Fréttablaðið - 26.04.2014, Side 12

Fréttablaðið - 26.04.2014, Side 12
26. apríl 2014 LAUGARDAGUR| FRÉTTIR | 12 BL Sævarhöfða 2, sími 525 8000 E N N E M M / S ÍA / N M 6 2 18 8 Less emissions. More driving pleasure. Ábendingahnappinn má finna á www.barnaheill.is Sigrúnar Ástrósar Sigurðardóttur og Haralds Sigurðssonar Umsóknarfrestur 20. maí Rannsóknarsjóður SUÐUR-KÓREA, AP Í gær, tíu dögum eftir að ferjan Sewol sökk suðvestur af Kóreuskaga, voru kafarar enn að kanna skipið í leit að líkum. 183 hafa fundist en 119 manns var enn sakn- að, og fullvíst talið að þeir væru allir látnir. Alls virðast 302 hafa far- ist með skipinu. 174 komust lífs af. Enn hafa ekki fengist endanlegar skýringar á því að skipið sökk, en síðustu daga hefur athyglin beinst að því að ferjan hafi verið ofhlaðin. Um borð voru 3.608 tonn af bif- reiðum og öðrum varningi, en það er þrisvar sinnum meira en óhætt var. Þetta er líka mun meira en skip- stjórinn hafði gefið upp á pappírum. Hann sagði ferjuna hafa siglt af stað með 150 bifreiðar og 657 tonn af öðrum varningi. Lykilatriði er hér að ferjunni var breytt árið 2012 þegar farþegarým- ið var stækkað þannig að hún gæti flutt 921 farþega í staðinn fyrir 804. Þessum breytingum fylgdu þau skilyrði að skipið mátti ekki lengur flytja nema þúsund tonna farm, en áður réði ferjan við meira en 2.500 tonn. Eftir breytingarnar þurfti einnig að sjá til þess að meira en 2.000 tonn af kjölfestuvatni væru í skipinu. Þrátt fyrir þetta gaf útgerð skips- ins upp að flutningsgeta þess væri 3.963 tonn, sem er óbreytt frá því áður en skipinu var breytt. Skipstjóri ferjunnar var ekki við stýrið þegar kröpp beygja var tekin á leið skipsins. Beygjan var 45 gráð- ur, sem virðist hafa verið meira en skipið réði við. Skömmu síðar byrj- aði það að hallast og sökk nokkrum tímum síðar. gudsteinn@frettabladid.is Tók of krappa beygju Enn er leitað að líkum um borð í suðurkóresku ferjunni Sewol, sem sökk í síðustu viku. Rannsóknin beinist að ofhleðslu N-Kórea Margt bendir til þess að suðurkóreska ferjan Sewol hafi sokkið vegna þess að farmur hennar var of þungur. Ferjan Sewol 15. apríl, 21.00 Siglir frá Incheon með 476 manns um borð. Ferjuslysið á staðartíma 16. apríl, 08.49: Tekur beygju samkvæmt áætlun í áttina að Jeju-eyju. 08.51: Ferjuna tekur að reka aftur á bak og hallast á bakborða. 08.55: Fyrsta neyðarkallið sent. 09.40: Fólk byrjar að fara frá borði. Margir farþegar komast hvergi vegna halla skipsins. Ferjan sekkur klukkan 11.00. Gulahaf Suður- Kórea Seúl Incheon eju- eyja Kort 100km Songdo- eyja *Sjálfvirkt auðkenningarkerfi Jindo- eyja Hajodo- eyja Dadohaehaesang- þjóðgarðurinn 5km Byeongpung- eyja Skipinu beygt Slysstaðurinn Siglingaleiðin 08.30 08.40 200m 08.52 08.48 Bifreiðar og frakt Flutningsgeta: Farþegarými skipsins var stækkað árið 2012 fyrir 117 farþega til viðbótar. \ Þyngdarpunktur skipsins hækkað um hálfan metra Farþegageta: 921 Miðdekk: 484 Efsta dekk: 11 Neðsta dekk: 426 Farmur: Skipaskrá Kóreu mælti með 987 tonnum. Um borð voru 3.608 tonn þegar skipið sökk.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.