Fréttablaðið - 24.04.2014, Blaðsíða 10

Fréttablaðið - 24.04.2014, Blaðsíða 10
24. apríl 2014 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR | 10 FÖGNUM SUMRI SAMAN Á BJÖRTUM DÖGUM SUMARDAGURINN FYRSTI Í HAFNARFIRÐI Fjölbreytt dagskrá fyrir alla fjölskylduna · Veitir faglegan og traustan undirbúning til starfa við fjölbreytta sálfræðilega þjónustu. · Byggir á hugrænni atferlismeðferð og hagnýtri atferlisgreiningu. · Veitir þjálfun á þremur meginsviðum: 1) sálfræði fullorðinna, 2) sálfræði barna, unglinga og fjölskyldna og 3) þroskahömlunar, taugasálfræði og endurhæfingar. Námskeið á sviði atferlisgreiningar hafa hlotið samþykki vottunarnefndar atferlisfræðinga í Bandaríkjunum (The United States Behavior Analyst Certification Board) Umsóknarfrestur er til 30. apríl hr.is/salfraedi/msc MSc-nám í klínískri sálfræði við Háskólann í Reykjavík SUÐUR-KÓREA, AP Lee Joon-seok, skipstjóri suðurkóresku ferjunnar Sewol sem fórst í síðustu viku með á fimmta hundrað manns innan- borðs, átti meira en 40 ára reynslu að baki sem skipstjóri, fyrst á flutningaskipum í tuttugu ár og síðan á ferjum í önnur tuttugu. „Hann er örlátur, virkilega almennilegur náungi,“ sagði Oh Yong-seok, stýrimaður á ferjunni, og tekur fram að skipstjórinn hafi alltaf verið tilbúinn til að gefa áhöfninni ráð, hvort heldur væri um starfið eða um persónuleg málefni. „Hann var líklega ljúfasti maðurinn á skipinu.“ Lee, sem orðinn er 68 ára, situr þó uppi með það að á myndbandi sést að hann kom til lands með einum af fyrstu björgunarbátun- um. Á myndbandinu sést að verið var að gera að sárum hans. Hann var fljótlega handtekinn og á yfir höfði sér refsingu fyrir að hafa yfirgefið farþega í neyð og sýnt af sér vítaverða vanrækslu. Óttast er að nærri 300 manns hafi farist, flestir ungir skólanemendur sem voru í skólaferð ásamt kenn- urum sínum. Lee neitar að hafa flúið frá borði en getur þó engar skýringar gefið á ferðum sínum. Félagar hans í áhöfninni hafa velt því fyrir sér hvort hann hafi hraðað sér í land vegna aldurs eða vegna þess að hann hafði hlotið meiðsli sem þurfti að huga að. Jang Ki-joon, bæklunarskurð- læknir sem sinnti skipstjóranum eftir að hann kom í land, segir meiðslin þó hafa verið smávægi- leg: „Verkur í rifbeinum vinstra megin og í baki, en það var allt og sumt,“ sagði hann. Þegar skipstjórinn kom til aðhlynningar var hann ekki í skip- stjórabúningnum og ekkert benti til annars en að hann væri einn af farþegunum. Jang segist ekki hafa haft hugmynd um að hann væri að hlúa að skipstjóra ferjunnar. Aðrir úr áhöfn skipsins, sem AP- fréttastofan hefur rætt við, segjast vita lítið um persónuhagi hans. Árið 2004 var tekið viðtal við Lee þar sem hann sagðist stundum hafa íhugað að hætta siglingum. „Þegar ég lenti í óveðri á hafi úti sagði ég við sjálfan mig að ég myndi aldrei stíga fæti á skip aftur. En mannshugurinn er lævís og lúmskur. Eftir að hafa slopp- ið úr lífsháska gleymdi ég alltaf slíkum hugsunum og ég hef siglt á skipum fram til dagsins í dag,“ sagði hann í viðtalinu við vefmiðil- inn Jeju Today. gudsteinn@frettabladid.is Skipstjórinn hafði siglt í fjörutíu ár „Líklega ljúfasti maðurinn á skipinu,“ sagði einn úr áhöfninni um Lee Joon-seok, skipstjóra suðurkóresku ferjunnar sem fórst í síðustu viku. Hann fór einna fyrstur frá borði og situr nú í fangelsi, sakaður um vanrækslu og önnur brot í starfi. Á LEIÐ Í RÉTT- ARSAL Lee Joon- seok, fyrir miðri mynd, á yfir höfði sér refsingu fyrir að hafa yfirgefið farþega í neyð og sýnt af sér víta- verða vanrækslu. FRÉTTABLAÐIÐ/AP PALESTÍNA, AP Fatah og Hamas, tvær helstu fylkingar Palest- ínumanna, blésu í gær til blaða- mannafundar þar sem skýrt var frá samkomulagi þeirra um að mynda samsteypustjórn á ný og boða til kosninga. Sjö ár eru síðan slitnaði upp úr samstarfi þeirra, með þeim afleiðingum að Fatah hefur farið með stjórn á Vesturbakkanum en Hamas ráðið á Gasa. Fatah og Hamas hafa áður náð sáttum en ekkert orðið úr sam- starfi. Ekki er ljóst að hvaða leyti þetta nýjasta samkomulag á að vera frábrugðið fyrri samn- ingum, eða hvað ætti að verða til þess að þetta samkomulag haldi frekar en þau fyrri. Ísraelskir ráðamenn brugðust hins vegar snöggt við og afboðuðu fund með Palestínumönnum, sem halda átti í dag í von um að eiginlegar friðar viðræður Palestínumanna og Ísraela geti hafist á ný. Ísraelar líta, rétt eins og Bandaríkjamenn, á Hamas sem hryðjuverkasamtök og vilja ekk- ert við þau ræða. Benjamín Netanjahú, for- sætisráðherra Ísraels, sakar nú Mahmúd Abbas Palestínuforseta um að eyðileggja möguleikann á friðarviðræðum: „Í staðinn fyrir að friðmælast við Ísrael, þá frið- mælist hann við Hamas.“ - gb Ísraelar afboða fund með Palestínumönnum: Fatah og Hamas hafa náð sáttum SÁTTIR Azzam al-Ahmad, hátt- settur í Fatah- samtökunum, ásamt Islmaíl Haníjeh, for- sætisráðherra Hamas-sam- takanna á Gasa- strönd. FRÉTTABLAÐIÐ/AP DÓMSMÁL Héraðsdómur Reykja- víkur hefur dæmt Gísla Þór Gunn- arsson í tveggja ára fangelsi fyrir tvær árásir með hníf, fjársvik og tilraun til ráns. Gísli afplánar dóm fyrir aðild að Stokkseyrar- málinu. Auk Gísla voru karl á fertugs- aldri og tvítug kona dæmd. Þau auglýstu vændi í dagblaði og konan mælti sér mót við kaup- anda. Gísli og samverkamaður hans settust inn í bíl mannsins og hugðust ræna hann. Það mis- tókst því maður- inn flúði eftir að Gísli skar hann á háls. Gísli Þór var einnig dæmdur fyrir að skera annan mann í handlegg. Konan fékk skilorðs- bundinn dóm en hinn karlinn hlaut enga refsingu því á honum hvílir þyngri dómur. - ssb Síbrotamenn dæmdir fyrir hrottalegt ofbeldi: Skorinn á háls í ráni GÍSLI ÞÓR GUNNARSSON
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.