Fréttablaðið - 31.05.2014, Page 88
31. maí 2014 LAUGARDAGUR| HELGIN | 44
1 Hvað halda margir um þig sem er alls ekki rétt? Að ég
sé einhvers konar heilsugúrú og
afreksmanneskja í hollustu.
2 Hvað kæmi fólki sem kynntist þér mest á óvart? Hvað ég er
komin langt í Candy Crush.
3 Hvað kemur út á þér tár-unum? Saudade. Sama rósin
sprettur aldrei aftur, þótt önnur
fegri skreyti veginn þinn.
4 Hvað gerir þig pirraða? Pirr-ingur er sjálfskapað víti. Þó
svo að pirringur kunni stundum
að kvikna við orð og gjörðir
annarra, þá er orsökina yfirleitt
að finna hjá sjálfri mér.
5 Hvað er fyndnast í heimi? Ágústa Eva, Frikki og Eggert
og ófyrirsjáanleg andartök af
ýmsum toga.
6 Er líf á öðrum hnöttum? Pottþétt og vonandi.
7 Hvert er fallegasta hljóð sem þú hefur heyrt? Þegar ég var
í lögfræði laumaðist ég stundum
inn í aðalsalinn í Háskólabíói í
kaffipásum og hlustaði á Sinfón-
íuna æfa sig. Og kannski stundum
líka þegar það var ekki kaffipása.
8 Hvað gerirðu þegar allir aðrir eru sofnaðir? Var ég búin að
nefna það hvað ég er komin langt
í Candy Crush?
9 Hvaða frægu persónu ertu skotin í? Nicolas Jaar, Russell
Brand og Yolandi Visser.
10 Ef þú mættir taka eina bók, eina plötu og eina bíómynd
með þér á eyðieyju, hvað yrði
fyrir valinu? Mamma mætti velja
fyrir mig ljóðabók, safnplötu
YFIRHEYRSLAN SALÓME R. GUNNARSDÓTTIR LEIKKONA
Alls ekki heilsugúrú
með fyrirlestrum Alan Watts,
og Mulholland Drive, það væri
gott verkefni að reyna að fá botn
í hana.
11 Hver er fyrsta minningin þín? Ég minnist þess að
hafa legið í barnavagni en ég
man líka að ég var orðin of stór
til að liggja í barnavagni, þannig
að það er ekki alveg útilokað að
þetta hafi bara verið í síðustu
viku.
12 Hvað verðurðu að gera eftir fimm ár? Vonandi enn
þá að lifa og læra og hrærast og
hræra.
13 Pálmi Gunnars eða Björn Jörundur? Mig langar
ekkert að gera upp á milli tveggja
manna sem ég þekki ekki. Ég
ætla að segja pabbi.
14 Hver var æskuhetjan þín? Stóri bróðir minn.
15 Er ást í tunglinu? Kannski. Ást er víða.
➜ Spamalot og Eldraunin
Salóme R. Gunnarsdóttir er á
samningi hjá Þjóðleikhúsinu
og hefur undanfarið vakið
mikla athygli sem leikkona.
Hún söng og dansaði í upp-
setningu Þjóðleikhússins á
Monty Python-grínleiknum
Spamalot, auk þess sem hún
leikur hlutverk í Eldraun Arth-
urs Miller, í leikstjórn Stefans
Metz, sem frumsýnt var í
Þjóðleikhúsinu á dögunum.
Bloggsíðan var stofnuð árið 2010 og
þar er áherslan á strauma og stefnur
í skandinavískri hönnun. Að síðunni
standa þær Si, Ylva Skarp og Ana
Denegaar en daglega skoða hana um
sjö þúsund manns. Hún er tilvalinn
viðkomustaður á netrúntinum þegar
þörf er á innblæstri til heimilisins
ásamt því að vera með skemmtilegar
leiðbeiningar um hvernig er hægt að
fl ikka upp á húsbúnað og húsgögn
með einföldum og snjöllum hætti.
FYLGSTU
MEÐ …
hönnunarblogginu
Frenchbydesignblog.com
App vikunnar að þessu sinni er
ákaflega hagnýtt og skemmtilegt, þá
sérstaklega vegna þess að það getur
aðstoðað fólk einkar mikið sem
ætlar sér í ferðalag. Smáforritið ber
nafnið Stay.com og er hagnýtt leið-
sögutæki. Forritið inniheldur kort af
yfir 150 borgum út um allan heim
og er öll uppsetning og frágangur til
fyrirmyndar.
Hentugt Þú nærð þér í forritið
í símann þinn og þá ert þú fær í
flestan sjó. Stay.com sýnir ekki bara
kort af þeirri borg sem þú ert að
heimsækja, heldur er einnig að finna
fjölda hagnýtra upplýsinga á kortinu.
Þar getur þú séð merkilega staði
sem gott gæti verið að heimsækja,
eins og söfn, veitingastaði, hvar frítt
Wi-Fi er að finna og aðrar skemmti-
legar upplýsingar.
Það sem er líklega best við for-
ritið er að þú þarft ekki að vera
nettengdur til þess að nota það. Það
er hægt að nota það með svokallaðri
offline-stillingu, eins og margir vita
getur verið dýrt að vafra á erlendri
grund en Stay.com krefst ekki
nettengingar.
Notkun Forritið er einfalt í notkun
og þú sérð sjálfan þig hverja stund,
þannig að erfitt er að villast þegar
forritið er opið.
Til þess að gera ferð þína um
borgina þægilega geturðu merkt inn
á kortið þá staði sem þig langar að
heimsækja.
Frítt Stay.com er frítt og virkar fyrir
Apple-stýrikerfi og Android-stýrikerfi.
APP VIKUNNAR STAY.COM
FIMM HUGMYNDIR AÐ MAT SEM KOMA STERKAR INN YFIR SUMARTÍMANN
GRÆNMETI Í SÆTINDI Lárpera,
agúrka, grasker og kúrbítur er geysi-
vinsælt grænmeti í kökur af ýmsu
tagi og jafnvel ís.
CHIA-FRÆ Fræin njóta aukinna vin-
sælda einkum vegna þess að þau eru
glútenfrí og ein matskeið inniheldur
meira kalsíum en mjólkurglas.
SÍTRÓNUR Þessi súri ávöxtur er
kominn aftur í tísku, jafnt í matar-
gerð sem bakstri.
TE Í MATARGERÐ Te getur poppað
upp ýmislegt, hvort sem það er
kvöldmaturinn, eftirréttirnir eða
kokteilarnir.
ÞARI Matarspekingar spá því að
þarinn verði gríðarlega vinsæll í
sumar og ekki bara í sushi heldur
einnig í alls kyns snarl.