér í takt„Öll skíðakennsla byggist á því að koma þér í takt og kenna þér það sem kallast staftak. Þetta er flæði þar sem þú ert að láta skíðin skíða með þig. Þú ert ekkert að stjórna þeim sjálfur heldur eru þau að stjórna þér.“ 3 Áttatíu þúsund í upphafi„Startkostnaðurinn er frekar hár. En ef þú tekur árskort á skíðasvæði þá kosta fimm mánuðir fyrir fullorðinn í kringum tuttugu þúsund kall, frá desember fram í lok apríl, sem er alls ekki mikið. En ef þú þarft að kaupa þér skíði, skó og stafi þá ættir þú að komast af með byrjendabúnað sem kostar í kring- um áttatíu til eitt hundrað þúsund ef þú kaupir ekki notað.“ 4 Ekki láta ljúga að þér„Það er verið að selja svo mikið af notuðum skíðabún- aði sem reynist ekki vera góður. Til dæmis er verið að ljúga að fólki að það sé að kaupa carving-skíði. Það er verið að selja þetta dýrum dómum á netinu til fólks sem hefur kannski ekkert vit á þessu.“ 5 Láttu bera á skíðin„Það sem fólk þarf að gera miklu meira af er að huga að búnaðinum sínum. Það þarf að láta bera á skíðin sín reglulega. Það þarf að vaxa þau reglulega þannig að þau renni sem eðlilegast. Það getur haft áhrif á skíðagetu manna ef skíðun- um er ekki vel við haldið. Ending búnaðarins verður þ.a.l. betri.“ Fimm fróðleiksmolar skíðakennara Einar Lyng hefur áralanga reynslu af skíðakennslu og hefur leiðbeint fólki bæði í Bláfjöllum og í Hlíðarfjalli á Akureyri. Hér gefur hann lesendum Fréttablaðsins fimm góð ráð varðandi skíðaiðkun, sérstaklega þeim skíðamönnum sem eru að stíga sín fyrstu skref í íþróttinni. Bláfjöll Reykjavík Dagskort Fullorðnir 3.100 kr. Unglingar 1.200 kr. Börn 800 kr. Leiga á skíðum, skóm, brettum og stöfum: Fullorðnir 4.500 kr. Börn 4.000 kr. Samtals miðað við 2 fullorðna og 2 börn 24.800 kr. Vegalengd til og frá Reykjavík 70 km Bensínverð 1.673 kr. (miðað við að bíll eyði 10 l á 100 km) Alls 26.000 kr. ➜ Hvað kostar einn dagur á skíðum? Hlíðarfjall Akureyri Dagskort Fullorðnir 4.000 kr. Börn 1.200 kr. Leiga á skíðum, skóm og stöfum: Fullorðnir 4.200 kr. Börn 2.000-3.200 kr. Samtals miðað við 2 fullorðna og 2 börn 22.800 kr. Vegalengd til og frá Reykjavík 772 km Bensínverð 18.450 kr. (miðað við að bíll eyði 10 l á 100 km) Alls 41.000 kr. Skarðsdalur Siglufirði Dagskort Fullorðnir 1.800 kr. (helgidagar 2.800 kr.) Börn 700 kr. Leiga á skíðum, skóm, brettum og stöfum Fullorðnir 4.500 kr. Börn 2.500 kr. Samtals miðað við 2 fullorðna og 2 börn 19.000 kr. Vegalengd til og frá Reykjavík 766 km Bensínverð 18.307 kr. (miðað við að bíll eyði 10 l á 100 km) Alls 38.000 kr. Tungudalur Ísafirði Dagskort Fullorðnir 2.200 kr. Börn 1.100 kr. Leiga á skíðum, skóm og stöfum Fullorðnir 3.300 kr. Börn 2.700 kr. Samtals miðað við bensín 2 fullorðna og 2 börn: 18.600 kr. Vegalengd til og frá Reykjavík 902 km Bensínverð 21.557 kr. (miðað við að bíll eyði 10 l á 100 km) Alls 40.000 kr. Í AUSTURRÍKI Einar Lyng var nýlega staddur í Austurríki þar sem hann fór að sjálfsögðu á skíði. Lilja Sigurðardóttir, rithöfundur og leikskáld, segist sjaldan upplifa það að gera slæm kaup en það komi þó einstaka sinnum fyrir. „Verstu kaupin sem ég hef gert lengi voru í Bandaríkjunum í nóvember. Þá keypti ég mér jakka í Target á 35 dali en hann endaði á því að kosta í raun um 400 þúsund krónur. Óprúttnir aðilar náðu nefnilega kreditkorta- númerinu mínu í gegnum tölvukerfi verslunarinnar og hófust þegar handa við að taka út af kort- inu mínu,“ segir hún. „Ég fékk tjónið bætt en vesenið við að láta loka kortinu og setja aftur upp allar fastar greiðslur sem á því voru, var hundleiðinlegt svo að ég er enn í dálítilli fýlu við jakkann.“ Lilja segir að oftast séu bestu kaupin sem hún geri í óbrotgjörnum verðmætum. „Ég er alltaf ánægð með allar fjárfestingar sem ég geri í námi, menningu, ferðalögum og öðru sem mun lifa innra með mér áfram. Nú á dögunum keypti ég mér aðgang að glæpa- sagnahátíðinni Iceland Noir sem verður haldin í Norræna húsinu 21. og 22. nóvember. Á hátíðina mætir fjöldi höfunda og áhugafólks um glæpasögur. Aðgangurinn kostaði örfáa þúsundkalla og í staðinn mun ég njóta þess að hitta og spjalla við alla helstu íslensku glæpasagnahöfundana auk fjölda erlendra. Ég er full tilhlökkunar svo þetta eru bestu kaup sem ég hef gert lengi.“ - fb NEYTANDINN Lilja Sigurðardóttir, rithöfundur og leikskáld Jakki á 400 þúsund krónur LILJA SIGURÐARDÓTTIR Lenti í vandræðum út af jakka sem hún keypti. MYND/BÁRA
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.