Fréttablaðið - 23.05.2014, Qupperneq 17
FÖSTUDAGUR 23. maí 2014 | SKOÐUN | 17
Miðbærinn. Árið er 1998. Allir
skemmtistaðirnir loka kl.
03.00. Austurstrætið fyllist af
fólki niður í grunnskólaaldur.
Stemningin er eins og á útihá-
tíð. Öll Lækjargatan bíður eftir
leigubíl. Sumir slást. Aðrir eru
að leita sér að eftirpartíi. Ekki
búnir að fá nóg.
Miðbærinn. Árið er 2001.
Opnunartími skemmtistaða er
frjáls. Sumir loka áfram kl. 3.00
en aðrir eru opnir til morguns.
Ungur maður labbar út af bar
í Tryggvagötunni og fer heim
með fyrsta strætó laugardags-
ins. Hann á eftir að hugsa um
það, áratug síðar, hve merki-
legt það er að Ingibjörg Sólrún
Gísladóttir hafi valið fyrsta ár
hans í háskólanum til að gera
tilraun með óheft djammfrelsi.
Miðbærinn. Árið er 2004.
Skemmtistaðirnir loka á ólík-
um tímum, þeir síðustu kl.
5.30. Ungi maðurinn hafði haft
áhyggjur af því að það myndi
einfaldlega skapast örtröð kl.
5.30 í stað kl. 03.00 áður. Það
reyndist ekki vera raunin. Nátt-
úrulegt djammúthald flestra er
styttra.
Eftirpartí sem byrjar kl.
06.00 felst oftast í því að ein-
hver borðar bátinn sinn uppi í
leðursófa og sofnar.
Örtröð vegna banns
Margir hafa gaman af því
að drekka áfengi. Þegar fólk
drekkur áfengi lendir það í
ýmsu rugli. Það er til dæmis lík-
legra til verða lamið eða lemja
aðra. Sumir vilja lágmarka
þessa hættu með því að banna
hluti: loka stöðum fyrr svo fólk
sé ekki drukkið allt of lengi.
Fyrirfram er það alls ekki
einhver vond tilgáta að halda að
slík bönn hjálpi. En bönnin geta
haft ýmis hliðaráhrif. Þegar
skemmtistaðirnir lokuðu allir
á sama tíma safnaðist fullt af
fullu fólki saman á litlu svæði.
Raðir mynduðust eftir leigubíl-
um. Slagsmál brutust út. Lög-
reglan lenti í vandræðum. Enda
var lögreglan á sínum tíma á
móti því að færa lokunartímann
aftur til 3.00.
Meira frelsi virðist hafa
minnkað vandann.
Tímabil ævinnar
Ofbeldisbrotum fækkaði með
lengri opnunartíma. Það skiptir
alveg máli hvort hundrað manns
til eða frá eru kýldir í magann
eða ekki. Reglur sem ekki skila
árangri ætti ekki að endurvekja.
Frekar ætti að leyfa því fáa
fólki sem vill djamma til 6.00 að
gera svo.
Sumum finnst kannski
hneykslanlegt að einhver skuli
yfirhöfuð vilja slíkt. Menn
gleyma þá því að menn gera
sumt tvítugir sem þeir hlæja
að þrítugir, hneykslast svo á
því fertugir og setja um það lög
fimmtugir. Sumt er sem sagt
bara partur af ákveðnu ævi-
skeiði.
Tvær líkamsárásir á Hróarskeldu
Hróarskelduhátíðin verður eftir
rúman mánuð. Þar koma saman
130 þúsund manns og skemmta
sér í fjóra daga, sumir lengur.
Ekki er meðalaldurinn hærri
en í miðborg Reykjavíkur um
helgar. Ekki er drykkjan lítil.
Og vissulega kemur upp fullt
af eiturlyfjamálum. Vissulega
er fullt af símum stolið. En árið
2012 var tilkynnt um tvö ofbeld-
isbrot á hátíðinni. Þetta eru 130
þúsund manns. Drukkin í viku.
Lengra og betra djamm
Grunnhyggið að ræða
öruggara djamm?
