Fréttablaðið - 31.05.2014, Blaðsíða 84
KYNNING − AUGLÝSINGFerðir LAUGARDAGUR 31. MAÍ 20146
Haukur Gunnarsson er mörgum kunnur enda margfaldur verðlaunahafi á Ólymp-íuleikum fatlaðra. Honum gafst kostur á
að komast í draumaferðina þegar konan hans,
Valgerður Gunnarsdóttir, þurfti að fara til
Malaví á vegum vinnu sinnar. „Við flugum
til Jóhannesarborgar frá London og eyddum
þar þremur dögum. Þar snerist allt um Nelson
Mandela en við heimsóttum meðal annars
hverfið sem hann bjó í. Það var gríðarleg upp-
lifun og þar sá ég ýmislegt sem ekki er vaninn
að sjá í fjölmiðlum. Fjölmiðlarnir fjalla oft um
Afríku á neikvæðan hátt og sýna fátæktina og
eymdina sem margir búa við þar.
Í þessari ferð sá ég líka hina hliðina, milli-
stéttina sem er bara eins og ég og þú og býr í
venjulegum húsum.“
Kynjaskiptingin augljós
Eftir stutt frí í Jóhannesarborg héldu hjón-
in til Lilongwe, höfuðborgar Malaví, þar sem
þau eyddu fjórum vikum. „Konan mín vann á
daginn virku dagana en ég slappaði af á milli
þess sem ég fór út að hlaupa,“ segir Hauk-
ur og hlær en hann hljóp á hverjum degi í frí-
inu. „Ég elska íþróttir og hreyfi mig á hverj-
um degi og það var engin breyting þar á í Afr-
íku. Ég sá ýmislegt á hlaupunum, til dæmis
var skiptingin milli karla og kvenna augljós.
Karlarnir vinna flest öll launuð störf en kon-
urnar gera allt annað, hugsa um börn og heimili.
Það var algengt að sjá þær með stafla af pinklum
og pökkum á höfðinu og börnin á bakinu. Í
Lilongwe er ferðamönnum ekki ráðlagt að vera
á ferðinni á kvöldin og á daginn gat ég lítið farið
án þess að vera á bíl. Á móti kom þó að þetta var
mjög afslappandi frí, ég lá bara í sólbaði á milli
þess sem ég hljóp.“
Í návígi við villt dýr
Helgarnar áttu hjónin út af fyrir sig og eina
helgina fóru þau til Sambíu og gistu í þjóðgarði,
South-Luangwa. „Það var algjörlega toppur-
inn á ferðinni. Þarna voru villt dýr að spranga
um og við gátum verið í miklu návígi við þau.
Meðal annars sáum við gíraffa, ljón, flóðhesta,
fíla, hlébarða og sebrahesta. Við gistum á fínu
gistiheimili þar sem þjónustan var mjög góð og
allur matur innifalinn í verði. Enda var ég eig-
inlega búinn að gleyma hvernig ætti að vinna
öll heimilisstörf þegar við komum heim,“ segir
Haukur og hlær.
Annar heimur
Þau fóru líka á eyjuna Mumbo í Malaví sem
er nánast ósnert, þar er ekkert rafmagn og þar
hefur fólk aldrei haft fasta búsetu. „Það var
ótrúlega endurnærandi að vera þar, það var
ekkert sem truflaði og við náðum algerri af-
slöppun. Ég mæli heilshugar með því að fólk fari
til Afríku og ferðist þar um. Þetta er allt annar
heimur, umhverfið er fallegt og fólkið er glað-
vært og tekur öllum opnum örmum. Ég myndi
jafnvel vilja búa þar í einhvern tíma sjálfur.“
Afríka er eins og draumur í dós
Haukur Gunnarsson, Ólympíufari og frjálsíþróttakappi, fór í draumaferð til Afríku á dögunum. Hann heimsótti hverfi Nelsons
Mandela í Jóhannesarborg, eyddi sólarhring á einangraðri eyju og sá nýja hlið á Afríku sem kom honum á óvart enda með ákveðna
mynd af Afríku í huganum áður en hann fór. Haukur mælir með því að fólk heimsæki Afríku og langar jafnvel að búa þar sjálfur.
Mumbo-eyja er nánast ósnert og hefur fólk aldrei haft fasta búsetu þar. Dvölin þar var endurnærandi
fyrir Hauk.
M
Y
N
D
IR /H
A
U
K
U
R G
U
N
N
A
RSSO
N
Í South-Luangwa-þjóðgarðinum
komst Haukur í návígi við fíla,
gíraffa, ljón og fleiri dýr.
Í Jóhannesarborg heim-
sótti Haukur meðal annars
íbúð Mandela.
Haukur segir Afríkubúa
vera glaðværa og hafa tekið
honum opnum örmum.
OKKAR ÓDÝRASTA
ALLT INNIFALIÐ
Gildir eingöngu nýjar bókanir,
með minnst tvo saman í herbergi.
ÍSLENSKIR
BARNAKLÚBBAR!
Gildir eingöngu nýjar bókanir,
með minnst tvo saman í herbergi.
1 vika 2 vikur
11/6 135.999 Örfá sæti laus
25/6 139.599 239.599
9/7 139.599 239.599
30/7 149.599 Örfá sæti laus
1 vika 2 vikur
18/6 89.599 Örfá sæti laus
16/7 99.599 149.599
23/7 99.599 149.599
13/8 119.599 159.599
nazar.is · 519 2777