Fréttablaðið - 20.02.2014, Page 52
20. febrúar 2014 FIMMTUDAGUR| LÍFIÐ | 36
FÆDDUR 1970 STAÐA Bassaleikari
STARF Sölumaður
Guðni Finnsson
Guðni hefur leikið með fj ölda
hljómsveita en á meðal þeirra
sveita sem hann hefur leikið með
eru Ensími, Mugison, Dr. Spock og
Rass.
FÆDDUR 1974 STAÐA Gítar og söngur
STARF Leikskólakennari
Heiðar Örn Kristjánsson
Heiðar og Haraldur eru æskuvinir úr
Hafnarfi rðinum og stofnuðu hljómsveitina
Botnleðju ásamt Ragnari Páli Steinssyni
árið 1994. Heiðar hefur einnig gefi ð út
tónlist undir nafninu The Viking Giant
Show.
Fjögur ár eru liðin síðan Justin Bieber skók heimsbyggðina með laginu Baby sem annað
hvert mannsbarn raulaði í tíma og ótíma þegar vinsældir lagsins voru sem mestar.
Myndbandið við lagið varð það vinsælasta í sögu YouTube í júlí árið 2010 og hélt þeim
titli þangað til Gangnam Style með PSY hrifsaði hann til sín í nóvember árið 2012.
Aðdáendur Justins Bieber, svokallaðir Beliebers, hafa búið til kassmerkið
#4YearsOfBaby á Twitter og vilja meðal annars að milljarður skoði mynd-
bandið við lagið áður en poppprinsinn fagnar tvítugsafmæli sínu hinn 1.
mars. Kassmerkið er afar vinsælt á samfélagsmiðlinum og eru tístin með
merkinu orðin óteljandi á þessum fyrstu vikum nýs árs.
Pollapönk skipa miklir reynsluboltar
Hljómsveitin Pollapönk sigraði í söngvakeppni Sjónvarpsins sem fram fór um liðna helgi með lagið Enga fordóma. Sveitin var stofn-
uð árið 2006 af þeim Haraldi Frey Gíslasyni, leikskólakennara og formanni Félags leikskólakennara, og Heiðari Erni Kristjánssyni leik-
skólakennara. Hljómsveitin hefur stækkað á undanförnum árum en hana skipa miklir reynsluboltar úr tónlistarbransanum. Nokkrar
af merkustu hljómsveitum íslenskrar tónlistarsögu mætast í sveitinni sem Pollapönkarar. Sveitin hefur gefi ð út þrjár plötur en fyrsta
platan var útskrift arverkefni Heiðars og Haralds frá Kennaraháskóla Íslands.
HE FOLLOWED ME
@eljsarauhl
#4Yearsofbaby
@justinbieber til
hamingju ég er svo
stoltur af þér. Þú ert
besta átrúnaðargoðið í
heiminum. Belieb-
ers elska þig.
CECE
@partyhardbiebs
Justin á skilið aðra
plötu til að sýna þeim
sem hata hann að
hann verði í tónlistar-
bransanum að eilífu
#4Years OfBaby
RE-FOLLOW ME JUSTIN
@BieberGalaxy101
Það er á þessum tíma
árs sem maður gerir sér
grein fyrir að það að
vera Belieber var ekki
bara tímabil #4year-
sOfBaby
FÆDDUR 1974 STAÐA Gítar og söngur
STARF Leikskólakennari og formaður Félags
leikskólakennara
Haraldur Freyr Gíslason
Hann stofnaði Pollapönk árið 2006 ásamt Heiðari Erni.
Pollapönk hefur gefi ð út þrjár plötur og bera þær titlana
Pollapönk, Meira pollapönk og Aðeins meira pollapönk.
Fyrsta platan var útskrift arverkefni Haralds og Heiðars
frá Kennaraháskóla Íslands. Haraldur gaf út barnaplötuna
Hallilúja 2001.
FÆDDUR 1978 STAÐA Trommur
STARF Sölumaður
Arnar Þór Gíslason
Arnar hefur leikið með ótal hljómsveitum en á
meðal þeirra sveita sem hann hefur leikið með
eru Ensími, Mugison, Dr. Spock, Írafár, Bang
Gang og Pétur Ben. Hann hefur einnig leikið í
sjónvarpsþáttum á borð við Bandið hans Bubba
og íslenska ídólinu.
ARNAR er bróðir HARALDAR og
eru þeir mjög nánir.
ARNAR er eiginmaður tónlist-
arkonunnar Lára Rúnarsdóttur.
ARNAR og GUÐNI eru saman í ótal hljómsveitum
eins og Ensími, Dr. Spock og með Mugison. Þeir eru
eitt vinsælasta og þéttasta hrynpar landsins.
ARNAR og GUÐNI starfa báðir í
Hljóðfærahúsinu-Tónabúðinni.
LÍFIÐ
20. febrúar 2014 FIMMTUDAGUR
#4YearsOfBaby
TREND Á TWITTER
Óttar Proppé,
fjólublái-alþingispolli
Óttar er með Guðna í
hljómsveitinni Rassi.
Hann er einnig með
Arnari og Guðna í hljóm-
sveitinni Dr. Spock.
Bibbi var í hljómsveitinni
Innvortis frá Húsavík
og lék sú hljómsveit oft
á sömu tónleikum og
Botnleðja. Haraldur var
mikill aðdáandi Innvortis.
Snæbjörn
Ragnarsson (Bibbi)
appelsínuguli polli