Hlíðar. Árið 2014. Ég glugga
í skýrslur lögreglunnar. Það
segir að á árinu 2013 hafi verið
tilkynnt um 278 ofbeldisbrot
í miðborginni. Tölurnar hafa
verið að dansa þarna um og
undir þrjú hundruð undanfarin
ár. Það ætti að vera kappsmál að
lækka þær tölur. Ýmisleg mætti
gera. Til dæmis mætti dreifa
álaginu betur með því að hafa
suma staði opna lengur. Síðan
mætti skoða leiðir til að koma
fólki hraðar heim svo það hafi
minni ástæðu til að vera þreytt
og pirrað. Allt þetta má gera
með markaðslausnum og réttri
verðlagningu frekar en boðum
og bönnum.
Heimdallur vill leyfa frjáls-
an opnunartíma skemmtistaða.
Kannski finnst fólki það vera
vondar hugmyndir. Það er allt í
lagi. Þá mega menn bregðast við
þeim með tölum og rökum en
ekki með athugasemdum um að
það sé asnalegt og grunnhyggið
hjá ungu fólki að viðra þær.
Í DAG
Pawel Bartoszek
stærðfræðingur
1997 1998 1999 2000 2001 2002 2003 2004
Heimild: Lögreglan
OFBELDISBROT Í MIÐBÆ REYKJAVÍKUR
400
300
200
100
0
352
381
409
429
380
368
337
265
Fjöldi
Meira frelsi virðist
hafa minnkað vand-
ann. Ofbeldisbrotum fækk-
aði með lengri opnunar-
tíma. Það skiptir alveg máli
hvort hundrað manns til
eða frá eru kýldir í magann
eða ekki. Reglur sem ekki
skila árangri ætti ekki að
endurvekja.
E
N
N
E
M
M
/
S
IA
•
N
M
58
0
0
1
Skógarhlíð 18 • 105 Reykjavík • Sími 595 1000 • Akureyri, sími 461 1099 • www.heimsferdir. is
Síðstu sætin í sólina í júní
Heimsferðir bjóða frábært tilboð á allra síðustu sætunum í 14 nátta
ferð til Tyrklands þann 12. júní Í boði er m.a. frábær sértilboð á
Bitez Garden Life Hotel & Suites með öllu inniföldu á ótrúlegum
kjörum. Einnig önnur sértilboð í boði. Aðeins örfá herbergi í boði
– bókaðu strax!
Frá kr. 109.900 með allt innifalið
Bitez Garden Life Hotel & Suites
m.v. tvo fullorðna og tvö börn í fjölskylduherbergi á Bitez Garden
Life Hotel & Suites í Bodrum með allt innifalið.
Verð 139.900 kr. m.v. tvo í herbergi á Bitez Garden Life Hotel &
Suites með allt innifalið.
12. júní – Örfá sæti 26. júní – Fá sæti
Heimsferðir bjóða ótrúlegt tilboð á Aguamarina íbúðarhótelinu
16. Júní í 10 nætur. Önnur gisting í boði á ótrúlegum kjörum.
Frá kr. 89.900
Aguamarina
Netverð á mann, m.v. 2 fullorðna og 2 börn, 2-11 ára, í íbúð með
einu svefnherbergi.
Netverð á mann m.v. 2 fullorðna í íbúð kr. 119.900.
3. júní – Örfá sæti 12. júní – Fá sæti
23. júní – Fá sæti
Heimsferðir bjóða frábært tilboð í 11 nátta ferð til Krítar þann
12. júní. Í boði er m.a. Galini Seaview hótelið með allt innifalið.
Frá kr. 129.900 með allt innifalið
Galini Seaview
Netverð á mann m.v. 2 fullorðna og 2 börn í íbúð með allt innifalið.
Kr. 149.900 á mann m.v. tvo 2 fullorðna í herbergi.
2. júní – 3 sæti 12. júní – Örfá sæti
23. júní – Örfá sæti
Heimsferðir bjóða ótrúlegt tilboð á Ola Tomir íbúðarhótelinu
19. júní í 11 nætur. Önnur gisting í boði á ótrúlegum kjörum.
Frá kr. 83.900
Ola Tomir
Netverð á mann, m.v. 2 fullorðna og 2 börn, 2-11 ára, í íbúð með
einu svefnherbergi.
Netverð á mann m.v. 2 fullorðna í studio kr. 99.900.
5. júní – Örfá sæti 19. júní – Fá sæti
Tyrkland – 12. júní í 2 vikur
Costa del Sol – 16. júní í 10 nætur
Krít – 12. júní í 11 nætur
Mallorca – 19. júní í 11 nætur