Fréttablaðið - 03.05.2014, Blaðsíða 85
LAUGARDAGUR 3. maí 2014 | MENNING | 53
Skapandi samtal við blaktandi
tjöld völundarhúss nefnist sýn-
ing sem opnuð verður í Norræna
húsinu klukkan 15 í dag. Sýn-
ingin er sett saman úr mörgum
listgreinum og er samvinnu-
verkefni finnskra og íslenskra
listamanna. Innsetning Karls
Guðmundssonar og Rósu Júlíus-
dóttur, Völundarhús, er hjarta
sýningarinnar. Hinir listamenn-
irnir tengja listaverk sín með
skapandi samtali við blaktandi
tjöld Völundarhússins.
Nú um helgina mun danshóp-
urinn Kaaos Company frá Finn-
landi sýna dansgjörning sem
tengist verkinu en auk þeirra
eiga þau Katja Juhola, Tony
Remy, Mari Krappala og Laura
Miettinen þátt í sýningunni.
Sýningin er opin til 18. maí á
opnunartíma Norræna hússins.
Sýning um
völundarhús
VÖLUNDARHÚS Hjarta verksins er
Völundarhús með blaktandi tjöldum.
DANS ★★★★ ★
Fetta Bretta og Óður og
Flexa reyna að fljúga
Assitej barnaleiklistarhátíð
Fetta Bretta
Danshöfundur: Tinna Grétarsdóttir
Tónlist: Sólrún Sumarliðadóttir
Leikmynd og búningar: Guðný Hrund
Sigurðardóttir
Flytjendur: Snædís Lilja Ingadóttir og
Inga Maren Rúnarsdóttir
Óður og Flexa reyna að fljúga
Höfundar og flytjendur: Hannes Þór
Egilsson og Þyrí Huld Árnadóttir
Sviðsmynd og búningar: Þyrí Huld
Árnadóttir
Tónlist: Klassísk tónlist eftir meðal
annars Grieg og Beethoven
Aðstoð við leikstjórn: Benedikt Karl
Gröndal
Á verkalýðsdaginn sjálfan var
boðið upp á tvö dansverk í Tjarn-
arbíói, á vegum barnaleikhúshátíð-
arinnar Assitej, þau Fetta Bretta
og Óður og Flexa reyna að fljúga
en bæði eru verkin ætluð ungum
áhorfendum. Undirrituð og fylgi-
sveinn hennar voru sammála um
að hið fyrrnefnda væri fyrir litlu
krakkana, allt upp í 1. til 2. bekk
í grunnskóla, en hið seinna gæti
vel gengið fyrir krakka allt upp í
5. bekk. Þannig rímar lengd sýn-
inganna, 30 mínútur hvor, vel við
athyglisspan barna – og margra
fullorðinna – og val á viðfangs-
efni og tónlist og öll umgjörð bera
þess merki að höfundar eru með-
vitaðir um fyrir hverja þeir voru
að semja. Börn hafa verið afskipt-
ur hópur innan dansins um nokk-
urt árabil. Það er því gleðilegt að
danslistamenn skuli horfa með
virðingu til þessa hóps áhorfenda
þótt sýningarnar séu reyndar
báðar svo vandaðar og vel útfærð-
ar að „börn“ á öllum aldri geta
notið þeirra.
Fetta Bretta er fallegt verk þar
sem tónlist, hreyfingar, búning-
ar og leikmyndin skapa saman
spennandi ævintýraheim. Í upp-
hafi „fæðast“ Fetta og Bretta eins
og út úr leikmyndinni, í fyrstu eins
og einn líkami en smátt og smátt
finna þær sína eigin tilvist og leika
sér að lokum saman með leikmynd-
ina. Í fyrri hlutanum flæddu fram
hrífandi hreyfingar og myndir
skapaðar úr líkömum dansaranna
í sterku samspili við tónlistina.
