Fréttablaðið - 31.05.2014, Blaðsíða 42
31. maí 2014 LAUGARDAGUR| HELGIN | 42
ÓÁNÆGJUFLOKKAR Á EVRÓPUÞINGINU STANDA BETUR AÐ VÍGI
27,5%
Bretland
UKIP
24
26,7%
Danmörk
Danski þjóðar-
flokkurinn
13
Frakkland
Þjóðarfylkingin
24 25%
Austurríki
Frelsisflokkurinn
18 20,5%
Ungverja-
land
Jobbik
3
14,3%
Holland
Frelsisflokkurinn
4 14,3%
Finnland
Flokkur sannra Finna
2 12,9%
6,2%
Ítalía
Norður-
bandalagið
5
Þýskaland
Þjóðernis-
flokkurinn NPD
1
1%
Grikkland
Syriza
6 26,4%
21,2%
Ítalía
Fimmstjörnu-
hreyfingin
17
7,8%
Spánn
Podemos
(Við getum)
5
9,4
Grikkland
Gullin dögun
3
Svíþjóð
Svíþjóðar-
demókratarnir
2
9,7%
Spánn
Vinstribandalagið
5 10%
7,1%
Pólland
Bandalag ný-
hægrimanna
4
Belgía
Vlaams Belang
1 4,3%
Flokkar hægri ESB-andstæðinga, efa-
manna og þjóðernissinna
Fjöldi fulltrúa á
Evrópuþinginu
NIGEL FARAGE
Leiðtogi Breska
sjálfstæðisflokksins
(UKIP) ætlar að
skemmta sér konung-
lega á komandi
kjörtímabili.
MARINE LE PEN Leiðtogi Þjóðfylking-
arinnar í Frakklandi segist bjartsýn á
að geta myndað nýtt bandalag
hægri þjóðernisflokka.
MORTEN MESSERSCHMIDT
Leiðtogi danska Þjóðarflokksins
vill í samstarf með David Cam-
eron og breska
Íhaldsflokknum.
BEPPE GRILLO Leiðtogi Fimmstjörnu-
hreyfingarinnar á Ítalíu boðar
uppreisn á Evrópuþinginu.
ALEXIS
TSIPRAS
Leiðtogi gríska
vinstriflokksins
Syriza vill nota
sigurinn á
Evrópuþinginu
til að þrýsta á
um kosningar í
Grikklandi.
Nigel Farage, leiðtogi Breska sjálfstæðis-flokksins (UKIP), seg-ist ætla að skemmta sér konunglega við að valda sem mestum
usla á Evrópuþinginu næsta kjör-
tímabil.
Honum hefur bæst býsna fjöl-
mennur liðsauki Evrópuandstæð-
inga frá fjölmörgum aðildarríkjum
Evrópusambandsins.
Þetta er hins vegar frekar sund-
urlaus hópur misskrautlegra ein-
staklinga sem gætu átt erfitt með að
starfa saman. Þeir verða engan veg-
inn í meirihluta á þinginu, en gætu
haft áhrif á einstaka mál þegar
stóru flokkarnir verða ósammála.
Strax nú í vikunni eftir þingkosn-
ingarnar hófust þreifingar um sam-
starf og myndun nýrra þinghópa
þjóðernissinna og Evrópuandstæð-
inga á þinginu.
Beppe Grillo og flautukórinn
Farage og hinn ítalski Beppe Grillo,
leiðtogi Fimmstjörnuhreyfingar-
innar á Ítalíu, hittust á miðvikudag
í Brussel og borðuðu saman hádeg-
ismat.
„Mikill persónuleiki. Gríðar-
gaman að umgangast hann,” sagði
Farage á Twitter-síðu sinni. Í til-
kynningu frá UKIP segir Farage:
„Ef við getum komist að samkomu-
lagi, þá getum við skemmt okkur
stórkostlega við að valda miklum
usla í Brussel.” Og eftir Grillo er
haft: „Við erum uppreisnarmenn
með markmið, og við munum ganga
fylktu liði flautandi.“
Ætli hann sé ekki að vísa þar í
Brúna yfir Kwai-fljótið, eftirminni-
lega bíómynd frá árinu 1957 sem
fjallar um uppreisn breskra her-
manna í grimmilegum fangabúð-
um Japana.
Ekki hefur reynst auðvelt að stað-
setja Fimmstjörnuhreyfinguna,
enda hefur hún hvorki hallað sér
til hægri né vinstri heldur fyrst og
fremst stundað óvægna andstöðu
gegn valdi almennt, með misund-
arlegan húmor og ólíkindalæti að
vopni.
Le Pen og harðskeytta liðið
Fyrir kosningarnar höfðu Marine
le Pen, leiðtogi Þjóðfylkingarinn-
ar í Frakklandi, og Geert Wilders,
leiðtogi Frelsisflokksins í Hollandi,
boðað samstarf og vonuðust til að
geta myndað nýjan þinghóp þjóð-
ernissinnaðra Evrópuandstæðinga.
Óvíst er hvort það takist, en Marine
le Pen kannaði stöðuna á miðviku-
dag og komst að því að flokkar frá
fimm ríkjum eru til í slaginn.
Til þess að geta myndað þinghóp
á Evrópuþinginu þarf að lágmarki
25 þingmenn frá að minnsta kosti 7
löndum. Þetta skiptir máli því form-
legt samstarf í þinghópi tryggir fé
frá ESB og rétt til að láta að sér
kveða í ríkari mæli heldur en þeir
flokkar sem standa utan þinghópa.
Ekkert vandamál verður fyrir Le
Pen að ná saman 25 þingmönnum,
enda er franska Þjóðarfylkingin
ein og sér komin með 24 þingmenn.
