Fréttablaðið - 23.05.2014, Page 17

Fréttablaðið - 23.05.2014, Page 17
FÖSTUDAGUR 23. maí 2014 | SKOÐUN | 17 Miðbærinn. Árið er 1998. Allir skemmtistaðirnir loka kl. 03.00. Austurstrætið fyllist af fólki niður í grunnskólaaldur. Stemningin er eins og á útihá- tíð. Öll Lækjargatan bíður eftir leigubíl. Sumir slást. Aðrir eru að leita sér að eftirpartíi. Ekki búnir að fá nóg. Miðbærinn. Árið er 2001. Opnunartími skemmtistaða er frjáls. Sumir loka áfram kl. 3.00 en aðrir eru opnir til morguns. Ungur maður labbar út af bar í Tryggvagötunni og fer heim með fyrsta strætó laugardags- ins. Hann á eftir að hugsa um það, áratug síðar, hve merki- legt það er að Ingibjörg Sólrún Gísladóttir hafi valið fyrsta ár hans í háskólanum til að gera tilraun með óheft djammfrelsi. Miðbærinn. Árið er 2004. Skemmtistaðirnir loka á ólík- um tímum, þeir síðustu kl. 5.30. Ungi maðurinn hafði haft áhyggjur af því að það myndi einfaldlega skapast örtröð kl. 5.30 í stað kl. 03.00 áður. Það reyndist ekki vera raunin. Nátt- úrulegt djammúthald flestra er styttra. Eftirpartí sem byrjar kl. 06.00 felst oftast í því að ein- hver borðar bátinn sinn uppi í leðursófa og sofnar. Örtröð vegna banns Margir hafa gaman af því að drekka áfengi. Þegar fólk drekkur áfengi lendir það í ýmsu rugli. Það er til dæmis lík- legra til verða lamið eða lemja aðra. Sumir vilja lágmarka þessa hættu með því að banna hluti: loka stöðum fyrr svo fólk sé ekki drukkið allt of lengi. Fyrirfram er það alls ekki einhver vond tilgáta að halda að slík bönn hjálpi. En bönnin geta haft ýmis hliðaráhrif. Þegar skemmtistaðirnir lokuðu allir á sama tíma safnaðist fullt af fullu fólki saman á litlu svæði. Raðir mynduðust eftir leigubíl- um. Slagsmál brutust út. Lög- reglan lenti í vandræðum. Enda var lögreglan á sínum tíma á móti því að færa lokunartímann aftur til 3.00. Meira frelsi virðist hafa minnkað vandann. Tímabil ævinnar Ofbeldisbrotum fækkaði með lengri opnunartíma. Það skiptir alveg máli hvort hundrað manns til eða frá eru kýldir í magann eða ekki. Reglur sem ekki skila árangri ætti ekki að endurvekja. Frekar ætti að leyfa því fáa fólki sem vill djamma til 6.00 að gera svo. Sumum finnst kannski hneykslanlegt að einhver skuli yfirhöfuð vilja slíkt. Menn gleyma þá því að menn gera sumt tvítugir sem þeir hlæja að þrítugir, hneykslast svo á því fertugir og setja um það lög fimmtugir. Sumt er sem sagt bara partur af ákveðnu ævi- skeiði. Tvær líkamsárásir á Hróarskeldu Hróarskelduhátíðin verður eftir rúman mánuð. Þar koma saman 130 þúsund manns og skemmta sér í fjóra daga, sumir lengur. Ekki er meðalaldurinn hærri en í miðborg Reykjavíkur um helgar. Ekki er drykkjan lítil. Og vissulega kemur upp fullt af eiturlyfjamálum. Vissulega er fullt af símum stolið. En árið 2012 var tilkynnt um tvö ofbeld- isbrot á hátíðinni. Þetta eru 130 þúsund manns. Drukkin í viku. Lengra og betra djamm Grunnhyggið að ræða öruggara djamm? Hlíðar. Árið 2014. Ég glugga í skýrslur lögreglunnar. Það segir að á árinu 2013 hafi verið tilkynnt um 278 ofbeldisbrot í miðborginni. Tölurnar hafa verið