Fréttablaðið - 31.05.2014, Síða 92
31. maí 2014 LAUGARDAGUR| HELGIN | 48
Það er liðin tíð að bókaút-gáfa einskorðist við síð-ustu þrjá mánuðina fyrir jól. Nú koma bækur út allan ársins hring og ekki óalgengt að tvær til
þrjár bækur séu gefnar út á viku.
Enn er það þó svo að stórkanónur
eru geymdar til jólanna og sumar-
útgáfan einskorðast nánast við reyf-
araútgáfu, bækur nýrra óþekktra
höfunda og ljóðabækur. Nánast
undantekningalaust eru þetta kilj-
ur, sem er reyndar alveg ágætt fyrir
þá sem vilja taka með sér bækur í
sumarbústaðinn eða á sólarströnd-
ina og kæra sig ekki um að rogast
með fleiri kílóa harðspjaldadoðr-
anta í handfarangri. Reyndar er
langalgengast að fólk hlaði lesefni
niður á spjaldtölvurnar sínar áður
en það fer í frí til útlanda, en ein-
hverra hluta vegna er það ennþá
partur af kósíheitunum í sumarbú-
staðaferðum að hafa með sér góða
bók til að kúra sig með í sófanum
eða á veröndinni.
Ekki veit ég hvort einhverjar
markaðsrannsóknir búa að baki
þessu vali útgefenda á sumarbókum,
en þykir það þó líklegt annars væru
þeir varla að þessu. Klisjan hljóðar
allavega upp á það að sumarið krefj-
ist „léttara“ lesefnis en dimmar
vetrarnætur, að fólk í fríi nenni ekki
að pæla í gegnum eitthvert tormeti,
vilji bara létta afþreyingu í stíl við
sumarið og sólina. Sumir tala um
reyfarasumar og líta ekki við öðru
en glæpasögum um leið og nótt-
in fer að lýsast. Aðrir vilja róman-
tík og happy ending og til skamms
tíma voru rauðu ástarsögurnar vin-
sælasta lesefni kvenna í sumar-
fríi, en það hefur breyst með nýjum
kynslóðum. Reyndar er ekki allur
munur á rauðum ástarsögum og
skvísubókunum sem nú eru vinsæl-
ar, en það er efni í allt aðra grein.
Persónulega finnst mér góður
reyfari jafn ómissandi í sumar-
ferðum og sólarvörnin. Það er eitt-
hvað ómótstæðilegt við það að vaka
einn í sumarbústað þar sem brakar
í hverju gólfborði og naga á sér hnú-
ana yfir hörkuspennandi glæpasögu
með sálfræðilegu tvisti, hrökkva í
kút við minnsta hljóð og standa
sig kannski að því að æpa af skelf-
ingu ef skugga ber fyrir gluggann.
Það er upplifun sem enginn ætti að
svíkja sjálfan sig um. Nóg er fram-
boðið á reyfurum þessar vikurnar
og gæðin óvenju mikil miðað við þá
bókmenntagrein.
Það er þó ekkert lögmál sem segir
að ekki megi lesa „alvarlegri“ bók-
menntir á sumrin. Þetta sumar-
ið væri til dæmis alveg kjörið að
hita upp fyrir komandi leikár og
lesa Konuna við 1000°, Karitas eða
Ofsa sem allar munu rata á leiksvið
með haustinu. Nú, eða fara að dæmi
Ragnars Kjartanssonar og leggjast
yfir Heimsljós eina ferðina enn,
enda fáar bækur sem betur endur-
spegla íslenska sumarfegurð. Og, já
já, skvísubækur og ástarsögur eru
algjörlega fullgildir fulltrúar bók-
menntanna í sumarfríinu ef smekk-
urinn stendur í þá áttina. Aðalatrið-
ið er að lesa það sem hverjum og
einum þykir skemmtilegast. Eða
öllu heldur; aðalatriðið er að lesa.
➜ Það er eitthvað ómót-
stæðilegt við það að vaka
einn í sumarbústað þar sem
brakar í hverju gólfborði
og naga á sér hnúana yfir
hörkuspennandi glæpasögu
með sálfræðilegu tvisti.