„Sjáðu hvernig ég kom“ stemning
var ráðandi og virtust áhorfendur
alveg með á nótunum og fylgdust
spenntir með hvað myndi gerast
næst. Í seinni hlutanum fékk leik-
myndin stærra hlutverk og vinkon-
urnar tóku að byggja upp hallir og
heima úr marglitum risavöxnum
svampkubbum mismunandi í lag-
inu. Þá færðist meira fjör í leik-
inn en ævintýraljóminn minnk-
aði. Áhorfendur virtust þó ekkert
síður kunna að meta skemmtileg
uppátæki þeirra stallsystra með
kubbana. Að verkinu loknu fengu
minnstu áhorfendurnir að fara upp
á svið og leika sér í leikmyndinni.
Þannig héldust hin sterku tengsl
á milli verksins og áhorfenda út
fyrir endamörk þess.
Óður og Flexa reyna að fljúga
er frumraun Þyríar og Hannesar
í barnaleikhúsgerð og lofar verkið
vægast sagt góðu. Það er ótrúlega
skondið og skemmtilegt þótt efnið
sé ósköp einföld saga af tveimur
krökkum að leik. Umgjörð verks-
ins var ekki síður einföld, einn stór
sófi á sviðinu sem þó var ekki allur
þar sem hann var séður. Einlægni
Hreyfiljóð fyrir börn
ÓÐUR OG
FLEXA REYNA
AÐ FLJÚGA
„Þyrí og Hannes
gátu skapað
óborganlegt
„hreyfiljóð“
vegna þess hve
vel þau þekkja
tjáningarmátt
líkamans.“
MYND/ÁSGEIR HELGI
MAGNÚSSON
einkenndi verkið og bar persónu-
sköpunin vott um virðingu fyrir
áhorfendunum, börnum á svipuð-
um aldri og persónurnar. Tónlist-
in í verkinu var snilldarlega valin.
Lög stóru klassísku meistaranna
pössuðu fullkomlega við athafn-
irnar á sviðinu. Líkamleg færni
dansaranna var líka aðdáunar-
verð. Rétt eins og Þórarinn Eld-
járn getur samið óborganleg ljóð
fyrir börn vegna þess hve mikið
vald hann hefur á tungumálinu þá
gátu Þyrí og Hannes skapað óborg-
anlegt „hreyfiljóð“ vegna þess hve
vel þau þekkja tjáningarmátt lík-
amans. Sesselja G. Magnúsdóttir
NIÐURSTAÐA: Báðar sýningarnar
voru vandaðar og vel útfærðar og
báru vott um virðingu höfunda fyrir
áhorfendum sínum.
About us
InfoMentor provides systems and knowledge to schools across Europe,
helping them to achieve more – and prove it!
Thousands of head teachers, teachers, pupils and parents log in to our
system every day. More than 1,000 schools in five countries are using our
solution to create the right conditions for learning.
Employing nearly 50 people across 5 countries we are a strong, dynamic
and successful organisation that is ready to expand within our existing
markets and into new markets. Can you help us to realise this ambition?
Work with cutting-edge web
technologies
Web Developers
The InfoMentor development team make our products a reality. As one
of our new developers, you will be working with cutting-edge web
technologies to develop and refine our responsive solutions.
The successful candidates will demonstrate experience and skills in
either front-end development (HTML5, CSS3 and Javascript frameworks
such as jQuery and Knockout) or back-end development (C# ASP.NET,
.NET MVC, NHibernate and SQL Server). Whilst not expected to be fully
experienced in all areas, candidates will be willing to learn and adapt.
User Experience Designer
As a UX designer with InfoMentor, you will be responsible for ensuring
that our products are useful, usable and engaging for our users. You will
be getting under the skin of our users to help our analysis team to better
understand their needs and demands. You will architect the information
and navigation structures of our products, and create their visual design
and user interactions, seeing your concepts through to implementable
designs which will wow our existing and potential customers.
All pupils should reach their goals! www.infomentor.co.uk
InfoMentor has development offices in Iceland and Exeter, UK. You will join a vibrant group of developers, analysts, marketers and sales
colleagues. For further information about any of these posts contact Auðunn Ragnarsson (e-mail: audunn@mentor.is or call +354 895 0057).
Please send applications to starf@mentor.is