Fréttablaðið - 31.05.2014, Page 12

Fréttablaðið - 31.05.2014, Page 12
31. maí 2014 LAUGARDAGUR| FRÉTTIR | 12 Rúmfatalagerinn er með frábær garðhúsgögn af mörgum gerðum og í margs konar litum. Þú finnur alveg örugglega stílinn og gæðin sem henta þér, því í úrvali okkar má finna allt frá góðum plasthúsgögnum til úrval harðviðar- og tekkhúsgagna. Við erum stolt af því að öll harðviðarhúsgögn okkar eru gerð úr FSC-vottuðum viði. Það er trygging þín fyrir því að þú styðjir sjálfbæra skógrækt. FSC vottun merkir að skógurinn sem tréð er úr er skoðaður af óháðum aðilum og metinn samkvæmt þeim umhverfislegu, félagslegu og hagrænu reglum og viðmiðum sem Forest Stewardship Council setur ábyrgri skógrækt. FSC eru alþjóðleg samtök sem ekki eru rekin í hagnaðarskyni og þar vinna umhverfissamtök, framfarasinnaðir eigendur skóga og fyrirtæki saman að því að bæta eftirlit með skógum heimsins. www.fsc.org FSC® N001715 ® www.rumfatalagerinn.is SÝRLAND Á þriðjudaginn kemur efna sýrlensk stjórnvöld til for- setakosninga. Enginn efast um að Bashar al Assad, sem tók við sem forseti af föður sínum árið 2000, muni bera sigur úr býtum. Annað tæki hann ekki í mál. Kosningarnar verða haldnar í miðri borgarastyrjöld. Þrjár milljónir íbúanna hafa flúið til nágrannaríkjanna og sex millj- ónir eru á vergangi innan landa- mæranna. Samtals er meira en þriðjungur íbúanna flúinn að heiman og óvíst með öllu hvern- ig þetta fólk ætti að fara að því að taka þátt í kosningunum. Á Vesturlöndum er því litið á kosningarnar sem skrípaleik. Tveir menn hafa til málamynda boðið sig fram gegn Assad, að því er virðist í þeim tilgangi einum að ljá kosningunum örlítinn blæ trúverðugleika. Borgarastyrjöldin síðustu þrjú árin hefur kostað hátt á annað hundrað þúsund manns lífið. Í gær skýrðu svo sýrlensku mannréttindasamtökin Syrian Observatory for Human Rights, sem hafa bækistöðvar á Bret- landi, frá því að það sem af er þessu ári hafi tunnusprengjur stjórnarhersins kostað nærri tvö þúsund manns lífið í borginni Aleppo. Hátt í sex hundruð þeirra voru yngri en 18 ára og nærri 300 voru konur. Stjórnarherinn hefur verið harðlega gagnrýndur fyrir að nota tunnusprengjur gegn almenningi í borginni, sem er fjölmennasta borg landsins og var fram á allra síðustu misseri helsta miðstöð verslunar og við- skipta. Sprengjurnar eru útbúnar þannig að málmbrotum er hrúg- að í tunnu ásamt sprengiefni og þessu er svo kastað úr þyrlum. Frá árinu 2012 hefur stjórnar- herinn ákaft reynt, en lítið orðið ágengt, að hrekja uppreisnar- menn frá borginni, sem þeir hafa að stórum hluta haft á sínu valdi. Tunnusprengjunum er varp- að á þau hverfi borgarinnar, sem uppreisnarmenn hafa á sínu valdi. Sprengjunum er ætlað að valda sem mestu tjóni og stjórn- arherinn virðist ekki láta sig neinu varða hvort þær koma niður á uppreisnarmenn eða almenna borgara. Öryggisráð Sameinuðu þjóð- anna sendi í febrúar frá sér ályktun þar sem þess var kraf- ist að stjórnarherinn hætti að gera árásir á almenna borgara í Sýrlandi. Meðal annars var þess krafist að hann hætti að varpa tunnusprengjum á íbúðahverfi. gudsteinn@frettabladid.is Tunnusprengjum varpað í gríð og erg Sýrlandsforseti stefnir ótrauður á forsetakosningar í miðri borgarastyrjöld. Tunnu- sprengjuherferð stjórnarhersins hefur kostað nærri tvö þúsund manns lífið í Aleppo það sem af er þessu ári. Að meðaltali eru það fjórtán manns á dag. EYÐILEGGING Frá borginni Aleppo í Sýrlandi þar sem sprengjur hersins hafa kostað nærri tvö þúsund lífið. FRÉTTABLAÐIÐ/AP INDLAND, AP Tveir lögreglumenn hafa verið reknir úr starfi í Uttar Pradesh á Indlandi vegna þess að þeir gerðu ekkert til að rannsaka hvarf tveggja stúlkna á unglingsaldri. Stúlkunum hafði verið nauðg- að af hópi manna og lík þeirra fundust síðar þar sem þau höfðu verið hengd í tré. Akhi- lesh Yadav, forsætisráðherra í Uttar Pradesh, gerði hins vegar lítið úr málinu þegar fjölmiðlar spurðu út í það: „Eruð þið ekki örugg?“ spurði hann. „Hvers vegna eruð þið þá með áhyggj- ur? Hvað varðar ykkur um þetta?“ - gb Mikil reiði á Indlandi vegna nauðgana og morða: Tveir lögregluþjónar reknir MÓTMÆLI Hópar fólks hafa mótmælt viðbrögðum stjórnvalda og lögreglu. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.