Fréttablaðið - 31.05.2014, Blaðsíða 50
FÓLK|HELGIN
TÍU ÁRA AFMÆLI Skoppa og Skrítla hafa skemmt íslenskum börnum með fræðandi efni í tíu ár.
Hrefna Hallgrímsdóttir, bet-ur þekkt sem Skrítla, bjóst alls ekki við því að þær
Linda Ásgeirsdóttir yrðu enn
að leika Skoppu og Skrítlu tíu
árum eftir að þær gerðu fyrstu
myndina með þær sem aðalper-
sónur. „Upphafið að Skoppu og
Skrítlu var þannig að þegar ég
fór loksins að eiga börn fannst
mér vanta efni fyrir börn sem var
skemmtilegt en um leið fræð-
andi. Ég hafði búið í Bandaríkjun-
um og þar var nóg af þess konar
efni en mér fannst vanta eitthvað
á íslensku. Ég hnippti því í Lindu
vinkonu mína og sagði henni að
við þyrftum að gera eitthvað
í þessu. Við bjuggum
því til litla mynd
með Skoppu og
Skrítlu sem ég vissi
að myndi hitta í
mark hjá tveggja
ára syni mínum.
Þetta vatt svo
upp á sig og hér
erum við enn í dag
að leika Skoppu
og Skrítlu,“ segir
Hrefna.
Skoppa og
Skrítla hafa farið
víða á þessum
tíu árum sem
þær hafa
starfað, þær
hafa verið
í leikhúsi, í
kvikmynd og
sjónvarpsþættir
um þær hafa verið
teknir upp víða um
heim. „Við höfum
ferðast mikið saman
við Linda og höfum
yfirleitt haft börnin
okkar með okkur.
Þau hafa fengið
að alast upp við
þetta og tekið þátt í
þessu með okkur án
þess þó að við höfum
ýtt þessu að þeim.
Þau hafa til dæmis
verið með okkur í leiksýningun-
um en alltaf þurft að fara í prufur
eins og hin börnin,“ segir hún og
hlær.
„Það hefur verið mjög gaman
að hafa öll þessi börn með okkur
í sýningunum og sjá hvað ís-
lensk börn eru klár, bæði í söng
og dansi. Við vorum með 24
börn í jólasýningunni okkar og
hún gekk eins og í draumi. Það
var líka skemmtilegt að finna
hvað börnin sjálf höfðu gaman
af þessu, áhuginn skein af þeim
og þau voru stolt yfir því að vera
fyrirmynd annarra barna.“
„Við erum ótrúlega þakk-
látar fyrir þessi
góðu
viðbrögð sem við höfum fengið í
gegnum tíðina. Við finnum mun á
foreldrum frá því við byrjuðum,
þeir eru orðnir mun meðvitaðri
um hvað er í boði fyrir börnin
þeirra. Það er vanmetið hvað
fyrstu árin skipta miklu máli,
okkur finnst mikilvægt að birta
þessum yngstu jákvæða mynd af
lífinu, erfiðleikarnir geta komið
síðar.“
Margt spennandi er fram
undan hjá Skoppu og Skrítlu í til-
efni tíu ára afmælisins. Í dag taka
þær á móti gullplötu fyrir geisla-
diskinn sinn „Skoppa og Skrítla
á söngferðalagi“ í Hagkaupi í
Smáralind. „Stóra afmælishátíðin
verður svo síðustu helgina í júlí
í Húsdýragarðinum. Við tókum
fyrstu myndina okkar upp þar og
langar að koma aftur „heim“.
Við erum að leita leiða
þessa dagana til að geta
boðið öllum litlu vinum og
vinkonum okkar upp á
stóra ókeypis skemmt-
un. Svo verðum við
með alls kyns við-
burði á næst-
unni, til dæmis
skemmtum
við víða á sjó-
mannadaginn
á morgun.“
SKOPP OG SKRÍTL
Í HEILAN ÁRATUG
STÓRAFMÆLI Tvíeykið skemmtilega Skoppa og Skrítla stendur á tímamótum
en tíu ár eru liðin frá því að hugmyndin að tvíbökunum kviknaði.
HVERAGERÐI
- blómstrandi bær!
Heilsubærinn Hveragerði
Vinalegt samfélag
Eggjasuða í Hveragarðinum
Rómantískar gönguleiðir
Afar fjölbreyttar hátíðir
Garðyrkja og græn svæði
Einstakur golfvöllur
Rómuð náttúrufegurð
Drauma sundlaug
Iðandi lista- og menningarlíf