Friðrika
Benónýsdóttir
fridrikab@frettabladid.is
Paradísarfórn
Kristina Ohlson
Ef þið eruð ekki búin
að lesa þessa þá er
einboðið að kippa
henni með í bústað-
inn. Verst að hún er
svo spennandi að
lesturinn gæti dregið
úr útiveru. Hún er
samt vel þess virði að fórna nokkrum
göngutúrum fyrir. Er ekki annars
spáð rigningu alla helgina?
Verjandi Jakobs
William Landay
Öðruvísi réttarfars-
drama sem
kveikir á alls kyns
tilfinningum og
ekki úr vegi að hafa
tissjúpakkann við
höndina þegar líða
tekur á lesturinn.
Hrollvekjandi upplifun fyrir foreldra
táninga en spyr spurninga sem
virkilega skipta máli.
Öngstræti
Louise Doughty
Þið munuð hugsa
ykkur um tvisvar
áður en þið hefjið
framhjáhald eftir
lestur þessarar.
Umhugsunar-
vekjandi og
áhugaverð saga.
GÓÐ LESNING Í
BÚSTAÐNUM
FÆRT TIL
BÓKAR
! Furðustrandir eftir Arnald Indriða-
son í þýðingu Vicky Cribb er tilnefnd
til virtustu glæpasagnaverðlauna
heims, The CWA Dagger Awards
2014, í flokknum alþjóðlegar
glæpasögur. Auk Arnaldar eru meðal
annarra tilnefnd þau Fred Vargas,
fyrir Dog will have his day, Arturo
Perez-Reverte, fyrir The Siege, og
Simon Urban, fyrir Plan D. Hver
verðlaunin hlýtur verður tilkynnt
þann 30. júní.
Arnaldur er ekki óvanur því að
vera tilnefndur til þessara virtu
verðlauna því hann hlaut Gyllta
rýtinginn 2005 fyrir Grafarþögn og
bæði Vetrarborgin og Harðskafi voru
tilnefndar á sínum tíma.
Arnaldur tilnefndur til Gyllta rýtingsins
Sumarið er tíminn til að lesa
Nýjar bækur fl æða í verslanir allan ársins hring núorðið og á sumrin fer þar mest fyrir reyfurum, skvísu-
bókum og ljóðabókum. Bók er ómissandi ferðafélagi í sumarfríinu, hver sem bókmenntagreinin er.
SÍÐASTA
LJÓÐABÓK
VÉSTEINS
Væntanleg er ný
ljóðabók eftir
Véstein Lúðvíks-
son og nefnist hún
Kisan Leónardó.
Vésteinn hefur
gefið það út að
þetta sé síðasta
ljóðabókin sem
hann muni senda
frá sér.
Ný ljóðabók eftir
Einar Georg með
teikningum eftir
Ásgeir Trausta,
son hans, er
væntanleg frá
Forlaginu. Ljóð Ein-
ars þekkja nánast
allir Íslendingar
enda er hann
höfundur flestra
texta Ásgeirs.
Teikningarnar
sem prýða bókina
teiknaði Ásgeir á
tónleikaferðalagi
í vor.
Ásgeir Trausti
myndskreytir
BÆKUR ★★
Þessi týpa
Björg Magnúsdóttir
JPV-ÚTGÁFA
Fyrsta skáldsaga
Bjargar Magnús-
dóttur, Ekki þessi
týpa, var hressilegt
innlegg í íslenska
skvísubókaflóru,
fyndin og raun-
sönn. Nú sendir
hún frá sér bók-
ina Þessi týpa þar sem hún heldur
áfram að segja sögu vinkvennanna
fjögurra, Bryndísar, Regínu, Ingu
og Tinnu, þar sem frá var horfið í
fyrri bókinni.
