Fréttablaðið - 23.05.2014, Blaðsíða 39
„Ég hef unnið við hárgreiðslu í tæp 16
ár og aldrei kynnst öðru eins efni og
Colour B4. Ég prófaði þetta fyrst í
september 2013 að ósk viðskiptavinar
míns, sem þá var með litað svart hár
en ljósan náttúrulegan háralit. Við
notuðum Colour B4 extra og útkoman
var hreint út sagt frábær! Hárið varð
kopar-brúnt, mjög jafn litur og þetta
efni þurrkar ekki eða skemmir hárið.“
Þetta segir Elín Birna Harðardóttir
hjá Hár & Dekur í Bæjarlind 6 í Kópa-
vogi en þar er boðið upp á lita-
hreinsun en margir ánægðir við-
skiptavinir hafa nýtt sér þá þjónustu.
Elín Birna segir efnið tilvalið fyrir hár
sem er búið að lita mikið og má ekki
við því að fá aflitun í sig.
„Eftir að við setjum Colour B4 í
setjum við plastpoka yfir hárið til þess
að halda hitanum í hárinu. Svo er
skolunarþátturinn MJÖG mikilvægur.
Skola þarf hárið í allavega 10 mínútur
samkvæmt leiðbeiningum en sökum
þess að vatnið okkar á Íslandi er ekki
í líkingu við það erlenda er það okkar
reynsla að við Íslendingar þurfum að
skola aðeins lengur, við mælum með
að gefa sér 12-15 mínútur að skola til
að fá sem bestu útkomuna. Eftir fyrstu
skolun setjum við C efnið í, nudda
þarf efnið vel í hárið eins og sjampó,
bíða í 1 mínútu og skola svo í allavega
5 mínútur. Afgangurinn af efninu er
settur í, síðan nuddað og skolað vel
úr. Í lokin er gott að setja góða hár-
næringu sem lokar hárinu til þess að
fá mýkt í það aftur.
Við mælum hiklaust með Colour
B4 – séstaklega fyrir þessar dökk/
svarthærðu sem langar að lýsa hárið,
án þess að þurfa aflita það oft, sér-
staklega yfir sumarið þar sem vinsæl-
ast er í dag að hafa þennan flotta
karamellubrúna lit.“
Colour B4:
Fjarlægir
allan ísettan
háralit
Það þarf ekki að beita hárið hörku
til að laða fram upprunalegan lit
þess. Colour B4 hreinsar burt
hárlitinn án þess að valda skaða,
þ.e. án ammoníaks og bleikiefna.
Innflytjandi ColorB4 fékk hár.is í
lið með sér til að sannreyna
yfirlýsingar framleiðanda og
niðurstöðurnar má sjá hér.
„Hreint út sagt frábær útkoma“
Hár Hafrúnar fyrir Colour B4. Hár Unnar Ýrar fyrir Colour B4.Hár Írisar Hrundar fyrir Colour B4.
Hár Hafrúnar eftir Colour B4.
Hafrún
„Mér fannst að undravert hvað hann
náði að taka mikið af lit úr, hef ekki
séð minn raunverulega hárlit í 12 ár.
Ég hef litað hárið mitt með öllum
mögulegum lit í gegnum ævina og
eftir að ég notaði Colour B4 þá sást
varla að ég hafi litað á mér hárið.“
Íris Hrund
„Endarnir urðu grænir og það fríkaði
mig aðeins út en það er skiljanlegt þar
sem þeir voru aflitaðir og með leifum af
fjólubláum. Ég hafði efnið í hárinu í
klukkutíma. Þessi útkoma kom mér
mjög á óvart og hárið er einnig í
mjög gódu ástandi.“
Unnur Ýr
„Mér finnst munurinn ekkert svaka-
legur á myndunum þó mér finnist ég
sjá hellings mun í speglinum.“
Hár Unnar Ýrar eftir Colour B4.Hár Írisar Hrundar eftir Colour B4.
Þú færð COLOUR B4
í Lyfju, Lyf & Heilsu, Hagkaup
Smáralind og víðar.
Á ammoníaks og bleikiefna.