Fréttablaðið


Fréttablaðið - 24.04.2014, Qupperneq 9

Fréttablaðið - 24.04.2014, Qupperneq 9
FIMMTUDAGUR 24. apríl 2014 | FRÉTTIR | 9 STJÓRNSÝSLA Fulltrúar mennta- málaráðuneytisins og Land- búnaðarháskólans á Hvanneyri (LbhÍ) mæta til fundar við fjár- laganefnd Alþingis öðrum hvor- um megin við næstu mánaðamót, að sögn Haraldar Benediktsson- ar, þingmanns Sjálfstæðisflokks í Norðvesturkjördæmi. Haraldur, sem sæti á í nefndinni, vonast til að þá fáist skýrari mynd af stöðu skólans. Haraldur segist frá upphafi hafa talað fyrir því að skoðað- ar yrðu fleiri leiðir en samein- ing LbhÍ við Háskóla Íslands. „Þar voru boðnir fram mjög miklir peningar í uppbyggingu og í aukin framlög og þá vakna spurningar um hvaða greiningar lágu þar að baki, hvaða forgangs- röðun var á þessum verkefn- um og hvers vegna peningarnir hverfa ef hugmyndir ráðherrans ná ekki fram að ganga og þá snúið í þveröfuga átt og talað um niðurskurð,“ segir Haraldur og kveður sína skoðun að „mjög illa“ hafi verið haldið á málinu, og það þótt í hlut eigi flokksbróðir hans, Illugi Gunnars son menntamála- ráðherra. Afstaða þeirra þingmanna kjördæmisins sem látið hafa sig málefni LbhÍ varða sé hins vegar enn skýr og í þá átt að verja skól- ann í kjördæminu. Snýst um það, á mannamáli. „Ég hef ekki heyrt á norðvesturþingmönnum nein mismunandi sjónarmið í þessum efnum.“ Umræðan um sameiningu við Háskóla Íslands gjaldi fyrir það að stjórnvöld hafi áður komið fram með fyrirætlanir á fjár- framlögum um uppbyggingu á landsbyggðinni. „Og svo sitja landsbyggðarmenn ævinlega uppi með svartapétur þegar þarf að fara skera niður.“ Ljóst er að mati Haraldar að áætlanir um sam- einingu við HÍ hafi ekki miðað að aukinni hagræðingu því henni hefði fylgt stóraukinn kostnaður, svo sem í hærri launum til pró- fessora og kennaraliðs við LbhÍ. Fjárhagsáætlun sem LbhÍ skil- aði til menntamálaráðuneytisins um síðustu mánaðamót og gerir ráð fyrir fækkun um 15 stöðu- gildi hefur enn ekki fengið uppá- skrift í ráðuneytinu. Þrátt fyrir ítrekaða eftir- grennslan hafa ekki borist svör frá menntamálaráðuneytinu um stöðu málsins. olikr@frettabladid.is Spurn- ingar [vakna] um hvaða greiningar lágu þar að baki, hvaða forgangsröðun var á þessum verkefnum og hvers vegna pening- arnir hverfa ef hugmyndir ráðherrans ná ekki fram að ganga og þá snúið í þveröfuga átt og talað um niðurskurð. Haraldur Benediktsson, þingmaður Sjálfstæðisflokks í Norðvesturkjördæmi LBHÍ Á HVANNEYRI Haraldur Benediktsson, þingmaður Norðvesturkjördæmis, segir LbhÍ burðast með óhagkvæmt húsnæði sem hann þurfi að leigja af ríkinu. Þar sé eitt svið þar sem hjálpa megi skólanum. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA Vonast eftir svörum frá skóla og ráðuneyti um stöðu LBHÍ Menntamálaráðuneytið hefur enn ekki afgreitt fjárhagsáætlun Landbúnaðarháskóla Íslands. Áætlunin gerir ráð fyrir miklum niðurskurði. Haraldur Benediktsson þingmaður vonast til að mál skólans skýrist á næstunni. HEILBRIGÐISMÁL Nú stendur yfir evrópsk bólusetningarvika á vegum Alþjóðaheilbrigðismála- stofnunarinnar (WHO). Mark- miðið er að upplýsa almenning um mikilvægi bólusetninga til verndar gegn smitsjúkdómum. Gærdagurinn var tileinkaður bólusetningum unglinga. Til dæmis eru allar tólf ára stúlkur bólusettar gegn HPV-veirunni til að verjast leghálskrabbameini. Þá verða dagar tileinkaðir fullorðnum og öldruðum. - ssb Bólusetja gegn HPV-veirunni: WHO minnir á bólusetningar BÓLUSETNING Vörn gegn smitsjúk- dómum. NORDICPHOTOS/AFP TYRKLAND Recep Tayyip Erdogan, forsætisráðherra Tyrklands, vott- aði í gær samúð sína afkomendum þeirra Armena, sem Tyrkir myrtu í stórum stíl á árum fyrri heims- styrjaldarinnar. Þetta er í fyrsta sinn sem tyrk- neskur ráðamaður vottar Armen- um samúð sína vegna fjöldamorð- anna, en neitar þó enn að tala um þjóðarmorð í þessu samhengi. Í dag eru 99 ár liðin frá því nauð- ungarflutningar Armena hófust. Armenar hafa lengi krafist þess að Tyrkir viðurkenndu þjóðarmorð. - gb Þjóðarmorðs minnst: Erdogan vottar samúð sína
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.