Fréttablaðið - 15.05.2014, Page 54

Fréttablaðið - 15.05.2014, Page 54
15. maí 2014 FIMMTUDAGUR| LÍFIÐ | 38 „Þessi staður verður mjög svipaður og Næsti bar, þarna verður róleg músík og þægileg stemning,“ segir Augustin Navarro Cortés. Hann opnar nýjan skemmtistað í kvöld sem ber nafnið Kaffi list og stendur hann við Klapparstíg 38. Augustin átti hinn sívinsæla stað Næsta bar en lok- aði honum í marsmánuði. „Helsti munurinn er sá að ég ætla að bjóða upp á tapas, smárétti og ýmsa rétti,“ bætir Augustin við. Hann hefur gjörbreytt staðnum og hefur unnið af kappi í um sex til sjö vikur við að gera staðinn tilbúinn. Hann opnaði Kaffi list fyrst árið 1992 en lokaði staðnum árið 1999. Hann opnaði Næsta bar árið 2008 og var hann einn vinsælasti staður bæjarins. „Ég ætla að hafa alls kyns tilboð eins og á Næsta bar. Ég ætla líka að bjóða upp á smárétti með ákveðn- um drykkjum. Þetta verður í raun eins og endurbætt- ur Næsti bar,“ útskýrir Augustin. Kaffi list verður opnað klukkan 19 í kvöld. „Ég mun bjóða upp á ýmsa drykki og rétti í kvöld og það verður opið í kvöld til klukkan eitt. Það eru allir vel- komnir, ég hlakka líka til að hitta gömlu kúnnana mína frá Næsta bar og gamla Kaffi list.“ - glp Kaffi list er arft aki Næsta bars Nýr staður, Kaffi list, verður opnaður á Klapparstíg í kvöld. Hann er eins konar arft aki Næsta bars en fyrrverandi eigandi Næsta bars, Augustin Navarro, er eigandi hans. OPNAR Á NÝ Augustin Navarro Cortés, fyrrverandi eigandi Næsta bars, opnar nýjan stað í kvöld, Kaffi list. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL „Ég grilla mér oftast stóran safaríkan hamborgara eða gott nautakjöt.“ Kristinn Steindórsson, atvinnumaður í knattspyrnu. GOTT Á GRILLIÐ #BYLGJANBYLGJAN989 HLUSTAÐU HVAR SEM ER, HVENÆR SEM ER ÞÓRUNN CLAUSEN OG HADDAWAY 90’S ÞÁTTURINN ER Í LOFTINU MILLI KL. 19:20 - 23:00FIMMTUDAGSKVÖLD „Okkur var nú bara svo mikið í mun að fá að spila á Þjóðhátíð,“ segir Karl Sigurðsson, söngvari Baggalúts, en hljómsveitin samdi óvart þjóðhátíðarlag á dögunum. „Við höfum aldrei fengið að spila áður á Þjóðhátíð, þannig að við erum búnir að bíða í tíu ár eftir tækifærinu,“ segir Karl. „Það bara varð óvart til þjóðhátíðarlag af til- efninu, við erum svona að pæla hvað við eigum að gera við það núna,“ segir tónlistar maðurinn og bætir því við að þetta hafi gerst allt frekar hratt. „Það er nú Bragi Valdimar sem á lagið. Án þess að vilja gera lítið úr textahöfund- inum þá semja þessir textar sig eiginlega sjálfir. Þegar maður er að fjalla um Heimaey og brekku- söng þá raðast þetta heppilega vel saman,“ segir Karl en þjóðhátíðar- lag strákanna er meira og minna klárt. „Ég held að við eigum ekki annarra kosta völ en að leyfa fólki að heyra það,“ segir söngvarinn. „Ef við þorum að taka þetta á hátíðinni, mér skilst að það hafi ýmsir lent í þjóðhátíðarnefnd þannig að maður veit ekki hverju maður á að eiga von á,“ segir Karl en eins og kunn- ugt er þá skipaði nefndin tón- listarmanninn Jón Jónsson til þess að semja þjóðhátíðarlagið í ár. „Við vonum bara að allir taki þessu vel. Það er bara gaman að hafa fleiri en eitt þjóðhátíðarlag.