Fréttablaðið - 26.04.2014, Blaðsíða 58
KYNNING − AUGLÝSINGGarðurinn LAUGARDAGUR 26. APRÍL 20144
Tekkstólarnir sem voru um borð í farþega-
skipinu Titanic þegar það sökk fyrir rúmum
hundrað árum eru afar vinsælir á verönd-
ina. Eftirlíkingar stólanna má fá víða en þá
má leggja saman svo lítið fari fyrir þeim.
Stólarnir eru sögulegir en aðeins eru til örfá
eintök af upprunalegum Titanic-stólum og
eru þau á söfnum, til dæmis í Halifax. Flest-
ir stólarnir sukku með skipinu en þeir voru
614. Það var fyrirtækið R. Holman & Co. sem
framleiddi stólana fyrir Titanic.
Aðrir stólar sem hafa verið vinsælir á ver-
andir og víða á ströndum eru felli stólar með
léttu áklæði. Þeir voru upphaflega einnig
hannaðir til að vera á þilfari skipa. Stól-
ana er hægt að leggja saman með einu
handtaki svo lítið fari fyrir þeim og stafla
þeim upp, sem þótti handhægt ef veður
breyttist snögglega á hafi úti. Stól arnir
eiga sér langa sögu sem nær aftur til
Egyptalands hins forna. Stólarnir
voru ómissandi á þilförum
farþegaskipa um miðja nítj-
ándu öld, bæði í Bandaríkjun-
um og á Bretlandi. Í upphafi
tuttugustu aldar fóru stól-
arnir að sjást í skemmtigörðum
á Bretlandi og á íþróttaleikjum.
Vinsælir sólstólar
LYKTAR EINS OG FISKUR
Stærsta blóm heims ber fræði-
heitið Amorphophallus titanum
en kallast risakólfur á íslensku.
Hið risavaxna blóm plöntunnar
vex út úr stórum jarðstöngli sem
getur vegið allt að áttatíu kíló.
Blómstilkurinn sem liggur fyrir
miðju blómsins getur orðið á
þriðja metra á hæð og mælist
blómið yfir einn metri í þvermál.
Risakólfur blómstrar stöku
sinnum í grasagörðum og þykir
það merkur atburður. Blómgunin
stendur aðeins yfir í tvo til þrjá
daga.
Þegar plantan er í fullum blóma
gefur hún frá sér lykt sem minnir
helst á úldinn fisk. Með því er
hún að reyna að líkja eftir lykt af
rotnandi dýrum og laða þannig
að skordýr sem verpa eggjum
sínum við slíkar aðstæður.
Skordýrin, sem eru ýmsar bjöllur
eða flugur, bera svo frjókornin á
milli plantna þannig að frjóvgun
á sér stað.
Heimild: Vísindavefurinn
FJÖLDI SKÓGA Á ÍSLANDI
Á Íslandi er fjöldi skóga
aðgengilegur almenningi.
Skógrækt ríkisins á eða hefur
í sinni umsjón 53 þjóðskóga.
Skógarnir eru opnir öllum og eru
um allt land að undanskildum
Vestfjörðum. Í suma er auðvelt
að komast, annars staðar þarf
að hossast í öflugum jeppa eða
ganga upp bratta hlíð.
Fyrsta árangursríka skógræktar-
tilraun á Íslandi var gerð á
Þingvöllum, í Furulundinum
í Almannagjá. Á Þingvöllum
er víðáttumikið birkikjarr en
einnig nokkrir gróðursettir
skógarlundir. Frægastur þeirra
er Furulundurinn. Þar var fyrst
gróðursett 1899 og er Furulund-
urinn því einn fyrsti gróðursetti
skógurinn á Íslandi. Aðrir lundir
á Þingvöllum voru gróðursettir
af ýmsum hópum eða tilefnum,
t.d. Norðmannareitir og reitir
Vestur-Íslendinga sem eru gjafir
til íslensku þjóðarinnar. Skógrækt
ríkisins hefur umsjón með skóg-
unum á Þingvöllum.
Furulundurinn í Almannagjá.
MYND/SKÓGRÆKT RÍKISINS