Fréttablaðið - 20.02.2014, Blaðsíða 48

Fréttablaðið - 20.02.2014, Blaðsíða 48
20. febrúar 2014 FIMMTUDAGUR| MENNING TÓNLIST | 32 TÓNNINN GEFINN Haukur Viðar Alfreðsson Skýringar Stendur í stað síðan í síðustu viku Fellur um sæti síðan í síðustu viku Hækkar á lista síðan í síðustu viku Nýtt á lista Listarnir eru teknir saman fyrir Félag hljómplötuframleiðenda. Listarnir eru birtir í heild sinni á Vísir.is. Þátttakendur í Lagalistanum Bylgjan, FM957, Xið 977, Rás 2, K100,5, tonlist.is. Verslanir í Tónlistanum Skífan, Hagkaup, Penninn/ Eymundsson, 12 tónar, Harpa, Smekkleysa plötubúð, Elko, tonlist.is. LAGALISTINN TÓNLISTINN 13.2.2014 ➜ 19.2.2014 1 Ýmsir Söngvakeppnin 2014 2 Skálmöld og Sinfó Skálmöld og Sinfó 3 Ásgeir Trausti Dýrð í dauðaþögn 4 Ýmsir Pottþétt 61 5 Samaris Samaris 6 Kaleo Kaleo 7 John Grant Pale Green Ghosts 8 Baggalútur Mamma þarf að djamma 9 Mammút Komdu til mín svarta systir 10 Ásgeir In The Silence 1 Pharrell Happy 2 Avicii Hey Brother 3 Ed Sheeran I See Fire 4 Gary Barlow Let Me Go 5 Björgvin Halldórsson / Jón Jónsson Kæri vinur 6 Kaleo Automobile 7 Ellie Goulding How Long Will I Love You 8 Rudimental / Emeli Sandé Free 9 Pollapönk Enga fordóma 10 Aloe Blacc The Man „Fjölskyldan mín leikur með mér á tónleikunum, dætur mínar tvær syngja og spila á hljómborð og píanó, svo verða þær líka með mennina sína með sér þannig að þetta verður mjög skemmtilegt,“ segir tónlistarmaðurinn Rúnar Þórisson en hann heldur upp á útgáfu þriðju sólóplötu sinnar í kvöld í Iðnó. Það má með sanni segja að um músíkalska fjölskyldu sé að ræða en dætur Rúnars, þær Lára og Margrét radda og syngja hvor sitt lagið á plötunni og koma þær fram með föður sínum á tónleik- unum. Báðar eru þær velkunnar og virkar í tónlistarbransanum og hafa komið fram með ýmsum hljómsveitum. Sambýlismenn og eiginmenn þeirra, þeir Arnar Þór Gíslason trommuleikari og Birkir Rafn Gíslason gítarleik- ari koma einnig fram á tónleik- unum. Guðni Finnsson sem er í raun fóstbróðir Arnars Þórs leik- ur á bassa. „Já, það mætti alveg segja að Guðni sé fóstbróðir Arnars þar sem þeir eru saman í nánast öllu og þekkja vel hvor annan. Á plöt- unni eru einnig blásarar, strengir og kvennakór í nokkrum lögum en ég ætla bara að halda mig við fjölskylduna og hafa þetta frekar fjölskylduvænt og um leið rokk- að,“ segir Rúnar um tónleikana. Á plötunni Sérhver vá má heyra glitta í gítarhljóm sem minnir óneitanlega á hljóm sem heyrðist þegar hljómsveitinni Grafík er ljáð eyra en Rúnar var og er einmitt gítarleikari þeirrar sveitar eins og flestir vita. Grafík kom saman árið 2011 á Aldrei fór ég suður og gefin var út heimildarmynd um hljómsveit- ina það ár, „ætli það sé ekki skýr- ingin á því að gamli gítarhljóm- urinn komi fram á plötunni.