Fréttablaðið - 31.05.2014, Blaðsíða 65
Staða leikskólastjóra við leikskólann Bakkaberg
Skóla- og frístundasvið
Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir borgarinnar endurspegli það
margbreytilega samfélag sem borgin er.
Skóla- og frístundasvið Reykjavíkurborgar auglýsir stöðu leikskólastjóra í Bakkaberg.
Bakkaberg er fimm deilda leikskóli sem hefur tvær starfsstöðvar, það er Bakki að Bakkastöðum 77 í Grafarvogi og Berg við
Kléberg á Kjalarnesi. Hugmyndafræði leikskólans á rætur að rekja til félagsmenningarlegra kenninga þar sem litið er á að
nám og þroski barna sé í samspili við félags- og menningabundna þætti. Báðar starfsstöðvarnar eru staðsettar í miðri nátt-
úruparadís þar sem meðal annars er stutt í fjöruna, mikil fjallasýn og fjölskrúðugt fuglalíf. Í samræmi við það er lögð áhersla
á umhverfismennt og útinám. Leikskólinn flaggar Grænfánanum. Einkunnarorð leikskólans eru leikur – samvinna – virðing.
Leitað er að einstaklingi sem býr yfir leiðtogahæfileikum og er tilbúinn til að leiða áfram það metnaðarfulla leikskólastarf
sem þróað hefur verið í Bakkabergi.
Meginhlutverk leikskólastjóra er að:
• Vera faglegur leiðtogi leikskóla og móta framtíðarstefnu
hans innan ramma laga, reglugerða, aðalnámskrár og
stefnu Reykjavíkurborgar.
• Hafa yfirumsjón með daglegu starfi í leikskólanum.
• Skipuleggja foreldrasamstarf í samvinnu við foreldra og
starfsmenn.
• Hvetja til þróunar og nýbreytni í leikskólastarfi.
• Stýra rekstri leikskólans á grundvelli fjárhagsáætlunar.
• Bera ábyrgð á starfsmannamálum, svo sem ráðningum,
vinnutilhögun og starfsþróun.
• Skipuleggja tengsl skólans við ýmsa samstarfsaðila.
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Leikskólakennaramenntun.
• Viðbótarmenntun í stjórnun eða kennslureynsla á leik-
skólastigi.
• Reynsla af stjórnun æskileg.
• Stjórnunarhæfileikar og vilji til að leita nýrra leiða.
• Þekking á rekstri, áætlanagerð og fjármálastjórnun.
• Lipurð og hæfni í samskiptum.
• Sjálfstæði, frumkvæði og hæfni til að vinna í hópi.
Óskað er eftir því að umsókninni fylgi greinargerð í stuttu máli um framtíðarsýn umsækjenda á leikskólastarfið.
Auk þess fylgi umsókn yfirlit yfir nám og fyrri störf og leyfisbréf til að nota starfsheitið leikskólakennari.
Ráðið verður í stöðuna frá 1. ágúst 2014. Umsóknarfrestur er til og með 22. júní 2014.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Kennarasambands Íslands vegna
Félags stjórnenda leikskóla.
Umsækjendur eru beðnir um að sækja um starfið á heimasíðu Reykjavíkurborgar, www.reykjavik.is/storf
Nánari upplýsingar veita Hildur Skarphéðinsdóttir, skrifstofustjóri leikskólahluta fagskrifstofu, og Valgerður Janusdóttir,
mannauðsstjóri, sími 411 1111. Netföng: hildur.skarphedinsdottir@reykjavik.is / valgerdur.janusdottir@reykjavik.is
Fjölskyldudeild Akureyrarbæjar óskar eftir að ráða sál-
fræðing til starfa frá 15. ágúst n.k. eða eftir samkomulagi.
Starfið er á sviði sérfræðiþjónustu við leik- og grunnskóla.
Helstu verkefni eru:
• Greiningar einstakra nemenda vegna frávika í hegðun
og/eða þroska.
• Ráðgjöf til foreldra og kennara.
• Samþætting verkefna og þróunarvinna á Fjölskyldudeild.
Hæfniskröfur eru:
• Réttindi til að starfa sem sálfræðingur á Íslandi.
• Haldgóð þekking á greiningu leik- og grunnskólabarna
og ráðgjöf vegna þeirra.
• Reynsla af starfi skólasálfræðings er æskileg.
• Góð samskiptahæfni.
Nánari upplýsingar um starfið er að finna á heimasíðu
Akureyrarbæjar, www.akureyri.is þar sem sótt er um rafrænt.
Umsóknarfrestur er til 15. júní 2014.
Fjölskyldudeild Akureyrarbæjar
Auglýsing um starf
verkefnisstjóra kirkjutónlistar
Biskup Íslands auglýsir laust til umsóknar starf verkefnis-
stjóra kirkjutónlistar í 100% starfshlutfalli frá og með 1.
ágúst 2014.
Starf verkefnisstjóra kirkjutónlistar tekur mið af gildandi
starfsreglum um kirkjutónlist á vegum þjóðkirkjunnar hverju
sinni nú nr. 768/2002 og starfsreglum um organista nú nr.
