Fréttablaðið - 24.04.2014, Side 53
FIMMTUDAGUR 24. apríl 2014 | LÍFIÐ | 45
Sara Kapfer, eiginkona leikarans
Cuba Gooding Jr. til tuttugu ára,
er búin að sækja um skilnað. Sara
biður um að hún og Cuba deili for-
ræði yfir börnunum þeirra þremur
– Spencer, nítján ára, Mason, sautj-
án ára og Piper, átta ára.
Sara og Cuba kynntust sem
unglingar og giftu sig árið 1994.
Leikarinn hefur ávallt talað vel um
konu sína og kemur skilnaðurinn
mörgum á óvart.
„Ég á yndislega konu sem veit
hvernig á að reka heimili þegar ég
er ekki á staðnum. Og við njótum
blessunar í þremur yndislegum
börnum,“ sagði Cuba í viðtali við
sjónvarpsþáttinn The View í fyrra.
- lkg
Sækir um skilnað
TUTTUGU ÁR Sara og Cuba giftu sig
árið 1994.
„Ég held að ég hafi verið eins og allar stúlkur sem
klæða sig í prinsessukjóla og búast við því að allir
veiti þeim óskipta athygli. Flest okkar vaxa upp úr
því. Ég lék oft í leikritum en mér fannst ég vera of
hégómafull til að vera leikkona,“ sagði leikkonan
Meryl Streep þegar hún var gerð að heiðursdoktor í
háskólanum í Indiana fyrir stuttu.
„Mér fannst ég líka of ljót til að vera leikkona.
Gleraugu voru ekki æðisleg í þá daga,“ bætti Meryl
við. „Mig langar til að segja ungum konum að hafa
ekki of miklar áhyggjur af þyngd sinni. Stelpur
eyða of miklum tíma í að hugsa um það og það eru
betri hlutir í lífinu,“ sagði leikkonan, sem margir
myndu segja að væri íðilfögur.
„Það sem gerir þig öðruvísi eða skrítinn er styrk-
ur þinn. Allir reyna að líta út á einhvern ákveðinn
hátt en í raun er það fólkið sem lítur öðruvísi út sem
er ráðið. Ég hataði einu sinni nefið á mér. Ekki núna.
Það er í lagi.“ - lkg
Hélt að hún væri of ljót til að vera leikkona
Leikkonunni Meryl Streep fannst það fj arlægur draumur að vinna við leiklist.
SÁTT Í EIGIN SKINNI Meryl segir styrk
falinn í því sem er öðruvísi.
FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
➜ Meryl hefur unnið þrenn Óskarsverðlaun
á ferlinum; fyrir The Iron Lady árið 2012,
Sophie‘s Choice árið 1983 og
Kramer vs. Kramer árið 1980.
Leikkonan Emmy Rossum, sem
er hvað þekktust fyrir leik sinn
í sjónvarpsþáttunum Shameless,
birti ansi fyndna mynd af sér á
Twitter-síðu sinni í vikunni. Á
myndinni sést hún þefa af brauð-
beyglu.
„Stundum sakna ég glútens
svo mikið að ég verð að lykta af
því,“ skrifaði Emmy en hún er
með ofnæmi fyrir glúteni, líkt og
söngkonan Miley Cyrus. - lkg
Má ekki borða
glúten
Leikarinn Billy Bob Thornton
segir í samtali við vefsíðuna
YourTango að hann haldi enn
miklu sambandi við fyrrverandi
eiginkonu sína, Angelinu Jolie, en
þau skildu í maí árið 2003.
„Hún er ótrúleg, ótrúleg. Hún
er svo orkumikil og svo góð-
hjörtuð. Við tölum saman við og
við. Hún tryggir það að ég hafi
það gott og ég geri slíkt hið sama
fyrir hana,“ segir Billy Bob.
Billy Bob og Angelina eyddu
tveimur stormasömum árum
saman og hefur leikarinn látið
hafa það eftir sér að hann hafi
klúðrað sambandinu af því að
hann hélt að hann væri ekki nógu
góður fyrir hana.
Angelina hefur verið með leik-
aranum Brad Pitt síðan árið 2005
og eiga þau sex börn saman. - lkg
Halda enn
sambandi
STORMASAMT SAMBAND Billy Bob og
Angelina voru saman í tvö ár.
FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
ÞRÁIR GLÚTEIN Emmy er ekki sátt við
að mega ekki borða glúten.
FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
SumaríSlendIngar
upPlifið sóL og SumarYl með ekta RjóMaís
Með kókOs, áStaraldIn, mangó og súKkulaðIdropuM