Fréttablaðið - 20.02.2014, Síða 31
KONUDAGUR
FIMMTUDAGUR 20. FEBRÚAR 2014 Kynningarblað Uppskriftir, hugmyndir og sagan.
Millinafnið Kona festist við mig á menntaskóla árunum,“ segir Krist-björg Kona sem þá var í pönk-
hljómsveit og mjög virk í kvennapólitík-
inni.
„Engin orð eru bönnuð í pönkinu og
ég vildi sérstaklega upphefja allt sem var
kvenlegt og viðkom konum. Við nefnd-
um til dæmis hljómsveitina okkar Á túr,
því við vildum deila á þá neikvæðni og
hræðslu sem einkenndi það að fara á
blæðingar. Þetta var tímabilið þegar allir
voru að taka upp meiðyrði og snúa þeim
í andhverfu sína. Það er auðvitað góð leið
til að endurheimta skilgreiningarvald.“
Kristbjörgu Konu hefur alltaf verið
mikilvægt að afsanna þá kenningu að
konur séu konum verstar.
„Ætli það verði ekki mitt ævistarf að
stússast í því. Það hlýtur að vera hagur
okkar allra að útiloka allar þær hug-
myndir og alla þá orðræðu sem niðurlæg-
ir okkur á þeim forsendum að við erum
konur.“
Kristbjörg hefur tvívegis sótt um að fá
millinafnið Kona samþykkt hjá manna-
nafnanefnd og tvisvar fengið synjun.
„Í seinna skiptið komst mannanafna-
nefnd að þeirri niðurstöðu að það væri niðr-
andi fyrir stúlkubarn að fá nafnið Kona. Nú
eru nýir tímar og komin ný mannanafna-
nefnd, svo ég þarf endilega að fara að sækja
um aftur. Ég vona bara að í nefndinni sitji
ekki fólk sem finnst enn vera niðurlæging
að bera nafnið Kona.“
Konur gera heiminn betri
Konudagur er á sunnudaginn kemur og
segir Kristbjörg að dagurinn eigi að snúast
um konur í allri sinni dýrð, eins fjölbreytt-
ar og stórfenglegar og þær eru.
„Hverri konu á að vera frjálst að túlka
konudaginn eins og hún vill. Sjálf sé ég
þennan dag sem gleðidag. Dagurinn færir
með sér hækkandi sól og vonina um vorið,
sem er lýsandi fyrir mikil vægi kvenna til
að gera heiminn betri.“
Kristbjörg er með BA-gráðu í mannfræði
og kynjafræði frá Háskóla Íslands og segir
líf kvenna hafa gjörbreyst á síðustu áratug-
um; jafnvel á síðustu árum.
„Staða kvenna fer þó alveg eftir því hvar í
heiminum þær fæðast. Á Íslandi er afskap-
lega gott að vera kona í samanburði við fjöl-
mörg önnur lönd. Samt búum við í landi þar
sem kynbundinn launamunur er landlægur
og tíðni kynferðisbrota geigvænlega há.“
Hún segir misréttið þó ekki skilgreina ís-
lenskar konur.
„Íslenskar konur eru sterkar, flottar og
sjálfstæðar. Samstaða okkar gegn kynja-
misrétti hefur náð langt, áorkað miklu og
aukið lífsgæði okkar á svo mörgum sviðum.
Og hún mun halda áfram að gera það.“
Sterkar, flottar, sjálfstæðar konur
Heita má Karl en ekki Kona. Það hefur kvenréttindakonan Kristbjörg Kona Kristjánsdóttir í tvígang látið reyna á með umsóknum
sínum til mannanafnanefndar sem neitaði henni um millinafnið Kona. Ástæðan? Það þótti of niðurlægjandi að bera nafnið Kona.
Kristbjörg segist ætla að láta reyna á það í þriðja skiptið að fá að bera millinafnið Kona. MYND/DANÍEL