“ Rúnar byrjaði einmitt að vinna í nýju plötunni það sama ár. Rúnar hefur nú gefið út þrjár sólóplötur og segist hafa á fyrri sólóplötum leitað annarra leiða hvað varða spilastílinn en ein- kenndi Grafík en hann hafi á nýju plötunni opnað fyrir allt. Söngur Rúnars heyrist vel á nýju plötunni. „Þetta er fyrsta sólóplatan sem ég syng inn á aðalsöng. Ég kann vel við mig við míkrófóninn, maður fær mikla útrás í söngnum, sérstak- lega þegar maður semur text- ana,“ útskýrir Rúnar. Þetta er þó ekki í fyrsta sinn sem hann syng- ur aðalsöng því hann söng nokk- ur lög á fyrstu tveimur plötum Grafíkur á árum áður. Fyrir utan að semja öll lögin á plötunni samdi Rúnar alla text- ana. „Textarnir skipta mig miklu máli og eru flestir persónuleg- ar hugleiðingar um lífið og til- veruna.“ Platan er tileinkuð konu Rúnars, Örnu Vignisdóttur. Tónleikarnir fara fram í Iðnó í kvöld og hefjast klukkan 20.30. Miðasala fer fram á midi.is og í Iðnó á milli kl 11.00-16.00 í dag og við innganginn fyrir tónleika. gunnarleo@frettabladid.is Fjölskyldan saman á útgáfutónleikunum Rúnar Þórisson fagnar útgáfu sinnar þriðju sólóplötu, Sérhver vá, í kvöld. Dætur og tengdasynir Rúnars leika með honum á plötunni og einnig á tónleikunum. FJÖLSKYLDAN SAMAN Rúnar Þórisson ásamt dætrum sínum tveimur Láru og Margréti, Arnari Þór Gíslasyni, Guðna Finnssyni og Birki Rafni Gíslasyni. Þau koma fram á tónleikum í kvöld. MYND/KRISTÍN PÉTURSDÓTTIR Söngkonan Laura Jane Grace fer fyrir bandarísku pönkrokksveitinni Against Me! sem spilaði í Reykjavík fyrir níu árum. Þá gekk Grace undir nafninu Tom Gabel en árið 2012 greindi hún frá því opinber- lega að hún væri kona. Í síðasta mánuði sendi sveitin svo frá sér sína fyrstu breiðskífu eftir þessi merkilegu tíðindi. Transgender Dysphoria Blues nefnist gripurinn og um eins konar þemaplötu er að ræða. Grace syngur af mikilli ákefð um reynslu sína af því að vera kona í líkama karlmanns, for- dóma samfélagsins og ástina frá sjónarhorni transmanneskju. Ég verð að viðurkenna að áður en ég hlustaði á þessa plötu hélt ég að ég hefði heyrt rokktexta um allt í heiminum. Trúði því að samin hefðu verið lög um hér um bil allt sem hægt er að semja um. En þá varpaði Against Me! þessari kærkomnu sprengju inn í tón- listarveruleika minn. Textarnir á plötunni skipta heilmiklu máli og kenna þeim heilmikið sem hlusta. Grace syngur um það að hana dreymi um að strákarnir sjái hana eins og allar hinar stelpurnar, en sjái þess í stað „bara fagga“. Þá syngur hún um kvennaveiðar fortíðar með karlkyns vinum sínum, þar sem hún óskaði sér einskis heitar en að vera eins og þeir. Þetta eru vandamál sem ég hef aldrei staðið frammi fyrir, og aldrei fengið betri innsýn í en nú. Og þetta eru bara tvö lög af tíu. Takk fyrir þetta, Laura. Núna skil ég betur hvernig það er að vera eins og þú. Núna veit ég líka að það er fullt, fullt af rokktextum sem enn á eftir að semja. Takk fyrir mig! KÆRKOMIN SPRENGJA Textar Against Me! hafa aldrei verið beittari. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY Sigurður Flosason – Blátt áfram Mono Town – In the Eye of the Storm Daley – Days & Nights Í spilaranum Ég kann vel við mig við míkrófóninn, maður fær mikla útrás í söngn- um, sérstaklega þegar maður semur textana. Rúnar Þórisson
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.