Hins vegar gæti orðið vandamál að
fá flokka frá að minnsta kosti sjö
löndum.
Með í væntanlegum þinghópi
þeirra le Pen og Wilders verða að
minnsta kosti franska Þjóðarfylk-
ingin, hollenski Frelsisflokkur-
inn, austurríski Frelsisflokkurinn,
Vlaams Belang frá Belgíu og svo
Norður-Bandalagið frá Ítalíu, sem
hingað til hefur ekki verið í þessum
hópi.
Þá vantar flokka frá tveimur
ríkjum til viðbótar, en le Pen segist
sannfærð um að henni takist það í
tæka tíð. Hún hefur nokkrar vikur
til umráða. Í síðasta lagi þann 23.
júlí næstkomandi þarf að liggja
fyrir hvaða stjórnmálaflokkar frá
hvaða löndum skipa þinghópa Evr-
ópuþingsins næsta kjörtímabilið.
Farage og félagar
Farage hefur harðneitað að ganga til
liðs við þau le Pen og Wilders, vill
ekki láta draga sig í dilk með hálf-
fasískum þjóðernissinnum – enda
gæti sá félagsskapur hugsanlega
fælt breska kjósendur frá flokknum
í þingkosningum sem haldnar verða
á Bretlandi innan árs.
Þess í stað vill Farage halda í
samstarf hægri þjóðernissinna
á Evrópuþinginu í þinghópi sem
nefnst hefur Evrópa frelsis og lýð-
ræðis. Þar innanborðs hafa verið
Breski sjálfstæðisflokkurinn,
danski Þjóðarflokkurinn, Flokkur
sannra Finna og svo ítalska Norð-
urbandalagið ásamt fleirum.
Óneitanlega er það áfall fyrir
þennan hóp að ítalska Norðurbanda-
lagið hefur nú gengið til liðs við Le
Pen og Wilders. Þessir hófsamari
þjóðernissinnar, sem ekki vilja láta
bendla sig við Le Pen og Wilders,
gætu hæglega lent í stökustu vand-
ræðum við að tryggja tilveru þing-
hópsins næsta kjörtímabilið.
Og svo hinir
Fyrir utan þessa hópa voru svo
kosnir á Evrópuþingið flokkar af
ýmsu tagi, sem hafa lýst yfir mis-
jafnlega miklum efasemdum um
Evrópusambandið. Þar eru meðal
annars vinstri flokkar frá Grikk-
landi og Spáni, ýmsir smærri flokk-
ar frá Búlgaríu og Þýskalandi að
ógleymdum nýjum femínistaflokki
frá Svíþjóð.
Yst á jaðrinum er svo Gullin
dögun, flokkur grískra nýnasista,
sem vilja reyndar ekki láta kalla
sig nasista en hafa samt hagað sér
sem slíkir og eru jafnan skilgreind-
ir sem slíkir. Ungverski Jobbik-
flokkurinn og þýski NPD-flokkur-
inn eru svo ekki langt þar undan, og
að öllum líkindum verða þessir þrír
flokkar sér á báti og fá hvergi inni í
þinghópi með öðrum flokkum.
Hófsömustu efasemdamennirn-
ir eru hins vegar íhalds- og hægri-
flokkarnir í þinghópi sem nefnist
Evrópskir íhaldsmenn og umbóta-
sinnar. Þar er að finna breska
Íhaldsflokkinn, með David Camer-
on forsætisráðherra í fararbroddi.
Niðurstöður kosninganna skiluðu
þessum þinghópi hins vegar aðeins
flokkum frá fimm löndum, þann-
ig að til þess að hann geti starfað
áfram þarf fulltrúa frá tveimur
aðildarríkjum til viðbótar.
Stefnan er að valda usla
Næstu fimm árin verða andstæðingar Evrópusambandsins áberandi á Evrópuþinginu. Þetta er frekar sundurleitur hópur
skrautlegra einstaklinga sem gætu átt erfitt með að starfa saman. Þeir verða ekki í meirihluta en gætu haft áhrif á einstaka
mál þegar stóru flokkarnir verða ósammála. Nigel Farage segist ætla að skemmta sér stórkostlega næsta kjörtímabil.
Á Evrópuþinginu skipa þingmenn sér í svonefnda þinghópa, eða flokkabandalög. Að hverjum þinghópi standa stjórnmálaflokkar frá mismörgum aðildarríkjum, sem allir hafa svipaða stefnu í
flestum málum. Skipting þingsæta milli hópanna næsta kjörtímabilið verður eftirfarandi:
ÞINGHÓPARNIR Á EVRÓPUÞINGINU
Hópur kristilegra demókrata 214
Hópur sósíaldemókrata 189
Hópur frjálslyndra demókrata 66
Hópur græningja 52
Hópur íhaldsmanna 46
Hópur sameinaðra vinstrimanna og norrænna græningja 42
Frelsis- og lýðræðishópurinn 38
Óháðir 104
Samtals 751
Guðsteinn
Bjarnason
gudsteinn@frettabladid.is
Flokkar vinstri ESB-andstæðinga og
aðhaldsandstæðinga
HNÍPNIR FORSETA Helstu forystumenn valdastofnana Evrópusambandsins, þeir
Herman van Rompuy, forseti leiðtogaráðsins, og Jose Manuel Barroso, forseti
framkvæmdastjórnarinnar, voru heldur þungir á brún eftir kosningarnar, þar sem
andstæðingar þeirra uppskáru sætan sigur. NORDICPHOTOS/AFP
% Fylgi í heimalandinu