Fréttablaðið - 24.04.2014, Blaðsíða 48

Fréttablaðið - 24.04.2014, Blaðsíða 48
24. apríl 2014 FIMMTUDAGUR| BÍÓ | 40 AFMÆLISBARN DAGSINS VISSIR ÞÚ… Leikkonan Shirley MacLaine er áttræð í dag. Helstu myndir: The Apartment, Terms of Endearment, Irma La Douce, Guarding Tess … að stórleikarinn og hjartaknúsar- inn George Clooney sefur stundum í fataskápnum í glæsihýsi sínu í Los Angeles. Af hverju? Jú, honum finnst alltof mikil birta í öllum svefnher- bergjunum. Búið er að ráða næstum því alla aðalleikara í kvikmyndina Star Wars Episode VII en stjórnarformaður Disney, Alan Horn, vill ekki tjá sig neitt um hverjir munu leika í mynd- inni. Girls-leikarinn Adam Driver hefur verið orðaður við hlutverk illmennisins í myndinni sem verður frumsýnd í desember á næsta ári. LEIKARAVAL NÆSTUM KLÁRT Samningaviðræður standa nú yfir við leikstjórann Danny Boyle um að leik- stýra kvikmynd um Steve Jobs sem byggð er á ævisögu hans eftir Walter Isaacson sem kom út árið 2011. Líklegt er að Leonardo DiCaprio muni túlka Steve en handritið skrifar Aaron-Sorkin. LEO LEIKUR JOBS Leikstjórinn Richard Donner, sem leik- stýrði Goonies árið 1985, hefur stað- fest að framhaldsmynd sé í bígerð. Nú er framleiðandinn Steven Spielberg kominn með sögu en Richard fer afar dult með um hvað framhaldsmyndin fjallar og verður það líklegast ekki ljóst fyrr en seint á þessu ári. KOMINN MEÐ SÖGU Pólskir kvikmyndadagar hefjast á morgun, fimmtudag, í Bíói Para- dís og standa til 26. apríl. Dag- arnir eru haldnir í tengslum við verkefnið Ísland og Pólland gegn útilokun frá menningu, sem er samstarfsverkefni á sviði lista á milli landanna. Grundvallarmark- miðið er að auka aðgengi fatlaðra að menningu með sjónlýsingar að leiðarljósi. Á árunum 2013-2016 voru og verða sýndar í Wrocław, Reykja- vík og Hafnarfirði pólskar og íslenskar kvikmyndir og leikrit og haldnar verða listsýningar með það að markmiði að kynna menn- ingararfleifð beggja landa. Einnig verða haldin námskeið, samkom- ur og ráðstefnur sem miðla munu upplýsingum um hvernig hægt er að auðvelda fötluðum aðgengi að menningu. Pólskir kvik- myndadagar LEIKSTJÓRI LECH WAŁĘSA Maður vonar er Andrzej Wajda, sem hlaut meðal annars heiðursverðlaun á Óskars- verðlaunahátíðinni árið 2000 fyrir framlag sitt til kvikmyndagerðar. Viðamesta kvikmyndafram- leiðslan í New York-borg The Amazing Spider-Man 2 verður frumsýnd á föstudag. Myndin er rúmlega tveir tímar að lengd sem gerir hana að lengstu kvikmynd um Kóngulóarmanninn. Parið Emma Stone og Andrew Garfi eld eru í aðalhlutverkum. Kvikmyndin The Amazing Spider- Man 2 verður frumsýnd á Íslandi á morgun, föstudag. Í myndinni rannsakar Peter Parker, sjálf- ur Kóngulóarmaðurinn, ýmislegt varðandi dularfulla fortíð föður síns með hjálp vinar síns, Harrys Osborn. Harry þessi er leikinn af Dane DeHaan en hann breytist í Græna púkann, erkióvin Kóngulóarmanns- ins. Allt í allt tók þrjá og hálfan tíma að farða Harry fyrir hlutverk púkans og það tók hann um það bil klukkutíma að klæða sig í búning- inn sem er rúmlega tuttugu kíló að þyngd. Leikarinn Jamie Foxx leikur óvin Kóngulóarmannsins, Electro, og Chris Cooper leikur annar óvin hans, Norman Osborn. Þeir hafa báðir hlotið Óskarsverðlaun, Jamie fyrir bestan leik í aðalhlutverki fyrir Ray árið 2005 og Chris fyrir bestan leik í aukahlutverki fyrir Adaptation árið 2003. Þetta þýðir að þeir eru fyrstu tveir Óskarsverð- launahafarnir til að leika illmenni í mynd um Kóngulóarmanninn. The Amazing Spider-Man 2 var eingöngu tekin upp í New York og er þetta viðamesta kvikmynda- framleiðsla sem hefur átt sér stað í borginni. Myndin er 142 mínútur að lengd sem gerir hana að lengstu kvikmynd um Kóngulóarmanninn til þessa. Emma Stone fer með hlutverk Gwen Stacy eins og í fyrri myndinni en sú stúlka á tryggan stað í hjarta Peters. Sem fyrr er það Andrew Garfield sem leikur Kóngulóar- manninn en gaman er að segja frá því að Emma og Andrew eru einnig par í raunveruleikanum. Leikstjórn myndarinnar er í höndum Marcs Webb sem leikstýrði einnig fyrri myndinni og kvik- myndinni (500) Days of Summer. liljakatrin@frettabladid.is 75/100 Emma Stone og Andrew Garfield felldu hugi saman á tökustað kvik- myndarinnar The Amazing Spider-Man árið 2011. Andrew segist hafa fallið fyrir Emmu um leið og hún kom í prufu fyrir myndina. „Það var eins og ég vaknaði þegar hún gekk inn. Hún var síðasta mann- eskjan til að lesa og mér var farið að leiðast. En síðan kom hún inn og það var eins og ég hefði farið í flúðasiglingu og langaði ekki að halda mér í. Það var spennandi og villt í tökunum. Ég varð að vera nálægt henni og ég gat ekki leyft henni að sleppa,“ sagði Andrew í viðtali við Teen Vogue þegar fyrri myndin var frumsýnd. Urðu ástfangin á tökustað BERST VIÐ ILL ÖFL Kóngulóarmaðurinn kemst að því að eitt tengir alla óvini hans: OScorp-fyrirtækið. Á HJARTA HANS Gwen Stacy heillar Kóngulóarmanninn.58/1007,8/10 Opnunarmyndin er Lech Wałęsa. Maður vonar sem var framlag Pól- lands til Óskarsverðlaunanna. Sýn- ingin er klukkan 16.00 og er frítt inn á hana. Myndin fjallar um verkalýðs- leiðtoga og stjórnmálamann sem var driffjöður í þeim breytingum sem áttu eftir að ná lengra en fólk leyfði vonaði. Sögð er saga pólsks forseta og Nóbelsverðlaunahafa sem talinn er meðal 100 mikil- vægustu manna 20. aldarinnar. Ævisaga pólsks forseta
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.