Fréttablaðið - 24.04.2014, Blaðsíða 1

Fréttablaðið - 24.04.2014, Blaðsíða 1
FRÉTTIR MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI* *Samkvæmt prentmiðlakönnun Capacent Gallup janúar - mars 2012 Fimmtudagur 22 HAMMONDHÁTÍÐ Á DJÚPAVOGI Níunda Hammondhátíðin á Djúpavogi hefst í dag og stendur fram á sunnudag. Hammondhátíðin er tónlistarhátíð og hefur það að meginhlutverki að heiðra og kynna Hammondorgelið. Margir þekktir tónlistarmenn hafa komið fram á hátíðinni og svo verður einnig nú, Todmobile og Raggi Bjarna eru meðal þeirra. U nnur Pálmarsdóttir MBA, eigandi og framkvæmda-stjóri Fusion Fitness Academy og stöðvarstjóri World Class á Seltjarnarnesi, hefur stundað líkamsrækt um langt skeið með frábærum árangri. Hún hefur kennt heilsurækt, þol-fimi og dansfitness úti um allan heim í yfir 30 löndum og á að baki fjölda Íslandsmeistaratitla. „Ég trúði því varla hvað Magnesíum Sport-spreyið virkaði vel! Eftir þungar líkams-æfingar og mikið svitatap er frábært að taka inn steinefnið magnesíum því við töpum því í gegnum svita og það getur leitt af sér aukna þreytu, harðsperr-ur og vöðvakrampa. Magnesíum Sport-spreyið er sérstaklega áhrifaríkt við orkumyndun og endurheimt vöðva. Með því að spreyja magnesíumi beint á húðina skilar það sér hratt og örugglega inn í frumur líkamans og tryggir hámarksupptöku. Mér finnst best að nota það áhelstu ál MAGNESÍUMSPREY – HREINASTA SNILLDGENGUR VEL KYNNIR Unnur Pálmarsdóttir, líkamsræktarfrömuður, hóptíma- kennari og stöðvarstjóri, hugsar vel um heilsuna. Hún kolféll fyrir Magnesíum Sport-spreyinu frá Better You og notar það ávallt fyrir og eftir æfingar enda tryggir það hámarksupptöku. KEMUR Í VEG FYRIRKRAMPA GOTT AÐ SPREYJA FYRIR OG EFTIR ÆFINGAR „Ég mæli eindregið með magnesíumspreyinu frá Better You því það hefur hjálpað mér við endurheimt vöðva og til að koma í veg fyrir krampa og harð-sperrur.“ Opið virka daga kl. 11–18. Opið laugardaga kl. 11–16. á m ynLaugavegi 178 (Bolholtsm i ) Verð 13 Stærð 38 litir: svart, hvítt, ljórautt, orange, g di r o g ve rð á F ac eb oo k .900 kr. 4 - 56 sbeige, sandbrúnt, rænt, fjólublátt. TÆKIFÆRISGJAFIR TILBOÐ Laugaveg i 178 - S ím i : 568 9955 pHnífa aratöskur – 12 manna 14 tegundirVerð frá kr. 24.990 SÉRBLAÐ Fólk Sími: 512 5000 24. apríl 2014 95. tölublað 14. árgangur Tap á hótelunum Á höfuðborgarsvæðinu var meirihluti hótela rekinn með tapi frá 2009- 2012. Betur gekk á landsbyggðinni. 4 Verkfall vofir yfir Skólastjórar segja grunnskólakennara neyðast til að undirbúa verkfall til að fá sjálfsagða launaleiðréttingu. 6 Vinsælasta sprautulyfið Flestir sprautufíklar á Vogi misnota ritalín. 8 Evrópa í bata Evrópuríkin eru hægt og rólega að ná tökum á fjárhagsvand- ræðum sínum. Vandinn er samt ekki horfinn, atvinnuleysi er víða mikið þótt nokkur árangur hafi náðst. 18 MENNING Ingunn Ásdísar- dóttir hlaut Íslensku þýð- ingaverðlaunin. 36 LÍFIÐ Götutískan í miðbæn- um var fjölbreytt í sólinni síðasta vetrardaginn. 44 SPORT Grasið á Laugar- dalsvelli er dautt og verður ekki leikið þar í maí. 50 KÖNNUN Meirihluti Samfylkingar, Framsóknarflokks og óháðra og Vinstri grænna á Akranesi er fall- inn samkvæmt niðurstöðum skoð- anakönnunar Fréttablaðsins og Stöðvar 2 þrátt fyrir að flokkarnir þrír fengju samanlagt 52 prósent atkvæða samkvæmt könnuninni. Björt framtíð býður fram í fyrsta skipti á Akranesi og fengi 15,6 prósent atkvæða og einn bæjar fulltrúa yrði kosið í dag. Samfylkingin tapar miklu fylgi, mælist með 23,8 prósent en fékk 34,8 prósent í síðustu kosningum. Flokkurinn tapar tveimur af fjór- um bæjarfulltrúum. Sjálfstæðisflokkurinn styrkir stöðu sína og næði fjórum fulltrú- um í bæjarstjórn miðað við niður- stöður könnunarinnar, en er með tvo í dag. Vinstri græn tapa sínum eina fulltrúa en Framsókn heldur sínum tveimur. - bj / sjá síðu 20 Samfylkingin á Akranesi tapar miklu fylgi samkvæmt könnun Fréttablaðsins: Meirihlutinn á Akranesi fallinnFLJÓTLEGTOG ÞÆGILEGT LÍFIÐ Jón Þór Birgisson, betur þekktur sem Jónsi í Sigur Rós, og Alex Somers semja tónlistina í nýrri bandarískri þáttaröð sem kallast Manhattan. Þættirnir, sem fjalla um kapp- hlaupið við smíði kjarnorku- sprengju á fimmta áratug síðustu aldar, fara í sýningu í júlímánuði á bandarísku sjónvarpsstöðinni WGN. Jónsi og Alex hafa unnið saman í ýmsum verkefnum og hafa samið tónlist saman undir nafninu Jonsi & Alex síðan árið 2003. - glp / sjá síðu 54 Jónsi og Alex semja saman: Sigurrósartónn í nýjum þætti GOTT TEYMI Jón Þór Birgisson og Alex Somers semja tónlist fyrir bandaríska þætti. