Fréttablaðið - 23.05.2014, Blaðsíða 38

Fréttablaðið - 23.05.2014, Blaðsíða 38
FRÉTTABLAÐIÐ Jóga. Götutískan í Cannes. Samfélagsmiðlar. 8 • LÍFIÐ 23. MAÍ 2014 Ég fylgd- ist með fólki sem kom þangað út- úrstressað en yfirgaf staðinn eftir ellefu daga geislandi og endurnært. AUGLÝSING: VISTOR KYNNIR Femmenessence MacaLife og MacaPause eru fæðu- bótarefni fyrir konur, unnin úr maca-rót. Rótin hefur sérlega góð áhrif á hormónatengd óþægindi, svo sem skapsveiflur, hitakóf og önnur einkenni breytingaskeiðs. „Það gat verið ansi óþægilegt að sitja fyrir fram- an fólk og finna hita stíga til höfuðsins, svita leka niður bakið og að þurfa sífellt að klæða mig í og úr og að opna glugga á meðan aðrir í kring voru að frjósa úr kulda,“ segir Guðrún Haraldsdóttir, sem fyrir hálfu öðru ári fór að finna fyrir einkennum breytingaskeiðsins, ekki síst hitakófum og pirringi. Guðrún er 47 ára og starfar á söluskrifstofu þar sem ávallt er mikill erill og nóg að gera. „Ég er í góðu formi, er í líkamsrækt, hreyfi mig reglu- lega og er mikið á ferð og flugi. Þetta ástand olli mér því töluverðri vanlíðan,“ viðurkennir Guðrún, sem einnig vaknaði ýmist rennsveitt eða ísköld um nætur en það skerti gæði nætursvefns og hafði áhrif í daglegu amstri. „Ég velti fyrir mér hvernig ég gæti snúið mér í þessum vanda, án þess að hakka í mig hormóna, enda ekki komin á aldur fyrir svoleiðis,“ segir Guð- rún og brosir. Hjálpin kom úr óvæntri átt þegar hún frétti af fæðubótarefninu Femmenessence MacaLife sem hún ákvað að prófa og hefur tekið í tæpt ár. „Femmenessence MacaLife er náttúruleg vara og ég finn mikinn mun á mér. Ég er miklu hressari og öflugri í dagsins önn, svitakófin eru hætt og ég er á allan hátt í betra jafnvægi, andlega og líkamlega. Ég mæli því hiklaust með Femmenessence fyrir konur því við þurfum ekki að láta okkur líða illa. Það er til lausn,“ upplýsir Guðrún. Hormónajafnvægi án hormóna Femmenessence MacaLife og Maca- Pause er unnið úr maca-rót (Lipidi- um peruvianum) sem vex eingöngu hátt í Andesfjöllum Perú. Rótin er flokkuð sem ofurfæða og kemur jafnvægi á og styður við hormónaframleiðslu líkamans. Auk þess að stilla skapsveiflur, hitakóf og bæta svefn, sýna rannsóknir aukna beinþéttni og betri þyngdar- stjórnun. „Femmenessence hefur mikla virkni og því er mælt með að byrja rólega. Eitt hylki að morgni í eina viku og síðan bætt við skammtinn smátt og smátt,“ s e g i r G u ð n ý Traustadóttir, LAUS VIÐ PIRRING, SVITA OG HITAKÓF Guðrún Haraldsdóttir segist bæði hressari og öflugri eftir að hún fór að taka inn Femmenessence MacaLife. MYND/GVA Femmenessence MacaLife og Maca- Pause er fyrir konur eftir fertugt og þær sem hafa einkenni breytingaskeiðs. Femmenessence MacaPause er fyrir konur eftir tíðahvörf. M eð mánaðar fyrirvara ákvað ég bara að skella mér til ótrúlegrar eyju í Taílandi sem heit- ir Koh Phangan. Þar fann ég mér frábæran jógakenn- ara, naut lífsins í fimm vikur og kynntist dásamlegum stað,“ segir Þóra Hlín Friðriksdóttir, hjúkr- unarfræðingur og jógakennari. Oreon-jógasetrið er umhverfi fyrir fólk sem þráir að hlúa að sjálfu sér en boðið var upp á ýmsar heildræn- ar heilsumeðferðir, detox, föstur og fleira. „Fólk verður að taka ábyrgð á andlegri og líkamlegri heilsu sinni. Því langar mig að vekja athygli á þessum stað þar sem lífið var ein- falt og fólkið var svo ótrúlega ham- ingjusamt. Maður býr að þessari reynslu alla ævi,“ segir Þóra Hlín. Árið 2012 fór hún í sína fyrstu jógaferð til Indlands, sem hún segir vera miðpunkt jógaiðkunar í heiminum. Hún uppgötvaði mik- ilvægi þess að hafa kjarkinn til að ferðast og upplifa framandi staði á eigin forsendum. Þóra Hlín æfði jóga tvisvar á dag í heilan mánuð og segist hafa tekið sína jógaiðkun á hærra plan eftir upplifunina. „Þessi ferð fór fram úr mínum björtustu vonum því ég fylgdist með fólki sem kom þangað útúrstressað en yfirgaf staðinn eftir ellefu daga, geislandi og endurnært á líkama og sál. Mér leið stórkostlega þarna og hjartað er núna á réttum stað.“ marinmanda@frettabladid.is FÓLK VERÐUM AÐ TAKA ÁBYRGÐ Á ANDLEGRI HEILSU Þóra Hlín Friðriksdóttir, hjúkrunarfræðingur og jógakennari, fann sig á framandi eyju. Amanda, heildrænn þjálfi, leið- beinir og hjálpar fólki í að kom- ast til betri heilsu.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.