Fréttablaðið - 03.05.2014, Side 85

Fréttablaðið - 03.05.2014, Side 85
LAUGARDAGUR 3. maí 2014 | MENNING | 53 Skapandi samtal við blaktandi tjöld völundarhúss nefnist sýn- ing sem opnuð verður í Norræna húsinu klukkan 15 í dag. Sýn- ingin er sett saman úr mörgum listgreinum og er samvinnu- verkefni finnskra og íslenskra listamanna. Innsetning Karls Guðmundssonar og Rósu Júlíus- dóttur, Völundarhús, er hjarta sýningarinnar. Hinir listamenn- irnir tengja listaverk sín með skapandi samtali við blaktandi tjöld Völundarhússins. Nú um helgina mun danshóp- urinn Kaaos Company frá Finn- landi sýna dansgjörning sem tengist verkinu en auk þeirra eiga þau Katja Juhola, Tony Remy, Mari Krappala og Laura Miettinen þátt í sýningunni. Sýningin er opin til 18. maí á opnunartíma Norræna hússins. Sýning um völundarhús VÖLUNDARHÚS Hjarta verksins er Völundarhús með blaktandi tjöldum. DANS ★★★★ ★ Fetta Bretta og Óður og Flexa reyna að fljúga Assitej barnaleiklistarhátíð Fetta Bretta Danshöfundur: Tinna Grétarsdóttir Tónlist: Sólrún Sumarliðadóttir Leikmynd og búningar: Guðný Hrund Sigurðardóttir Flytjendur: Snædís Lilja Ingadóttir og Inga Maren Rúnarsdóttir Óður og Flexa reyna að fljúga Höfundar og flytjendur: Hannes Þór Egilsson og Þyrí Huld Árnadóttir Sviðsmynd og búningar: Þyrí Huld Árnadóttir Tónlist: Klassísk tónlist eftir meðal annars Grieg og Beethoven Aðstoð við leikstjórn: Benedikt Karl Gröndal Á verkalýðsdaginn sjálfan var boðið upp á tvö dansverk í Tjarn- arbíói, á vegum barnaleikhúshátíð- arinnar Assitej, þau Fetta Bretta og Óður og Flexa reyna að fljúga en bæði eru verkin ætluð ungum áhorfendum. Undirrituð og fylgi- sveinn hennar voru sammála um að hið fyrrnefnda væri fyrir litlu krakkana, allt upp í 1. til 2. bekk í grunnskóla, en hið seinna gæti vel gengið fyrir krakka allt upp í 5. bekk. Þannig rímar lengd sýn- inganna, 30 mínútur hvor, vel við athyglisspan barna – og margra fullorðinna – og val á viðfangs- efni og tónlist og öll umgjörð bera þess merki að höfundar eru með- vitaðir um fyrir hverja þeir voru að semja. Börn hafa verið afskipt- ur hópur innan dansins um nokk- urt árabil. Það er því gleðilegt að danslistamenn skuli horfa með virðingu til þessa hóps áhorfenda þótt sýningarnar séu reyndar báðar svo vandaðar og vel útfærð- ar að „börn“ á öllum aldri geta notið þeirra. Fetta Bretta er fallegt verk þar sem tónlist, hreyfingar, búning- ar og leikmyndin skapa saman spennandi ævintýraheim. Í upp- hafi „fæðast“ Fetta og Bretta eins og út úr leikmyndinni, í fyrstu eins og einn líkami en smátt og smátt finna þær sína eigin tilvist og leika sér að lokum saman með leikmynd- ina. Í fyrri hlutanum flæddu fram hrífandi hreyfingar og myndir skapaðar úr líkömum dansaranna í sterku samspili við tónlistina. „Sjáðu hvernig ég kom“ stemning var ráðandi og virtust áhorfendur alveg með á nótunum og fylgdust spenntir með hvað myndi gerast næst. Í seinni hlutanum fékk leik- myndin stærra hlutverk og vinkon- urnar tóku að byggja upp hallir og heima úr marglitum risavöxnum svampkubbum mismunandi í lag- inu. Þá færðist meira fjör í leik- inn en ævintýraljóminn minnk- aði. Áhorfendur virtust þó ekkert síður kunna að meta skemmtileg uppátæki þeirra stallsystra með kubbana. Að verkinu loknu fengu minnstu áhorfendurnir að fara upp á svið og leika sér í leikmyndinni. Þannig héldust hin sterku tengsl á milli verksins og áhorfenda út fyrir endamörk þess. Óður og Flexa reyna að fljúga er frumraun Þyríar og Hannesar í barnaleikhúsgerð og lofar verkið vægast sagt góðu. Það er ótrúlega skondið og skemmtilegt þótt efnið sé ósköp einföld saga af tveimur krökkum að leik. Umgjörð verks- ins var ekki síður einföld, einn stór sófi á sviðinu sem þó var ekki allur þar sem hann var séður. Einlægni Hreyfiljóð fyrir börn ÓÐUR OG FLEXA REYNA AÐ FLJÚGA „Þyrí og Hannes gátu skapað óborganlegt „hreyfiljóð“ vegna þess hve vel þau þekkja tjáningarmátt líkamans.“ MYND/ÁSGEIR HELGI MAGNÚSSON einkenndi verkið og bar persónu- sköpunin vott um virðingu fyrir áhorfendunum, börnum á svipuð- um aldri og persónurnar. Tónlist- in í verkinu var snilldarlega valin. Lög stóru klassísku meistaranna pössuðu fullkomlega við athafn- irnar á sviðinu. Líkamleg færni dansaranna var líka aðdáunar- verð. Rétt eins og Þórarinn Eld- járn getur samið óborganleg ljóð fyrir börn vegna þess hve mikið vald hann hefur á tungumálinu þá gátu Þyrí og Hannes skapað óborg- anlegt „hreyfiljóð“ vegna þess hve vel þau þekkja tjáningarmátt lík- amans. Sesselja G. Magnúsdóttir NIÐURSTAÐA: Báðar sýningarnar voru vandaðar og vel útfærðar og báru vott um virðingu höfunda fyrir áhorfendum sínum. About us InfoMentor provides systems and knowledge to schools across Europe, helping them to achieve more – and prove it! Thousands of head teachers, teachers, pupils and parents log in to our system every day. More than 1,000 schools in five countries are using our solution to create the right conditions for learning. Employing nearly 50 people across 5 countries we are a strong, dynamic and successful organisation that is ready to expand within our existing markets and into new markets. Can you help us to realise this ambition? Work with cutting-edge web technologies Web Developers The InfoMentor development team make our products a reality. As one of our new developers, you will be working with cutting-edge web technologies to develop and refine our responsive solutions. The successful candidates will demonstrate experience and skills in either front-end development (HTML5, CSS3 and Javascript frameworks such as jQuery and Knockout) or back-end development (C# ASP.NET, .NET MVC, NHibernate and SQL Server). Whilst not expected to be fully experienced in all areas, candidates will be willing to learn and adapt. User Experience Designer As a UX designer with InfoMentor, you will be responsible for ensuring that our products are useful, usable and engaging for our users. You will be getting under the skin of our users to help our analysis team to better understand their needs and demands. You will architect the information and navigation structures of our products, and create their visual design and user interactions, seeing your concepts through to implementable designs which will wow our existing and potential customers. All pupils should reach their goals! www.infomentor.co.uk InfoMentor has development offices in Iceland and Exeter, UK. You will join a vibrant group of developers, analysts, marketers and sales colleagues. For further information about any of these posts contact Auðunn Ragnarsson (e-mail: audunn@mentor.is or call +354 895 0057). Please send applications to starf@mentor.is
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.