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA SKOÐUN Stefán Þ. Þórsson skrifar að sjálftöku land- eigenda verði að stöðva. 23 SJÁVARÚTVEGUR Tekjur ríkissjóðs af veiðigjöldum á næsta fiskveiði- ári verða átta milljarðar króna, eða einum milljarði minni en í ár. Tekjur af veiðigjöldum lækka um tæpa tvo milljarða á næsta ári að óbreyttu. Frumvarp til laga um veiðigjöld var lagt fram á Alþingi síðla dags í gær eftir umfjöllun í þingflokk- um stjórnarflokkana. Samkvæmt frumvarpinu nema veiðigjöld níu og hálfum milljarði króna á næsta fiskveiðiári, miðað við 515 þúsunda þorskígildistonna heildarafla. Frá- dráttarliðir útgerðanna gætu numið einum og hálfum milljarði og tekjur ríkissjóðs því orðið átta milljarðar. Sigurður Ingi Jóhannsson sjávar- útvegsráðherra sagði í viðtali við fréttastofu í gær að frumvarpið væri skýrara en verið hefur og svar við ákveðnum neikvæðum röddum sem hafa snúið að útreikningum á síðustu árum. Hann telur dreifingu gjaldanna skynsamari en verið hefur. Kolbeinn Árnason, framkvæmda- stjóri LÍÚ, gagnrýnir harðlega hvernig staðið var að gerð frum- varpsins, sem kemur fram þegar rúm vika lifir af vorþingi. Ekkert hafi verið gert til að greina hvað sjávarútvegurinn geti borið í gjöld, frekar en á undanförnum árum. „Það er engin hugsun í því hvað við viljum sjá íslenskan sjávar- útveg verða til framtíðar; hvort hann haldi samkeppnisstöðu sinni í markaðssetningu og gæðum. Það vantar alla upplýsta umræðu um hvert þetta leiðir okkur,“ segir Kol- beinn og bætir við að þrátt fyrir krónutölulækkun í ríkiskassann þá séu álögurnar á greinina þyngri en þær voru í ljósi verri afkomu í dag. „Það er einfaldlega hent fram tölu sem er hvorki meira né minna en 35 prósent af hagnaði útgerðar- innar. Við það bætist síðan tekju- skatturinn og þetta samsvarar því, reiknað sem tekjuskattur, að greinin sé að greiða 48 prósent tekjuskatt á árinu 2012. Síðan þá hefur afkoman versnað um 25 til 35 prósent,“ segir Kolbeinn og vill minna á gagnrýni núverandi stjórnarflokka á hvernig fyrri rík- isstjórn hélt á málum við lagasetn- ingu fyrri ára. Spurður hvort í raun sé ekki um þyngri álögur á útgerðina að ræða segir Sigurður að hann geri sér grein fyrir að útgerðin telji frum- varpið ekki nægilega jákvætt miðað við versnandi afkomu grein- arinnar, og horfurnar daprar. „Þetta er augljós málamiðlun um að við þurfum tekjur í ríkis- sjóð og það er eðlilegt að greitt sé gjald fyrir auðlindina. Hversu hátt gjaldið á að vera á hverjum tíma er umdeilanlegt en við teljum þetta skynsamlegustu leiðina sem hægt er að fara,“ sagði Sigurður. - shá Gjöldin lækka um milljarð LÍÚ segir vinnubrögð við nýtt veiðigjaldafrumvarp forkastanleg. Þrátt fyrir krónutölulækkun í ríkissjóð hafi álögur á greinina þyngst. Tekjur ríkissjóðs verða 2,8 milljörðum minni árin 2014 og 2015 en áður var áætlað. Bolungarvík 8° NA 3 Akureyri 14° SA 2 Egilsstaðir 10° SA 4 Kirkjubæjarkl. 10° SA 5 Reykjavík 10° SA 7 Bjartviðri N- og V-lands í dag en skýjað með köflum SA-til og dálítil væta. Allhvasst syðst en annars fremur hægur vindur. Hiti 6-15 stig, hlýjast V-til. 4 Það er engin hugsun í því hvað við viljum sjá ís- lenskan sjávarútveg verða til framtíðar. Kolbeinn Árnason, framkvæmdastjóri LÍÚ. 4 fulltrúar 30,2% 2 fulltrúar 23,8% 1 fulltrúi 15,6% Enginn fulltrúi 8,9% 2 fulltrúar 19,5% vikmörk 3,3% 3,8% 3,5 % 3, 0% 2,3% Könnun 22. apríl 2013 SÖGUGANGA Í VORSÓLINNI Birna Þórðardóttir var stödd með hópi fólks á Skólavörðustíg í gær. Mannskapurinn naut veðurblíðunnar og hlustaði á Birnu af athygli en hún hefur skipulagt menningarrölt um miðbæinn um árabil. Búist er við áframhaldandi blíðviðri á höfuðborgarsvæðinu næstu daga. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.