Fréttablaðið - 15.05.2014, Side 6

Fréttablaðið - 15.05.2014, Side 6
15. maí 2014 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR | 6 1. Hver hlaut aðalverðlaun Samfélags- verðlauna Fréttablaðsins? 2. Hversu mikið af kolum hefur verið fl utt til landsins frá árinu 2000? 3. Fyrir hvaða upphæð hefur Situs ehf. selt fjórar lóðir síðan í mars? SVÖR: 1. Klúbburinn Geysir. 2. 1,5 milljónir tonna. 3. Fyrir samtals 4,3 milljarða króna. – G Ó Ð U R Á B R A U Ð – Í S L E N S K U R STJÓRNMÁL Uppbygging fjölbreytts húsnæðis er eitt af hinum stóru stefnumálum Samfylkingarinnar fyrir borgarstjórnarkosningarnar 31. maí. Á næstu þrem- ur til fimm árum verður leigu- og búsetaíbúðum í Reykjavík fjölgað um 2.500 til 3.000. Flokkurinn hefur kallað eftir því að lagaumhverfi búsetusamvinnufélaga verði bætt og að íbúðareigend- ur eigi auðveldara með að leigja út frá sér. „Þessar breytingar áttu að liggja fyrir um síðustu áramót en komu fram í síðustu viku. Frumvörpin náðu ekki inn á þing. Svona hlutir skipta máli þegar verið er að fjár- festa til áratuga. Ég hefði viljað sjá þá hluti ganga hraðar,“ sagði Dagur B. Eggertsson borgarfulltrúi á fundi í gær þar sem stefnumálin voru kynnt. Ekki hafa fengist svör frá ESA, eftirlitsstofnun EFTA-ríkjanna, varðandi hvort huga þurfi að sam- keppnislögum vegna þessara breytinga. „Við höfum kynnt okkur hvernig þessir hlutir eru gerðir í Finn- landi og á hinum Norðurlöndunum. Það hlýtur að gilda sama regluverkið þar en við verðum að gæta formsins og bíða eftir formlegum svörum.“ Á síðasta ári sagði Dagur að gert væri ráð fyrir því að borgin legði til allt að tíunda part framkvæmda- kostnaðar við nýjan húsnæðiskost. „Við erum tilbúin að skoða það að leggja inn lóðir og jafnvel eitthvað fleira ef það verður til þess að lækka leiguverð. Það mun þá byggja á langtíma fjármögnunarsamningum um leiguhúsnæði,“ segir Dagur og telur að prósent- an gæti orðið hærri en tíu prósent. „Þar skiptir máli hvað ríkið ætlar að koma inn með í húsaleigubætur og hvort stjórnin ætlar að fallast á tillögur ASÍ um að fara dönsku leiðina sem rímar vel við þær hugmyndir sem borgin hefur verið að setja fram.“ - fb Stefnumál Samfylkingarinnar voru kynnt í kosningamiðstöð flokksins í gær: Áherslan á fjölbreytt húsnæði KYNNTI STEFNUÁHERSLUR Dagur B. Eggertsson borgar- fulltrúi á fundi Samfylkingarinnar í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR FERÐAÞJÓNUSTA Alls verða 107 leiðsögumenn útskrifaðir á þessu ári sem er það mesta hingað til. Þessi mikli fjöldi tengist þeirri aukningu sem hefur verið í ferðaþjónustu á Íslandi. Aukningin frá síðasta ári nemur um þrjá- tíu manns, sem er sá fjöldi leiðsögumanna sem Símenntun Háskólans á Akureyri útskrifaði í fyrsta sinn á þriðjudag. „Þetta er svakaleg aukning,“ segir Örvar Már Krist- insson, formaður Félags leiðsögumanna. „Síðustu 30 til 40 ár er búið að útskrifa um 1.700 leiðsögumenn og bara núna eru að bætast hundrað við. Það eru reyndar bara 700 í félaginu, sem þýðir að fólk hefur farið í aðrar greinar frekar en að vinna við þetta, aðallega út af laununum.“ Nám leið- sögumanna er tvær til þrjár annir og geta menn núna valið um Háskólann á Akureyri, Háskóla Íslands og Leiðsöguskóla Íslands. Leiðsögumenn hafi ekki farið varhluta af verkfalli flugmanna hjá Icelandair. Að sögn Örvars Más eru nokkuð margir leið- sögumenn að missa túra vegna þess. „Þeir hafa hringt og spurt hvernig staða þeirra sé og hvernig réttindin séu,“ segir hann og bætir við að lítið sé hægt að gera við þessum tekjumissi þeirra. - fb Um 1.700 leiðsögumenn hafa útskrifast á 30 til 40 árum en aðeins 700 eru í Félagi leiðsögumanna: Hafa aldrei útskrifað fleiri leiðsögumenn ERLENDIR FERÐAMENN Formaður Félags leiðsögu- manna fagnar auknum fjölda leiðsögumanna á Íslandi. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR STJÓRNMÁL Umboðsmaður fram- boðs Sjálfstæðisflokksins til bæjarstjórnar Kópavogsbæjar afturkallaði beiðni sína um að fá meðmælendalista allra framboða til bæjarstjórnar sem barst kjör- stjórn síðustu helgi. Bragi Michaelsson, umboðs- maður framboðslista sjálfstæð- ismanna í Kópavogi, segir flokk- inn ekki hafa áhuga á deilum um málið. „Við höfum engan áhuga á því að standa í deilum um þessi mál,“ segir Bragi. „Það er óþarfi að halda slíku til streitu ef laga- ákvæði eru vafasöm, og þegar það er óvíst hvort Persónuvernd hefði leyft þetta.“ - kóh Umboðsmanni snýst hugur: Beiðni um lista dregin til baka DÓMSMÁL Framburður tveggja vitna frá Dúbaí stangaðist á við aðalmeðferð Aurum-málsins sem var fram haldið í gær. Í málinu eru þeir Lárus Weld- ing, fyrrverandi forstjóri Glitnis, Jón Ásgeir Jóhannesson fjárfest- ir, Magnús Arnar Arngrímsson og Bjarni Jóhannesson, sem báðir voru starfsmenn Glitnis, ákærð- ir fyrir umboðssvik vegna sex milljarða króna láns í júlí 2008 sem Glitnir veitti félaginu FS38 ehf., sem var í eigu Pálma Har- aldssonar, vegna kaupa á félaginu Aurum Holdings Ltd. Allir neita þeir sök. Tawhid Abdullah, sem var for- stjóri félagsins Damas, sagði það hafa verið Aurum sem kom fram með kaupverðið 100 milljónir punda, sem hann hefði á endan- um talið of hátt og þeir því ákveð- ið að viðskiptin gengju ekki eftir. Nikhil Sengupta var starfsmaður á fyrirtækjasviði NBD, National Bank of Dubai, en hann sagðist hafa verið í ríku samstarfi við Damas og hafa bent því á Aurum sem vænlegan fjárfestingarkost. Þannig hefðu viðræður hafist en þegar bankakreppan hófst haust- ið 2008 hefði þeim verið sjálf- hætt vegna aðstæðna. Hann sagði Aurum hafa sett fram hugmynd sína um verðið sem Damas hefði talið eðlilegt verð fyrir félagið. Fleiri gáfu skýrslu í málinu í gær, þar á meðal Pálmi Haralds- son sem sagðist hafa talið við- skiptin með Aurum til hagsbóta fyrir Glitni, hann hefði verið erf- iður í samningum við bankann en þarna hefðu einfaldlega átt sér stað hefðbundin viðskipti. Pálmi var hissa á því þegar sérstakur saksóknari spurði hann út í sím- tal sem hafði verið hlerað milli Pálma og lögmanns hans. „Mátt þú eiga þessi símtöl?“ spurði Pálmi fyrir dómi í gær. Fyrrverandi stjórnarmenn í Glitni á árunum 2007 til 2008 gáfu einnig skýrslu í gær, en deilt hafði verið um hvort þeir hefðu bein tengsl við málið og mættu þar af leiðandi gefa skýrslu eða ekki. Öllum bar þeim saman um að hafa ekki orðið varir við að Lárus Welding hefði verið beittur þrýstingi af hálfu stærstu hlut- hafa bankans né heldur að bank- inn hefði tekið sérstakt tillit til hagsmuna stærstu hluthafanna í rekstri sínum. Aðalmeðferðin heldur áfram í dag þegar síðustu vitnin gefa skýrslu og þá hefst einnig munn- legur málflutningur þar sem sér- stakur saksóknari og verjendur halda ræður sínar. Málflutning- urinn mun standa yfir fram á föstudag þegar málið verður dóm- tekið. fanney@frettabladid.is Misræmi í framburði tveggja vitna frá Dúbaí Aðalmeðferð hélt áfram í Aurum-málinu í gær. Pálmi Haraldsson, eigandi félags- ins FS38 ehf. sem veitti sex milljarða Glitnisláninu, sem ákært er fyrir, viðtöku, var ósáttur við upptöku sérstaks saksóknara á símtali lögmanns hans. Í VITNASTÚKU Pálmi Haraldsson fjárfestir bar vitni í Aurum-málinu í gær þar sem hann sagðist hafa verið erfiður í samningum. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL SAMGÖNGUR Of mörgum mikil- vægum verkefnum er ólokið, segir bæjarstjórn Vesturbyggð- ar sem skorar á Alþingi að veita meira fjármagni til samgöngu- mála. „Bæjarstjórn Vesturbyggðar skorar á Alþingi að bæta við fjár- magni til viðhalds vega, enda er stór hluti vegakerfis Vestfjarða enn malarvegir sem þurfa mikið viðhald,“ segir í ályktun. „Mikil atvinnuuppbygging á sér nú stað á sunnanverðum Vestfjörðum og núverandi vegir þola ekki þá umferð sem um vegina fara í dag, hvað þá þá umferð sem verður þegar laxeldi verður komið í fulla framleiðslu.“ - gar Ályktun frá Vesturbyggð: Vilja betri vegi fyrir laxeldið ➜ Tveimur vitnum sem báru vitni í gegnum síma frá Dúbaí bar ekki saman um verðlagningu á Aurum. VEISTU SVARIÐ?

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.