Fréttablaðið - 31.05.2014, Side 10

Fréttablaðið - 31.05.2014, Side 10
31. maí 2014 LAUGARDAGUR| FRÉTTIR | 10 KJARAMÁL „Það hefur ekki reynst næg samstaða um launalínuna sem var mótuð í desembersamn- ingunum. Því er ekki að neita að ýmis stéttarfélög, þá sérstaklega á opinbera markaðnum, hafa lagt til atlögu við þá línu sem mörk- uð var,“ segir Þorsteinn Víglunds- son, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins. Hann tiltekur sérstaklega samninga BHM við sveitarfélögin og samninga sem gerðir hafa verið við grunn- og framhalds- skólakennara. Miðstjórn Alþýðusambands Íslands heldur því fram að til- raun sem gerð var fyrir áramót með kjarasamningum ASÍ við Samtök atvinnulífsins hafi mis- tekist. Tilgangurinn hafi verið að skapa breiða samstöðu sem ætlað hafi verið að stuðla að stöðugleika í gengi og verðlagi. Samið hafi verið um 2,8 prósenta hækkun auk sérstakra hækkana á lægstu laun. Stórir hópar hafi komið og samið um allt annað og meira en talið var að væri til skiptanna í kringum áramótin. Til sögunnar nefnir ASÍ kennarasamningana og samninga flugmanna við Ice- landair. Þorsteinn segir rangt að til- raunin hafi mistekist. „Ef við horfum á stóru mynd- SAMSTAÐA Samtök atvinnulífsins segja að tekist hafi að koma í veg fyrir víxlhækkun launa og verðbólgu. ASÍ segir að mistekist hafi að skapa breiða samstöðu um stöðugleika. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM 30% Samningar sveitar félaga og ríkis við kennara. 8% Samningar fl ug manna við Icelandair. 2,8% Samn ingar aðildar- félaga ASÍ við SA. ina þá var verkefnið að ná breyt- ingum á þeim vítahring sem við höfum verið föst í, það er víxl- hækkunum launa og verðbólgu. Það hefur tekist,“ segir Þorsteinn og bendir á að verðbólga hafi verið undir 2,5 prósenta verð- bólguviðmiði Seðlabanka Íslands undanfarna mánuði. „Það eru vissulega undantekn- ingar þar sem ákveðnir hópar hafa samið um meira en var gert í desember. Það grefur undan samstöðunni,“ segir Þorsteinn og bætir við að verkefnið í næstu lotu sé að finna sameiginlega lausn sem raskar ekki grunnforsendum kjarasamninga og viðheldur stöð- ugleika. Karl Björnsson, framkvæmda- stjóri Sambands íslenskra sveitar- félaga, neitar því að tilraunin hafi mistekist. Hann segir að það hafi myndast tækifæri til að semja við grunnskólakennara eftir að fram- haldsskólakennarar sömdu við ríkið. „Það var búið að vinna lengi að þeim kerfisbreytingum sem samd- ist um og við vissum allan tímann að þær myndu þýða ákveðnar launahækkanir fyrir kennara,“ segir Karl og segir að aðrir samn- ingar, sem sveitarfélögin hafa gert, séu í takt við samninga ASÍ við SA. „Aðrir samningar en kennara- samningarnir eru í sama anda og ASÍ-samningarnir. Menn verða að hafa í huga þegar þeir eru að meta samninga hvað þeir eru gerðir til langs tíma.“ johanna@frettabladid.is Hækkun launa N r Hyundai i10 4G Wi–Fi Verðlaunab ll fr 1.990.000 kr. Hyundai – Kauptúni 1 – Beint á móti IKEA – Sími: 575 1200 www.hyundai.is – www.facebook.com/hyundai.is E N N E M M / S ÍA / N M 6 2 9 6 5 N i b llinn er Hyundai*M ið að v ið u pp ge fn ar tö lu r f ra m le ið an da Minnsti skemmtistaður heimi N r Hyundai i10 hefur unnið til 10 verðlauna s ðastliðnum fj rum m nuðum og er n efa einn skemmtilegasti sm b llinn markaðnum. Með fullkominni 4G Wi–Fi tengingu geta farþegar auðveldlega breytt i10 minnsta skemmtistað heimi og sent beint fr skemmtilegum b lt r með g ðum vinum. Gerðu eitthvað skemmtilegt! 5 ra byrgð takmarkaður akstur Hyundai i10 – eldsneytisnotkun: 4,7 l/100 km bl nduðum akstri* Hyundai i10 er tengdur dreifikerfi S mans um land allt N r iPad Mini fylgir llum n jum Hyundai i10 Kaupauki! Fyrsti b llinn markaðnum með Wi–Fi tengingu • 4G Wi–Fi tenging • ESP st ðugleikast ring • ABS hemlar með EDB hemlaj fnun • 6 loftp ðar • Upphituð sæti og leðurst ri • Aksturst lva • Þokulj s • ISO-fix barnab lst lafestingar GE bílar Reykjanesbæ www.bilahusid.is 420 0400 Bílasalan Bílás Akranesi www.bilas.is 431 2622 Bílasala Akureyrar Akureyri www.bilak.is 461 2533 Bílaverkstæði Austurlands Egilsstöðum www.bva.is 470 5070 IB ehf. Selfossi www.ib.is 480 8080 OPIÐ DAG, LAUGARDAG FR 12-16 Hafa gert atlögu að samstöðu á vinnumarkaði Alþýðusambandið segir að tilraunin til að semja um hóflegar kauphækkanir og stöðugleika hafi mistekist. Samtök atvinnulífsins segja það rangt en benda á að nokkrir hópar hafi þó samið um meira en ASÍ-félögin. SVÍÞJÓÐ Háttsettur sænskur lög- reglumaður segir sænsku lög- regluna ekki nýta sér nægilega vel tækifæri til að leysa sakamál. Í viðtali við sænska ríkisútvarp- ið segir yfirmaðurinn, Göran Görtzen, lögregluna geta fengið upplýsingar um afbrotamenn vegna samvinnu við Holland og Finnland. DNA-sýni af vettvangi glæps eru þá send til fyrrnefndra landa. Biðja verður síðan sérstak- lega um upplýsingarnar. Það hafi sænska lögreglan aðeins gert í 61 tilfelli af 193 þegar hægt hefur verið að tengja sýni við ákveðinn einstakling. - i bs Gagnrýnir lögreglumenn: Vannýtir tæki- færi í málum NÁTTÚRA Alls fundust 4.790 hrein- dýr í vetrartalningu hreindýra á Austurlandi í mars. Áætlanir Nátt- úrustofu Austurlands um fjölda dýra stóðust prýðilega en talið var frá Suðursveit norður í Þistilfjörð. Aðeins munaði 40 dýrum á töldum dýrum miðað við áætlanir. Ráðnir voru staðkunnugir hreindýramenn til að telja og réðu þeir sér aðstoðarmenn þar sem þess þurfti. Auk þess sá Náttúrustofan um að telja nokkra stóra hópa úr flugvél. Þegar talningarnar eru bornar saman í gegnum tíðina sést að aðalbreytingarnar eru fjölgun dýra norðan Jökulsár á Dal og sunnan Stöðvarfjarðar á kostnað Jökuldals og Fljótsdals. - shá Áætlaður fjöldi stóðst: 4.790 hreindýr talin eystra
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.