823/1999. Verkefnisstjórinn heyrir undir biskup Íslands og
vinnur í nánu samstarfi við væntanlegt kirkjutónlistarráð
þjóðkirkjunnar.
Helstu verkefni eru:
• Umsjón með kirkjutónlistarmálum þjóðkirkjunnar og
ráðgjöf við biskup Íslands
• Þjónusta og stuðningur við starf organista, kórstjóra
og annað starfsfólk kirkjunnar
• Skipulagning og framkvæmd sí- og endurmenntunar,
m.a. í samstarfi við Tónskóla þjóð¬kirkjunnar
• Ábyrgð á og þróun Söngvasjóðs, tónlistarvefs kirkjunnar
• Gerð og útgáfa fræðsluefnis
• Nýsköpun á sviði kirkjutónlistarmála
• Erlend samskipti
Starfið mun útheimta talsverð ferðalög innanlands svo
og sveigjanlegan vinnutíma.
Um starf í mótun er að ræða og reiknað er með að
verkefnisstjóri komi markvisst að frekari þróun þess
og uppbyggingu.
Launakjör eru í samæmi við gildandi kjarasamning
fjármálaráðherra og hlutaðeigandi stéttarfélags.
Leitað er að einstaklingi sem býr yfir skipulags- og
samstarfshæfni, er sveigjanlegur og á auðvelt með að
vinna sjálfstætt. Við mat á umsóknum verður m.a. horft til:
• Menntunar á sviði kirkjutónlistar, að lágmarki kantors-
próf frá Tónskóla þjóðkirkjunnar eða sambærilegt
• Víðtækrar reynslu af kirkjutónlistarstarfi
• Góðrar almennrar tölvukunnáttu, - þekking á
tónlistarforritum og vefumsjón er kostur
• Færni í ensku og einu norðurlandamáli æskileg
Umsækjendur geri skriflega grein fyrir persónulegum
upplýsingum, menntun sinni, starfsferli og öðru því sem þeir
óska eftir að taka fram.
Óskað er eftir því að umsækjendur fylli út eyðublað þar sem
biskupi er heimilaður aðgangur að sakaskrá viðkomandi
umsækjanda og skal sú heimild fylgja umsókn. Eyðublaðið
er á vef kirkjunnar, https://innri.kirkjan.is/pdf/samthykki-
fyrir-oflun-upplysinga-ur-sakaskra.pdf
Þá er óskað eftir því að nöfn og símanúmer a.m.k. tveggja
meðmælenda fylgi umsókninni.
Umsóknarfrestur er til 30. júní n.k. Umsóknum skal skila
rafrænt á netfang skjalavarðar Biskupsstofu: ragnhildur.
bragadottir@kirkjan.is, eða með bréfi stílað á Biskup Ís-
lands, Biskupsstofu, Laugavegi 31, 150 Reykjavík.
Frekari upplýsingar um starfið veitir skrifstofu- og mann-
auðsstjóri Biskupsstofu í síma: 528 4000, netfang:
sveinbjorg.palsdottir@kirkjan.is
Vísað er til laga nr. 10/2008 um jafna stöðu og jafnan rétt
kvenna og karla.
Háskólinn á Bifröst auglýsir laust til umsóknar starf forstöðumanns bókasafns skólans.
Forstöðumaður ber ábyrgð á starfsemi bókasafnsins, þjónustu þess og samstarfi innan og utan
háskólans. Forstöðumaður heldur einnig utan um skjalastjórnunarkerfi skólans, notkun þess
og þróun. Bókasafnið heyrir undir skrifstofu rektors og þjónar öllum einingum háskólans.
www.bifrost.is
Forstöðumaður bókasafns
Starfssvið
• Fagleg og fjárhagsleg ábyrgð á daglegum rekstri bókasafnsins.
• Ábyrgð á uppbyggingu safnkosts í samræmi við nám, kennslu og
rannsóknir við háskólann.
• Yfirumsjón með stafrænni þjónustu safnsins og gagnasöfnum.
• Ábyrgð á upplýsingaþjónustu og kennslu á leit í gagnagrunnum.
• Yfirumsjón með notkun og þróun á skjalastjórnunarkerfinu OneSystem
í samstarfi við Háskólaskrifstofu.
• Viðhald og þróun á þeim hluta vefsvæðis skólans sem varðar bókasafnið.
Menntunar- og hæfniskröfur
• Háskólamenntun í bókasafns- og upplýsingafræði, meistarapróf eða önnur
framhaldsmenntun er æskileg.
• Starfið gerir kröfu um stjórnunarhæfni og góða samstarfshæfni, sjálfstæð
vinnubrögð, skipulagshæfni, lipurð í samskiptum og ábyrgðarkennd.
• Mjög góð íslensku- og enskukunnátta.
• Reynsla af stjórnun, stefnumótun og rekstri safna.
Miðað er við að nýr forstöðumaður geti hafið störf 1. september
2014. Búseta á Bifröst eða í sveitarfélaginu er mjög æskileg.
Upplýsingar um starfið gefur rektor, og umsóknir skulu
sendar til hans í pósti eða á netfangið rektor@bifrost.is.
Umsóknarfrestur er til og með 8. júní 2014.
Með allar umsóknir er farið sem trúnaðarmál.