“ Sömdu óvart þjóðhátíðarlag Gleðigjafarnir í Baggalúti voru svo spenntir yfi r að fá að spila á Þjóðhátíð í Heimaey að hljómsveitin samdi óvart þjóðhátíðarlagið í staðinn fyrir Jón Jónsson. HLUPU Á SIG Baggalútsmenn voru aðeins of fljótir á sér að semja þjóðhátíðar- lagið. „Ég samdi þetta lag þegar ég var að spila í Vestmannaeyjum sum- arið 2012, eru ástarlög ekki alltaf tengd einhverri sérstakri mann- eskju,“ segir knattspyrnukappinn og tónlistarmaðurinn Guðmund- ur Þórarinsson en lag hans, sem nefnist Bálskotinn, hefur slegið í gegn á netinu. Lagið gaf hann út á Youtube fyrir um mánuði. „Ég er mjög ánægður með viðtökurnar, það er frábært að sjá að fólk er að fíla þetta.“ Lagið hafði gerjast í höfði Guðmundar í um eitt ár áður en hann hljóðritaði lagið. „Ég fékk aðstoð frá góðum vini mínum, Fannari Frey Magnússyni, en hann hefur verið mín hægri hönd í tónlistinni,“ bætir Guðmundur við. Lagið er meðal annars þekkt fyrir að vera eitt aðallagið af svo- kölluðum klefalögum hjá ýmsum íþróttafélögum, og þá sérstaklega í kvennadeildunum. Hann leikur knattspyrnu með Sarpsborg 08 í Noregi og hefur verið þar í rúmt ár. „Ég kann ágætlega við mig hérna og er aðeins að ná tökum á norskunni,“ segir Guðmundur spurður út í lífið í Noregi. Hann hefur samið eitt lag á norsku. „Ég á góðan vin sem aðstoðaði mig við að semja norskan texta, það er samt mjög langt í að það fari á Youtube,“ segir Guðmundur og hlær. Hann hefur flutt tónlist sína í norskum fjölmiðlum en sækist þó lítið eftir því að skemmta í norsk- um fjölmiðlum eða á norskum skemmtistöðum. „Aðstandendur liðsins eru oft að reyna að fá mig til þess að syngja og spila hér og þar en stundum verður maður bara að kunna að segja nei.“ Þá má meðal annars finna mynd- bönd af honum leika tónlist sína á vefsíðu norska ríkisútvarpsins, NRK. Hann langar að starfa við tón- listina samhliða knattspyrnunni í framtíðinni og hefur nú þegar samið um tíu lög. „Öll lögin sem ég hef samið eru frekar hress og skemmtileg, ætli ástæðan sé ekki sú að ég er frekar hress náungi sjálfur.“ Hans helstu fyrirmynd- ir fyrir utan bróður hans, Ingólf Þórarinsson eða Ingó Veðurguð, eru Justin Timberlake, Jón Jóns- son og Friðrik Dór svo nokkrar séu nefndar. „Ég hlusta mikið á íslenska tónlist og finnst mikil- vægt að syngja á íslensku. Það er svo magnað að tala tungumál sem aðeins um þrjú til fjögur hundruð þúsund manns kunna og við eigum að vera stolt af tungu- málinu okkar,“ bætir Guðmund- ur við. Hann segist þó ekki hafa hugsað út í það að gefa út plötu á næstunni. „Ég ætla að sjá til hvað gerist, þetta kemur bara í ljós.“ gunnarleo@frettabladid.is Nýr hjartaknúsari Guðmundur Þórarinsson hefur vakið mikla athygli með nýju lagi og hefur meðal annars ratað í norska fj ölmiðla en hann er atvinnumaður í knattspyrnu í Noregi. GÓÐUR MEÐ GÍTARINN Guðmundur Þórarinsson er hér með einn af sínum bestu vinum, gítarinn. MYND/EINKASAFN TVEIR TÖFFARAR Bræðurnir Ingólfur og Guðmundur Þórar- inssynir á góðri stundu. MYND/EINKASAFN Ingólfur Þórarinsson, eða Ingó Veðurguð, er þjálfari Hamars og lék áður með Selfossi, Fram og Víkingi. Jón Jónsson leikur með FH en var áður hjá Þrótti. Guðmundur Reynir Gunnars- son spilar með KR en lék áður með GAIS. Kristín Ýr Bjarnadóttir leikur með Val en lék áður með Avalds- nes IL í Noregi. Þekkt knattspyrnu- og tónlistarfólk

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.