að dansa þarna um og undir þrjú hundruð undanfarin ár. Það ætti að vera kappsmál að lækka þær tölur. Ýmisleg mætti gera. Til dæmis mætti dreifa álaginu betur með því að hafa suma staði opna lengur. Síðan mætti skoða leiðir til að koma fólki hraðar heim svo það hafi minni ástæðu til að vera þreytt og pirrað. Allt þetta má gera með markaðslausnum og réttri verðlagningu frekar en boðum og bönnum. Heimdallur vill leyfa frjáls- an opnunartíma skemmtistaða. Kannski finnst fólki það vera vondar hugmyndir. Það er allt í lagi. Þá mega menn bregðast við þeim með tölum og rökum en ekki með athugasemdum um að það sé asnalegt og grunnhyggið hjá ungu fólki að viðra þær. Í DAG Pawel Bartoszek stærðfræðingur 1997 1998 1999 2000 2001 2002 2003 2004 Heimild: Lögreglan OFBELDISBROT Í MIÐBÆ REYKJAVÍKUR 400 300 200 100 0 352 381 409 429 380 368 337 265 Fjöldi Meira frelsi virðist hafa minnkað vand- ann. Ofbeldisbrotum fækk- aði með lengri opnunar- tíma. Það skiptir alveg máli hvort hundrað manns til eða frá eru kýldir í magann eða ekki. Reglur sem ekki skila árangri ætti ekki að endurvekja. E N N E M M / S IA • N M 58 0 0 1 Skógarhlíð 18 • 105 Reykjavík • Sími 595 1000 • Akureyri, sími 461 1099 • www.heimsferdir. is Síðstu sætin í sólina í júní Heimsferðir bjóða frábært tilboð á allra síðustu sætunum í 14 nátta ferð til Tyrklands þann 12. júní Í boði er m.a. frábær sértilboð á Bitez Garden Life Hotel & Suites með öllu inniföldu á ótrúlegum kjörum. Einnig önnur sértilboð í boði. Aðeins örfá herbergi í boði – bókaðu strax! Frá kr. 109.900 með allt innifalið Bitez Garden Life Hotel & Suites m.v. tvo fullorðna og tvö börn í fjölskylduherbergi á Bitez Garden Life Hotel & Suites í Bodrum með allt innifalið. Verð 139.900 kr. m.v. tvo í herbergi á Bitez Garden Life Hotel & Suites með allt innifalið. 12. júní – Örfá sæti 26. júní – Fá sæti Heimsferðir bjóða ótrúlegt tilboð á Aguamarina íbúðarhótelinu 16. Júní í 10 nætur. Önnur gisting í boði á ótrúlegum kjörum. Frá kr. 89.900 Aguamarina Netverð á mann, m.v. 2 fullorðna og 2 börn, 2-11 ára, í íbúð með einu svefnherbergi. Netverð á mann m.v. 2 fullorðna í íbúð kr. 119.900. 3. júní – Örfá sæti 12. júní – Fá sæti 23. júní – Fá sæti Heimsferðir bjóða frábært tilboð í 11 nátta ferð til Krítar þann 12. júní. Í boði er m.a. Galini Seaview hótelið með allt innifalið. Frá kr. 129.900 með allt innifalið Galini Seaview Netverð á mann m.v. 2 fullorðna og 2 börn í íbúð með allt innifalið. Kr. 149.900 á mann m.v. tvo 2 fullorðna í herbergi. 2. júní – 3 sæti 12. júní – Örfá sæti 23. júní – Örfá sæti Heimsferðir bjóða ótrúlegt tilboð á Ola Tomir íbúðarhótelinu 19. júní í 11 nætur. Önnur gisting í boði á ótrúlegum kjörum. Frá kr. 83.900 Ola Tomir Netverð á mann, m.v. 2 fullorðna og 2 börn, 2-11 ára, í íbúð með einu svefnherbergi. Netverð á mann m.v. 2 fullorðna í studio kr. 99.900. 5. júní – Örfá sæti 19. júní – Fá sæti Tyrkland – 12. júní í 2 vikur Costa del Sol – 16. júní í 10 nætur Krít – 12. júní í 11 nætur Mallorca – 19. júní í 11 nætur

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.