Þær stöllur hafa flestar stigið
næsta skref í lífinu; Inga er á leið
í hnapphelduna, Regína á von á
stöðuhækkun og Tinna hefur stofn-
að eigið vefrit. Bryndís aftur á móti
er ekki á góðum stað í lífinu eins og
best sést á því að hún tekur aftur
upp samband við örlagaaumingj-
ann Gumma. Sú ákvörðun er reynd-
ar frekar illa undirbyggð í sögunni
og sömu sögu er að segja af fleiru
sem fjallað er um. Björg tekur hér
þann pól í hæðina að bregða upp
örmyndum, sýna frekar en segja,
og í sumum tilfellum verður það til
þess að lesandinn er skilinn eftir í
lausu lofti og nær ekki sambandi
við það sem fram fer. Tónninn í bók-
inni er einnig mun dekkri en í þeirri
fyrri, og hlátrasköllin víðsfjarri við
lesturinn.
Umfjöllunarefnin eru
líka mun alvarlegri í þess-
ari bók. Það er erfitt að
gera nauðgun og afleiðingar
hennar, stalkera, viðbrögð
við nýjum maka foreldris og
þær ómanneskjulegu kröf-
ur sem brúðkaup gerir til
brúðarinnar að gamanmál-
um. Björg fær fjöður í hatt-
inn fyrir að velta upp þess-
um vandamálum sem ungar
konur glíma við, en umfjöll-
unin er öll í skötulíki og sálar-
angistin sem slíkum hremm-
ingum fylgir skilar sér illa til
lesandans. Það er eins og höfundur-
inn kinoki sér við að fara alla leið
og kafa í upplifanir vinkvennanna
af þessum áföllum. Spurning hvort
þar spili formúla skvísubókanna inn
í, það þyki ekki hæfa að eyðileggja
stemninguna með óhugnaði.
Að þessu sögðu er rétt að árétta
það að Þessi týpa er virðingarverð
tilraun til að skila veruleika ungra
kvenna á Íslandi inn í bókmennt-
irnar. Ágætlega skrifuð og pers-
ónurnar sympatískar, auk þess að
vera týpur sem við öll könnumst
við úr umhverfi okkar. Björg er fín-
asti penni með góðar hugmyndir og
óskandi að hún haldi áfram að þróa
stíl sinn og frásagnargleði án þess
að láta hugmyndina um það hvernig
skvísubækur „eigi“ að vera setja sér
skorður. Friðrika Benónýsdóttir
NIÐURSTAÐA Framhald bókarinnar
Ekki þessi týpa. Dekkri og alvarlegri
og nær ekki alveg sama flugi og fyrri
bókin.
Alvara lífsins tekur við
Velúr, ný ljóðabók eftir Þórdísi Gísladóttur,
kemur út í hjá Bjarti í júníbyrjun. Síðasta
ljóðabók Þórdísar, Leyndarmál annarra, hlaut
Bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmunds-
sonar árið 2010 og vakti mikla athygli. Þórdís
hefur þar fyrir utan hlotið mikið lof fyrir
barnabækur sínar um Randalín og Munda.
Aðdáendur bíða því spenntir eftir Velúr.
Ný ljóðabók Þórdísar
Viðskiptavit er ekki meðfætt
- það er lært
VIÐSKIPTAFRÆÐIDEILD
BS nám í viðskiptafræði
Viðskiptafræðideild Háskóla Íslands býður upp á
metnaðarfullt, fjölbreytt og framsækið nám. Deildin
hefur gegnt forystuhlutverki í menntun stjórnenda
og sérfræðinga á sviði viðskiptafræði í sjö áratugi.
Þetta er nám sem gerir kröfur samhliða því að veita
góða fræðilega undirstöðu, virkja sköpunarkraftinn
og hvetja til agaðra vinnubragða. Það er metnaður
Viðskiptafræðideildar að tryggja nemendum góða
menntun sem nýtur trausts í samfélaginu og hefur
á sér gæðastimpil.
Umsóknarfrestur er til 5. júní
Hægt er að sækja um rafrænt á www.vidskipti.hi.is.
Umsókninni þarf að fylgja afrit af stúdentsprófsskírteini.
Boðið er upp á fjögur kjörsvið til BS gráðu
í viðskiptafræði:
• Fjármál
• Markaðsfræði og alþjóðaviðskipti
• Reikningshald
• Stjórnun
www.hi.is
SUMARLESTUR „Þetta
sumarið væri til dæmis
alveg kjörið að hita upp
fyrir komandi leikár í
stóru leikhúsunum.“
MYND/NORDICPHOTOSGETTY